Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1932, Side 8

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1932, Side 8
6 Alþingisliosningar 1930—1931 alveg fellt burtu og hækkaði þá kjósendatalan svo, að hún komst upp í hérumbil 45 °/o og hefur það hlutfall haldist síðan að heita má. Af kjósendatölunni 1931 voru 24314 eða 48.0 °/o karlar, en 26 303 eða 52.0 o/o konur. Koma þá 1082 kvenkjósendur á móts við hvert 1000 karlkjósenda. Er það meiri munur heldur en er á iölu allra karla og kvenna á landinu. Stafar það af því, að innan við kosningaraldur (25 ár) eru heldur fleiri karlar heldur en konur, en á kosningaraldri eru konur þeim mun fleiri heldur en karlar. Þegar kjósendatölunni er deilt með tölu kosinna þingmanna, koma á hvern þingmann 1279 kjósendur árið 1927, 1220 árið 1923, 937 árið 1919, 394 árið 1914, 260 árið 1903 og 206 árið 1874. Tala kjósenda í hverju kjörkæmi við kosningarnar 1931 sést á töflu II (bls. 21). Sést þar, að kjósendatala kjördæmanna er mjög mis- jöfn, enda kjósa sum einn þingmann, önnur tvo og eitt (Reykjavík) fjóra. En þótt tillit sé tekið til þingmannatölunnar í hverju kjördæmi, verður samt mjög mishá kjósendatala, sem kemur á hvern þingmann. Að baki sér höfðu þingmennirnir 1931 færri en 800 kjósendur....... 5 þingmenn 800-1000 — 9 — 1000—1500 — 9 — 1500—2000 — 7 — yfir 2000 — 5 — Minnst kjósendatala á þingmann kemur á Seyðisfirði, 492, og þar næst í Austur-Skaftafellssýslu 649. Aftur á móti kemur hæst kjósenda- tala á þingmann í Reykjavík, 3118 á hvern, og þar næst á Akureyri 2042. í Reykjavík eru 12 473 kjósendur, sem senda 4 menn á þing, en í 12 kjördæmum (Seyðisfirði, Austur-Skaftafellssýslu, Norður-Múlasýslu, Strandasýslu, Norður-Þingeyjarsýslu, Vestur-Húnavatnssýslu, Dalasýslu, Rangárvallasýslu, Vestur-Skaftafellssýslu, Mýrasýslu, Skagafjarðarsýslu og ísafirði) eru samtals 12 430 kjósendur, sem senda 15 menn á þing. 2. Kosningahluttaka. Participation des électeurs. Við kosningarnar sumarið 1931 greiddu alls atkvæði 39 605 manns eða 78.2 °/o af allri kjósendatölunni á landinu. I þetta sinn fór atkvæða- greiðsla fram í öllum kjördæmum á landinu, en áður hefur það eigi all- sjaldan komið fyrir, að engin atkvæðagreiðsla hefur farið fram í fleiri eða færri kjördæmum, vegna þess að þar hefur verið aðeins einn fram- bjóðandi. Síðan 1874 hefur kosningahluttakan verið:

x

Hagskýrslur um kosningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.