Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1924, Síða 19
Alþingiskosningar 1919—1923
17
Málaflutningsmenn eru hjer taldir með embættislausum mentamönn-
um. Dændur og embættismenn eru þær stjettir, sem mest ber á bæði
meðal frambjóðenda og þingmanna. Þó hefur embættismönnum fækkað
meðal þingmanna upp á síðkastið.
í töflu VI og VII er getið um fæðingarár og dag hvers frambjóð-
anda við kosningarnar 1919 og 1923. Eftir aldri skiftust þeir þannig:
Frambjóöendur Kosnir
1919 1923 1919 1923
25—29 ára . 2 5 )) í
30-39 — . 20 26 12 9
40-49 — . 18 21 9 12
50—59 — . 22 16 10 10
60-69 — 6 9 3 4
Samtals . . 68 77 34 36
Elstur frambjóðandi 1919 var sjera Björn Þorláksson, 68 ára, og
náði hann eigi kosningu, en elstur þeirra, sem kosnir voru það ár, var
sjera Sigurður Stefánsson, 65 ára. Elstur frambjóðenda 1923 var Guðjón
Guðlaugsson, 65 ára, og náði hann ekki kosningu, en elstur þeirra, sem
kosnir voru það ár, var Björn Kristjánsson, líka 65 ára. Vngstur fram-
bjóðenda 1919 var sjera Friðrik Rafnar, 28 ára, og náði hann ekki
kosningu, en yngstur þeirra, sem kosnir voru það ár, var Pjetur Ottesen,
31 ára. Vngstur frambjóðenda 1923 var Lárus jóhannesson, 25 ára (eina
viku yfir), og náði hann ekki kosningu, en yngstur þeirra, sem kosnir
voru, var Ásgeir Ásgeirsson, 29 ára. Meðalaldur allra frambjóðenda við
kosningarnar 1919 var 46.0 ár, en meðalaldur þeirra, sem kosningu náðu
var heldur lægri, 45.6 ár. Við kosningarnar 1923 var meðalaldur allra
frambjóðenda töluvert lægri, 44.5 ár, en meðalaldur þeirra, sem kosnir
voru var samt hærri, 46.7 ár.
Aftan við nöfn þingmannaefnanna í töflu VI og VII (bls. 38—48)
eru bókstafir, er tákna til hvaða flokks þeir töldust þegar kosningin fór
fram. Að vísu hefur flokksafstaða allra frambjóðenda ekki verið svo ljós,
að ekki geti vafi leikið á því um suma, hvort flokkstáknunin, sem sett
er við nöfn þeirra, sje alveg rjett, því að töluverð riðlun hefur verið á
flokkúnum á þessum árum. Einkum kom það í ljós við kosningarnar
1919, er mikill hluti frambjóðendanna taldi sig utan flokka. Þó hölluðust
þeir meira eða minna að vissum flokkum eða nutu stuðnings þeirra við
kosninguna og hefur því, til þess að greiða nokkuð úr flækjunni, merki
þess flokks, sem álitið er að þeir hafi staðið næst eða verið studdir
af, verið sett milli sviga aftan við nöfn þeirra auk þess merkis, er táknar,
að þeir hafi verið utan flokka. Við kosningarnar 1923 var afstaðan skýr-
ari. Skipuðust menn þá allgreinilega í þrjár sveitir og voru aðeins örfáir