Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1932, Page 12

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1932, Page 12
10 Alþingiskosningar 1930 — 1931 3. Atkvæðagreiðsla utanhreppsmanna. Votanls hors de leur district. Samkvæmt kosningalögunum má kjörstjórn leyfa manni, sem ekki stendur á kjörskránni, að greiða atkvæði, ef hann sannar það með vott- orði sýslumanns, að hann standi á annari kjörskrá í kjördæminu og að hann hafi afsalað sér þar kosningarrétti. Við kosningarnar 1931 greiddu 685 menn atkvæði í öðrum hreppi eða kaupstað heldur en þar sem þeir stóðu á kjörskrá, eða 1.5 °/o af öllum þeim, sem atkvæði greiddu við kosningarnar. Við undanfarnar kosningar hefur þetta hlutfall verið: 1916 1.0 % 1927 1.4'ÍO 1919 1.7 — 1931 1.5 — 1923 1.1 —* Af þeim, sem notuðu sér þennan rétt árið 1931, voru 273 konur eða um 45 °/o. í töflu II (bls. 21) er sýnt, hve margir kusu á þennan hátt í hverju kjördæmi á landinu og í 1. yfirliti (bls. 8) sést hve margir það hafa verið í samanburði við þá, sem atkvæði greiddu í hverju kjör- dæmi. Tiltölulega flestir hafa það verið í Austur-Húnavalussýslu (7.4 o/o af öllum, sem atkvæði greiddu). 4. Bréfleg afkvæði. Votes per lettre. Sjómenn og aðrir, sem staddir eru utan þess hrepps eða kaup- staðar, þar sem þeir standa á kjörskrá, þá er kosning fer fram, og ekki neyta hins almenna réttar til þess að greiða atkvæði á öðrum kjörstað í sama kjördæmi, mega greiða atkvæði bréflega, þannig að þeir sendi hreppstjóra eða bæjarfógeta á þeim stað, þar sem þeir standa á kjörskrá, fyrir kjörfund atkvæðaseðil í bréfi. Við kosningarnar vorið 1931 neyttu 2971 menn þess réttar að kjósa bréflega, eða 7.5 o/o af öllum þeim, sem atkvæði greiddu. Við undanfarandi kosningar hefur þetta hlutfall verið 1916 1.9 °/0 1927 6.4 % 1919 2.6 — 1931 7.5 — 1923 13.0 — Bréfleg atkvæðagreiðsla var langmest notuð árið 1923, því að þá var þeim leyft að kjósa bréflega, sem ekki voru ferðafærir á kjörstað sakir elli eða vanheilsu, en með því að menn voru hræddir um, að þessar heimakosningar hefðu verið misnotaðar, var þessi heimild aftur úr lög- um numin árið 1924. Langmestur hluti bréflegu atkvæðanna 1923 staf-

x

Hagskýrslur um kosningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.