Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1932, Blaðsíða 40

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1932, Blaðsíða 40
Hagstofa Islands gefur út eftirfarandi rit: I. Hagskýrslur íslands. Þar eru birtar ítarlegar skýrslur um þau efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út í sjálf- stæðum heftum og fást þau keypt einstök. Af Hagskýrslunum er út komið: Verzlunarskýrslur 1912—1929. Búnaðarskýrslur 1912—1929. Alþingiskosningar 1908—1931. Fiskiskýrslur og hlunninda 1912—1929. íslenzk mannanöfn 1. des. 1910. Barnafraeðsla 1909—1920. Þjóðaratkvæðagreiðsla um sambandslög 1918. Mannfjöldaskýrslur 1911—1925. Skýrslur um skipakomur 1913—1917. Manntal á íslandi 1. des. 1920. Sparisjóðir 1911—1925. Dómsmálaskýrslur 1913—1925. Menn geta gerzt áskrifendur að Hagskýrslunum með því að snúa sjer beint til Hagstofunnar. Áskriftargjald er 5 krónur um árið. II. Hagtíðindi, mánaðarblað. Eru þar birtar mánaðarskýrslur um inn- flutning og útflutning, smásöluverð og ýmislegt fleira, sem ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslunum. Ennfremur bráða- birgðaskýrslur um ýmislegt, sem síðar koma um ítarlegri skýrslur. Af Hagtíðundum eru komnir út 16 árgangar (1916—1931). Áskrift- argjald er 1 króna og 50 aurar um árið. III. Árbók Hagstofu íslands. Er þar birtur útdráttur úr þeim talfræði- upplýsingum, sem til eru á öllum sviðum, án þess farið sé mikið út í einstök atriði. Ennfremur eru þar allinargar töflur með alþjóðlegum yfirlitum. Af árbókinni er út kominn 1. árg. 1930. Kostar 3 krónur. IV. Manntal á íslandi árið 1703 tekið að tilhlutun Árna Magnús- sonar og Páls Vídalín. Er það prentað í heild sinni og er gert ráð fyrir, að eitt hefti komi út á ári. Komin eru út 8 hefti, samtals 40 arkir að stærð. Byrjað var á Qullbringusýslu og er komið norður í Eyjafjarðarsýslu. Hvert hefti kostar 3 krónur, en menn geta gerzt áskrifendur að öllu ritinu og greiðist þá hvert hefti við móttöku.

x

Hagskýrslur um kosningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.