Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1954, Side 16

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1954, Side 16
14 Alþingiskosningar 1953 nú úthlutað til þingflokka eftir útkomunum við þessar deilingar, þannig að fyrsta uppbótarþingsætið fellur til þess þingflokks, sem liæsta á útkomuna, annað til þess, sem á liana næsthæsta, og síðan áfram eftir hæð útkomutalnanna, unz eitt uppbótarþingsæti hefur fallið á hverja þeirra. Þó er hér á gerð sú takmörkun, að ekki er úthlutað nema 11 uppbótarþingsætum, hversu mörgum sætum sem þá kynni að vera eftir að úthluta til þess að ná sem mestum jöfnuði við hlutfallstöluna fyrir alla þingflokka. í töflu Y A (bls. 33) er sýnt, hvernig uppbótarþingsætum hefur verið útlilutað til flokkanna við kosningarnar 1953, og jafnframt sýnt, livernig úthlutunin hefði orðið, ef haldið hefði verið áfram að úthluta uppbótarþingsætum þangað til fenginn hefði verið sem mestur jöfnuður við Framsóknarflokkinn. Af uppbótarþingsætunum, sem útlilutað var 1953, hlaut Sósíalistaflokkurinn 5, Alþýðuflokkurinn 5 og Þjóðvarnarflokkurimi 1. Yarð þá þingmannatala flokk- og meðaltal atkvæða á hvern þingmann svo sem hér segir: Þing- Atkvæðamngu menn á þingmann Sjálfstœðisflokkur 21 1 36810/al Framsóknarflokkur 16 1 05915/18 Sósíalistaflokkur 7 1 7744/, Alþýðuflokkur 6 2 015% Þjóðvamarflokkur 2 1 333% Ef halda hefði átt áfram að úthluta uppbótarþingsætum, þangað til fenginn væri sem mestur jöfnuður fyrir alla þingflokka, þá hefði, eins og sjá má af töflu V A (bls. 33), orðið að úthluta 17 þingsætum í viðbót eða alls 28 uppbótarþing- sætum. Af þessum 17 viðbótarsætum liefðu 6 farið til Sjálfstæðisflokksins, 5 til Alþýðuflokksins, 4 til Sósíalistaflokksins og 2 til Þjóðvarnarflokksins. Til þess að finna, hverjir frambjóðendur þingflokks, sem ekki hafa náð kosn- ingu í kjördæmum, skuli fá uppbótarþingsæti, er farið cftir persónulegri atkvæða- tölu þeirra í kjördæmunum, en þó getur þingflokkurinn einnig haft nokkur áhrif á það með því að senda landskjörstjóm skrá yfir frambjóðendur flokksins í þeirri röð, er flokkurinn óskar, að þeir hljóti uppbótarsæti. Ekki koma til greina sem uppbótarþingmenn fyrir sama flokk fleiri en einn frambjóðandi í kjördæmi, og er það sá, sem liæsta hefur persónulega atkvæðatölu, ef um fleiri en cinn er að gera. Framhjóðendum hvers flokks, sem til greina gcta komið sem uppbótarþingmenn, raðar landskjörstjórn sumpart beinlínis eftir atkvæðatölu þeirra, sumpart eftir atkvæðatölunni í hlutfalli við gild atkvæði, og sumpart, ef svo ber undir, eftir óskum hlutaðeigandi þingflokks. Efstur verður sá, sem hefur hæsta atkvæðatölu, næstefstur sá, sem að honum frágengnum liefur hæsta atkvæðatölu í hlutfalli við gild atkvæði í kjördæminu, þriðji sá, sem þingflokkurinn kann að hafa sett efstan á raðaðan landslista, fjórði sá, sem hefur hæsta atkvæðatölu þeirra, sem eftir eru, fimmti, sem hefur hana hlutfallslega hæsta, sjötti sá, sem er næstefstur á röðuðum landslista o. s. frv. Eftir þessari röð eru svo valdir uppbótarþingmenn flokksins. í töflu V B (bls. 34) er sýnt, hvernig frambjóðendum Alþýðuflokksins, Sósíalista- flokksins og Þjóðvarnarflokksins var raðað að þessu leyti. — Þcss er að geta, að við kosningarnar 1953 var ekki um að ræða röðun á landslista af hálfu neins þeirra flokka, er fengu menn kosna á þing. í töflu V C (bls. 35) er skýrt frá, hvaða frambjóðendur hlutu uppbótarþing- sætin og hverjir urðu varamenn.

x

Hagskýrslur um kosningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.