Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1932, Qupperneq 14
12
Alþingisliosningar 1930—1931
6. Frambjóðendur og þingmenn.
Candidats et représentants élus.
Við kosningarnar 1931 voru alls í kjöri 104 frambjóðendur. Eru
það fleiri frambjóðendur en nokkru sinni áður. I 10 kjördæmum var
frambjóðendatala tvöföld á við þingmannssæti, í 1 kjördæmi 2V2-föld, í
12 kjördæmum þreföld og í 4 kjördæmum fjórföld.
Af 36 kjördæmaþingmönnum, sem sátu á alþingi veturinn 1931,
buðu 31 sig fram aftur í sama kjördæmi, og voru 24 þeirra endurkosnir,
2 buðu sig fram í öðru kjördæmi og náðu báðir kosningu, en aðeins 3
drógu sig alveg í hlé. Við kosningarnar 1931 voru kosnir 10 nýir
þingmenn. Af þeim höfðu 8 aldrei setið á þingi fyr, en 2 höfðu verið
þingmenn áður, þótt ekki hefðu þeir átt sæti á næsta þingi á undan
kosningunni (Jakob Möller og Einar Arnórsson).
Eftirfarandi yfirlit sýnir, hve margir af frambjóðendunum við 5 síð-
ustu kosningarnar bjuggu í kjördæminu, sem þeir buðu sig fram í, og
hve margir utan þess: Frambjóðend ur alls Kosnir
1916 1919 1923 1927 193 i 1916 1919 1923 1927 1931
Innanhéraðs 61 53 51 57 61 25 27 24 24 26
Utanhéraðs 16 15 26 34 43 9 7 12 12 10
Samtals 77 68 77 91 104 34 34 36 36 36
Við kosningarnar 1931 hafa tiltölulega fleiri utanhéraðsmenn boðið
sig fram heldur en áður. Meiri hluti þeirra, 28 af 43, var búsettur í
Reykjavík, og náðu 7 þeirra kosningu.
Eftir atvinnu skiftust frambjóðendur og þingmenn þannig:
Frambjóðendur Þingmenn
1916 1919 1923 1927 1931 1916 1919 1923 1927 1931
Bændur 27 28 30 29 19 13 12 14 16 n
Sjávarútvegsmenn 2 2 3 4 6 1 )) 3 4 3
Iðnaðarmenn 2 2 1 3 3 )) )) 1 » »
Verzlunar- og bankamenn 9 9 11 9 15 4 8 5 7 6
Verkamenn og verklýðsfél. starfsmenn )) )) )> 3 6 )) )) )) 1 ))
Blaðamenn og embætfisl. menntamenn 5 5 10 8 20 3 3 5 2 2
Embættis- og sýslunarmenn 32 22 22 35 35 13 11 8 6 14
Samtals 77 68 77 91 104 34 34 36 36 36
Bændur og embættismenn eru fjölmennastir bæði meðal frambjóð-
enda og þingmanna. Við kosningarnar 1931 fjölgaði embættismönnum
mjög meðal þingmanna.
1 töflu V (bls. 30) er getið um fæðingarár og dag hvers fram-
bjóðanda við kosningarnar 1931. Eftir aldri skiftust þeir þannig;