Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1932, Síða 9

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1932, Síða 9
Alþingiskosningar 1930 — 1931 7 Á öllu Þar sem alkvæða- Á öilu landinu greiðsla fór fram landinu 1874 .... ... 19.6% 1908 .. 75.7 % 72.4 % 1880 .... . .. 24.7 — 1911 .. 78.4 — 78.4 — 1886 .... . .. 30.6 - 1914 .. 70.o — 55.8 — 1892 .... ... 30 5 — 1916 .. 52.6 — 49.2 — 1894 .... . . . 26.4 — 1918 . . 43.8 — 43.8 — 1900 .... . . . 48.7 — 1919 .. 58.7 — 45.4 — 1902 .... . . . 52.6 — 1923 .. 75.6 — 70.9 — 1903 .... . . . 53.4 — 1927 .. 71.5 — 71.5 — 1931 .. 78.2 — 78.2 — Árið 1908' var fyrst farið að kjósa skriflega í hverjum hreppi, en áður var kosið munnlega á einum stað í hverju kjördæmi. Var þá auð- vitað erfiðara að sækja kjörfund og kosningahluttaka því fremur lítil. Þó kemst hún upp í um og yfir helming kjósenda við síðustu munnlegu kosningarnar um og eftir aldamótin. En þegar farið er að kjósa í hverj- um hreppi vex hluttakan mikið og mest var hún 78.4 °/o við kosningarn- ar 1911. Síðan varð hún minni, einkum 1916, er kvenfólkið bættist við í kjósendatöluna, og 1918, er aðkvæðagreiðsla fór fram um sambands- lögin. Þá varð hluttakan aðeins 43.8 o/o af kjósendatölunni og stafaði það af því, hve mótstaðan gegn þeim var lítil. Síðan 1923 hefur hluttakan aftur verið miklu meiri. Með lögum 1923 var leyft að kjósa bréflega heima hjá sér vegna elli og vanheilsu, en sú heimild var felld burt árið eftir. Aftur á móti var með lögum 1925 leyft að hafa fleiri en einn kjörstað í hreppi og hefur sú heimild verið notuð á ýmsum stöðum svo sem sjá má á töflu II (bls. 21). Við kosningarnar 1931 var kosninga- hluttakan töluvert meiri heldur en 1927, eða 78.2 o/o á móts við 715 o/o og næstum jafnmikil eins og hún hefur mest verið áður (1911). Þegar litið er sérstaklega á hluttöku karla og kvenna í kosning- unum, þá sést, að hluttaka kvenna er minni en hluttaka karla. Við kosningarnar 1931 greiddu atkvæði 85.0 °/o af karlkjósendum, en ekki nema 72.1 °/o af kvenkjósendum. Við kosningarnar 1927 voru bæði þessi hlutföll lægri, hluttaka karlkjósenda 81.5 o/o og kvenkjósenda 62 5°/o Framförin er því töluvert meiri meðal kvenna en karla. I töflu II (bls. 21) sést, hve margir af kjósendum hvers kjördæmis hafa greitt atkvæði við kosningarnar 1931. Hve mikil kosningahluttakan var hlutfallslega í einstökum kjördæmum sést á 1. yfirlitstöflu (bls. 8). Mest var kosningahluttakan í Hafnarfirði (89.6 °/o), en minnst var hún í Reykjavík (63.7 °/o). Mesta kosningahluttaka karla var í Norður-Þingeyjar- sýslu (96.4 o/o), en kvenna í Hafnarfirði (86.7 °/o), en minnst kosningahlut- taka karla var í Gullbringu- og Kjósarsýslu (79.0 °/o) og kvenna í Eyja- fjarðarsýslu (61.5 °/o). I engu kjördæmi var hluttaka karla í kosning-

x

Hagskýrslur um kosningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.