Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1924, Side 56
Hagstofa íslands
gefur út eftirfarandi rit:
I. Hagskýrslur Islands. Þar eru birtar ítarlegar skýrslur um þau
efni, sem hagstofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út í sjálf-
stæðum heftum og fást þau keypt einstök. Af hagskýrslunum er út
komið:
Verslunarskýrslur 1912—1919.
Búnaðarskýrslur 1912—1922.
Alþingiskosningar 1908—1923.
Fiskiskýrslur og hlunninda 1912—1920.
Islensk mannanöfn 1. des. 1910.
Barnafræðsla 1909—1920.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um sambandslög 1918.
Mannfjöldaskýrslur 1911 —1915.
Skýrslur um skipakomur 1913—1917.
II. Hagtíðindi, blað, sem kemur út að minsta kosti 6 sinnum á ári.
Eru þar birtar ýmsar niðurstöður skýrslnanna áður en þær geta
komið út í sjerstöku hefti, svo og niðurstöður skýrslna, sem ekki
þykir faka að birta í sjerstöku hefti, nema þá á fleiri ára fresti. Af
Hagtíðindum er út komið:
1—8. árg. 1916—1923.
III. Starfskrá Islands. Handbók um opinberar stofnanir og starfs-
menn. Kemur út á nokkurra ára fresti. Af henni er út komið eitt
hefti, árið 1917.
IV. Ársfjórðungsyfirlit um innfluttar og útfluttar vörur. Út er
komið 1921 og 1922, 1.—3. ársfj.
Menn geta gerst áskrifendur að ritum hagstofunnar með því að
snúa sjer beint til hennar. Áskriftargjald er 5 krónur um árið fyrir
þau öll, en 4 krðnur fyrir Hagskýrslurnar eingöngu og 1 og 50 aurar
fyrir Hagtíðindi eingöngu.