Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1932, Blaðsíða 13

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1932, Blaðsíða 13
Alþingishosningar 1930—1931 11 aði af heimakosningunum. Bréfleg atkvæði vegna fjarveru voru þá í hæsta lagi tæpl. 4 o/o. Bréfleg atkvæðagreiðsla af þeim ástæðum hefur því verið meiri en áður við síðustu kjördæmakosningar. í töflu II (bls. 21) er sýnt, hve mörg bréfleg atkvæði voru greidd í hverju kjördæmi við kosningarnar 1931 og í töflu III (bls. 22) hvernig þau skiftast niður á hreppana. En í 1. yfirliti (bls. 8) er samanburður á því, hve mörg koma á hvert 100 atkvæða í hverju kjördæmi. Lang- hæstur er Hafnarfjarðarkaupstaður. Þar hefur nál. lh hluti greiddra at- kvæða (14.8 °/o) verið bréfleg atkvæði. Þar næst er Barðastrandarsýsla (með 12.9 o/o). Aðeins rúml. ]/3 hluti bréflegu atkvæðanna, 1040, voru frá konum, en 1931 frá körlum. Af hverju 100 karla og kvenna, sem greitt hafa atkvæði, hafa kosið bréflega: Karlar Konur Karlar Konur 1916 .... . 2.2 % 1.0 % 1927 ... . . 8.7 o/o 1.7 % 1919 .... . 3.0- 1.8 — 1931 ... . . 9.4 — 2.6 — 1923 .... . 8.7 — 17.6 — 5. Ógild atkvæði. Bulletins nuls. Síðan alþingiskosningar urðu skriflegar hafa ógild atkvæði við kjördæmakosningar orðið 1908 .... .. 333 eða 3.9 »/o 1919 .. . . 429 eða 3.0 % 1911 ... . . . 438 — 4.3 — 1923 .. . . 784 — 2.5 — 1914 .... . . . 135 — 1.8 — 1927 .... 919 — 2.8 — 1916 ... . . . 680 — 4.8 - 1931 .... 1064 — 2.7 — Nokkrir kjósendur hafa skilað auðum seðli og því sjálfir ætlazt til að atkvæði sitt yrði ónýtt. Við kosningarnar 1931 voru 189 atkvæða- seðlar auðir eða 17.8 °/o af þeim seðlum, sem ógildir voru metnir. Allur þorri ógildu seðlanna er aftur á móti svo til kominn, að kjósendunum hefur mistekist að gera atkvæðaseðil sinn svo úr garði sem kosninga- Iögin mæla fyrir. Hve mörg atkvæði urðu ógild í hverju kjördæmi við kosningarnar 1931 sést á töflu V (bls. 30), en á 1. yfirliti (bls. 8) er sýnt, hve miklum hluta þau námu af öllum greiddum atkvæðum í kjördæminu. Til- tölulega flest ógild atkvæði voru í Austur-Skaftafellssýslu (6.3 °/o), en tiltölulega fæst í Norður-Þingeyjarsýsla (0.2 o/o).

x

Hagskýrslur um kosningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.