Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1929, Blaðsíða 7
Inngangur
Introduction.
A. Kjördæmakosningar 9. júlí 1927.
Elections généra/es des circonscriptions le 9 juillet 1927.
1. Tala kjósenda.
Nombre des électeurs.
Við kjördæmakosningarnar 9. júlí 1927 var tala kjósenda á kjör-
skrá 46 047. Var það 44.9 °/o af Iandsmönnum. Síðan alþingi fjekk lög-
gjafarvald hefur tala kjósenda við almennar kosningar verið svo sem
hjer segir:
Kjósendur Af íbúatölu Kjósendur Af íbúatölu
1874 .. . .. 6 183 8.8 % 1908 ... .. 11726 14.1 »/o
1880 .. . . . 6 557 9.1 — 1911 ... .. 13 136 15.4 —
1886 .. . .. 6 648 9.2 — 1914 ... .. 13 400 15.2 —
1892 .. . .. 6 841 9.5 — 1916 ... . . 28 529 31.7 —
1894 .. ... 6 733 9.2 — 1918 . .. .. 31 143 33.7 —
1900 .. ... 7 329 9.4 — 1919 .. . .. 31 870 34.5 —
1902 .. . .. 7 539 9.5 — 1923 ... . . 43 932 45.2 —
1903 .. . . . 7 786 9.8 — 1927 ... .. 46 047 44.9 —
Árið 1918 fóru ekki fram alþingiskosningar, en þá fór fram at-
kvæðagreiðsla um sambandslögin meðal allra alþingiskjósenda. Fram að
1903 (og að því ári meðtöldu) nemur kjósendatalan 9—10 °/o af íbúa-
tölu landsins. Með stjórnarskrárbreytingunni frá 1903 var aukaútsvars-
greiðslan, er kosningarrjettur var bundinn við, færð niður í 4 kr. Var
kjósendatalan síðan 14—15 °/o árin 1908 — 14. Með stjórnarskrárbreyting-
unni 1915 var aukaútsvarsgreiðsla afnumin sem skilyrði fyrir kosningar-
rjetti og konum og hjúum veittur smávaxandi kosningarrjettur, þannig að
aldurstakmark þeirra væri í fyrstu 40 ár, en lækkaði svo á hverju ári
um eitt ár. Við þetta kemst kjósendatalan upp úr 30 °/o og smáhækkar
síðan eftir því sem aldurstakmark þessara nýju kjósenda lækkar. En með
stjórnarskránni 1920 var hið sjerstaka aldurstakmark þessara kjósenda