Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1932, Side 12
10
Alþingiskosningar 1930 — 1931
3. Atkvæðagreiðsla utanhreppsmanna.
Votanls hors de leur district.
Samkvæmt kosningalögunum má kjörstjórn leyfa manni, sem ekki
stendur á kjörskránni, að greiða atkvæði, ef hann sannar það með vott-
orði sýslumanns, að hann standi á annari kjörskrá í kjördæminu og að
hann hafi afsalað sér þar kosningarrétti. Við kosningarnar 1931 greiddu
685 menn atkvæði í öðrum hreppi eða kaupstað heldur en þar sem þeir
stóðu á kjörskrá, eða 1.5 °/o af öllum þeim, sem atkvæði greiddu við
kosningarnar. Við undanfarnar kosningar hefur þetta hlutfall verið:
1916 1.0 % 1927 1.4'ÍO
1919 1.7 — 1931 1.5 —
1923 1.1 —*
Af þeim, sem notuðu sér þennan rétt árið 1931, voru 273 konur
eða um 45 °/o. í töflu II (bls. 21) er sýnt, hve margir kusu á þennan
hátt í hverju kjördæmi á landinu og í 1. yfirliti (bls. 8) sést hve margir
það hafa verið í samanburði við þá, sem atkvæði greiddu í hverju kjör-
dæmi. Tiltölulega flestir hafa það verið í Austur-Húnavalussýslu (7.4 o/o
af öllum, sem atkvæði greiddu).
4. Bréfleg afkvæði.
Votes per lettre.
Sjómenn og aðrir, sem staddir eru utan þess hrepps eða kaup-
staðar, þar sem þeir standa á kjörskrá, þá er kosning fer fram, og ekki
neyta hins almenna réttar til þess að greiða atkvæði á öðrum kjörstað
í sama kjördæmi, mega greiða atkvæði bréflega, þannig að þeir sendi
hreppstjóra eða bæjarfógeta á þeim stað, þar sem þeir standa á kjörskrá,
fyrir kjörfund atkvæðaseðil í bréfi. Við kosningarnar vorið 1931 neyttu
2971 menn þess réttar að kjósa bréflega, eða 7.5 o/o af öllum þeim, sem
atkvæði greiddu. Við undanfarandi kosningar hefur þetta hlutfall verið
1916 1.9 °/0 1927 6.4 %
1919 2.6 — 1931 7.5 —
1923 13.0 —
Bréfleg atkvæðagreiðsla var langmest notuð árið 1923, því að þá
var þeim leyft að kjósa bréflega, sem ekki voru ferðafærir á kjörstað
sakir elli eða vanheilsu, en með því að menn voru hræddir um, að þessar
heimakosningar hefðu verið misnotaðar, var þessi heimild aftur úr lög-
um numin árið 1924. Langmestur hluti bréflegu atkvæðanna 1923 staf-