Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1947, Side 17

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1947, Side 17
Alþingiskosningar 1946 15 8. Úthlutun uppbótarþingsæta. Distribution des mandats supplémentaires. Hvernig atkvæði hafa fallið i hverju kjördæmi, sést á töflu IV (bls. 25—31). En þegar landskjörstjórn hafa borizt skýrslur um kosning- arnar í kjördæmunurii, skal hún úthluta allt að 11 uppbótai'þingsætum til jöfnunar milli þingflokka þannig, að hver þeirra fái þingsæti í sem fyllstu samræmi við atkvæðatölu sína við kosningarnar. En þingflokkur telst í þessu sambandi aðeins sá flokkur, sem komið hefur að þingmanni i einhverju kjördæmi. Atkvæðatala þeirra 4 flokka, scm fengu þingmenn kosna i kjördæm- um og tala hinna kosnu þingmanna var þessi: Kosnir Meðaltal Atk\æði þingmcnn á þingmann Sjálfstæðisflokkur ........ 26 428 19 1 ;!90IS/m Framsóknarflokkur........ 15 429 13 1 186n/n Sósialistaflokkur ......... 13 049 5 2 6094/s Alþj’ðuflokkur ............ 11 914 4 2 978'/> Lægsta meðaltalið leTst hlutfallstala kosningarinnar og miðast lit- hlutun uppbótarþingsæta við liana. Hve mörg uppbótarþingsæti hver þingflokkur skuli hljóta, finnst með því að deila í atkvæðatölu hans með tölu þingmanna flokksins kosinna í kjördæmum, fyrst að viðbættum 1, síðan 2, þá 3 o. s. frv., unz síðustu útkomurnar geta á þennan hátt ekki orðið jafnari hlutfallstölunni. Uppbótarþingsætunum er nú úthlut- að lil þingflokka eftir útkomunum við þessar deilingar, þannig að fyrsta uppbótarþingsætið fellur til þess þingflokks, sem hæsta á útkomuna, annað til þess, sem á hana næsthæsta, og síðan áfram eftir hæð út- komutalnanna, unz eitt uppbótarþingsæti hefur fallið á hverja þeirra. Þó er hér á gerð sú takmörkun, að ekki er úthlutað nema 11 uppbótarþing- sætum, hversu mörgum sætum sem þá kynni að vera eftir að úthluta til þess að ná sem mestum jöfnuði við hlutfallstöluna fyrir alla þingflokka. í töflu V A (bls. 31) er sýnt, hvernig uppbótarþingsætum hefur verið úthlutað til flokkanna við kosningarnar 1946 og jafnframt sýnl, hvernig úthlutunin hefði orðið, ef haldið hefði verið áfram að úthluta uppbótarþingsætum þangað lil fenginn hefði verið sem mestur jöfnuður við Frainsóknarflokkinn. Af uppbótarþingsætunum, sem úthlutað var 1946 hlaut Alþýðul'Iokk- urinn 5, Sósialistaflokkurinn 5 og Sjálfstæðisflokkurinn 1. Varð þá þing- mannatala þessarra flokka og meðaltal atkvæða á hvern þingmann svo sem hér segir: Pingmcnn Sjálfstæðisflokkur........... 20 Framsóknartlokkur ........... 13 Sósialistaflokkur............ 10 Alþýðuflokkur ................ 9 Atkvæöi á þiugmnnn 1 321’/fi 1 186"/is 1 3049/io 1 3237/»

x

Hagskýrslur um kosningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.