Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1932, Síða 9
Alþingiskosningar 1930 — 1931
7
Á öllu Þar sem alkvæða- Á öilu
landinu greiðsla fór fram landinu
1874 .... ... 19.6% 1908 .. 75.7 % 72.4 %
1880 .... . .. 24.7 — 1911 .. 78.4 — 78.4 —
1886 .... . .. 30.6 - 1914 .. 70.o — 55.8 —
1892 .... ... 30 5 — 1916 .. 52.6 — 49.2 —
1894 .... . . . 26.4 — 1918 . . 43.8 — 43.8 —
1900 .... . . . 48.7 — 1919 .. 58.7 — 45.4 —
1902 .... . . . 52.6 — 1923 .. 75.6 — 70.9 —
1903 .... . . . 53.4 — 1927 .. 71.5 — 71.5 —
1931 .. 78.2 — 78.2 —
Árið 1908' var fyrst farið að kjósa skriflega í hverjum hreppi, en
áður var kosið munnlega á einum stað í hverju kjördæmi. Var þá auð-
vitað erfiðara að sækja kjörfund og kosningahluttaka því fremur lítil. Þó
kemst hún upp í um og yfir helming kjósenda við síðustu munnlegu
kosningarnar um og eftir aldamótin. En þegar farið er að kjósa í hverj-
um hreppi vex hluttakan mikið og mest var hún 78.4 °/o við kosningarn-
ar 1911. Síðan varð hún minni, einkum 1916, er kvenfólkið bættist við
í kjósendatöluna, og 1918, er aðkvæðagreiðsla fór fram um sambands-
lögin. Þá varð hluttakan aðeins 43.8 o/o af kjósendatölunni og stafaði það
af því, hve mótstaðan gegn þeim var lítil. Síðan 1923 hefur hluttakan
aftur verið miklu meiri. Með lögum 1923 var leyft að kjósa bréflega
heima hjá sér vegna elli og vanheilsu, en sú heimild var felld burt árið
eftir. Aftur á móti var með lögum 1925 leyft að hafa fleiri en einn
kjörstað í hreppi og hefur sú heimild verið notuð á ýmsum stöðum svo
sem sjá má á töflu II (bls. 21). Við kosningarnar 1931 var kosninga-
hluttakan töluvert meiri heldur en 1927, eða 78.2 o/o á móts við 715 o/o
og næstum jafnmikil eins og hún hefur mest verið áður (1911).
Þegar litið er sérstaklega á hluttöku karla og kvenna í kosning-
unum, þá sést, að hluttaka kvenna er minni en hluttaka karla. Við
kosningarnar 1931 greiddu atkvæði 85.0 °/o af karlkjósendum, en ekki
nema 72.1 °/o af kvenkjósendum. Við kosningarnar 1927 voru bæði þessi
hlutföll lægri, hluttaka karlkjósenda 81.5 o/o og kvenkjósenda 62 5°/o
Framförin er því töluvert meiri meðal kvenna en karla.
I töflu II (bls. 21) sést, hve margir af kjósendum hvers kjördæmis
hafa greitt atkvæði við kosningarnar 1931. Hve mikil kosningahluttakan
var hlutfallslega í einstökum kjördæmum sést á 1. yfirlitstöflu (bls. 8).
Mest var kosningahluttakan í Hafnarfirði (89.6 °/o), en minnst var hún í
Reykjavík (63.7 °/o). Mesta kosningahluttaka karla var í Norður-Þingeyjar-
sýslu (96.4 o/o), en kvenna í Hafnarfirði (86.7 °/o), en minnst kosningahlut-
taka karla var í Gullbringu- og Kjósarsýslu (79.0 °/o) og kvenna í Eyja-
fjarðarsýslu (61.5 °/o). I engu kjördæmi var hluttaka karla í kosning-