Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1932, Blaðsíða 7
Inngangur.
Introduction.
A. Kjördæmakosningar 12. júní 1931.
Élections générales des circonscriptions le 12. juin 1931.
1. Tala kjósenda.
Nombre des électeurs.
Við kjördæmakosningarnar 12. júní 1931 var tala kjósenda á kjör-
skrá 50 617. Var það 46.4 °/o af landsmönnum. Síðan alþingi fékk lög-
gjafarvald hefur tala kjósenda við almennar kosningar verið svo sem
hér segir:
Kjósendur Af íbúatölu Kjósendur Af íbúatöh
1874 ... .. 6 183 8.8 % 1911 . . . .. 13 136 15.4 %
1880 ... .. 6 557 9.1 — 1914 ... .. 13 400 152 —
1886 ... .. 6 648 92 — 1916 ... . . 28 529 31.7 —
1892 . . . .. 6 841 9.5 — 1918 ... . . 31 143 33.7 —
1894 . . . . . 6 733 9.2 — 1919 . .. . . 31 870 34.5 —
1900 . . . . . 7 329 9.4 — 1923 . . . . . 43 932 45.2 —
1902 . . . . . 7 539 9.5 — 1927 . . . .. 46 047 44.9 —
1903 . . . 1908 ... . . 7 786 ..11 726 9.8 — 14.1 — 1931 ... ,.. 50 617 46.4 —
Árið 1918 fóru ekki fram alþingiskosningar, en þá fór fram at-
kvæðagreiðsla um sambándslögin meðal allra alþingiskjósenda. Fram að
1903 (og að því ári meðtöldu) nemur kjósendatalan 9 —10 °/o af íbúa-
tölu landsins. Með stjórnarskrárbreytingunni frá 1903 var aukaútsvars-
greiðslan, er kosningarréttur var bundinn við, færð niður í 4 kr. Var
kjósendatalan síðan 14 — 15% árin 1908—14. Með stjórnarskrárbreyting-
unni 1915 var aukaútsvarsgreiðsla afnumin sem skilyrði fyrir kosningar-
rétti og konum og hjúum veittur smávaxandi kosningarréttur, þannig að
aldurstakmark þeirra væri í fyrstu 40 ár, en lækkaði svo á hverju ári
um eitt ár. Við þetta kemst kjósendatalan upp úr 30 % og smáhækkar
síðan eftir því sem aldurstakmark þessara nýju kjósenda lækkar. En með
stjórnarskránni 1920 var hið sérstaka aldurstakmark þessara kjósenda