Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1957, Síða 7
Irmgangur.
Introduction.
1. Tala kjósenda.
Number of registered electors.
í lögum nr. 80/1942, um kosningar til Alþingis, er svo fyrir mælt, að almennar,
reglulegar alþingiskosningar skuli fara fram síðasta sunnudag í júnímánuði. Almenn*
ar kosningar höfðu síðast farið fram sumarið 1953, og umboð þingmanna átti þar
af leiðandi, án þingrofs, að standa til sumars 1957, en Alþingi var rofið frá og með
24. júní 1956 og efnt til nýrra kosninga þann dag. Var þetta gert með forsetabréfi
27. marz 1956.
Við alþingiskosningarnar 24. júní 1956 var tala kjósenda á kjörskrá 91 618
eða 56,8% af íbúatölu landsins, miðað við það, að bún hafi verið 161 300 um mið-
bik ársins. Síðan kosningaréttur var aukinn síðast, með stjórnarskrárbreytingunni
1934, hefur kjósendatalan verið sem hér segir: ^ ^ t °/ í
kjósenda fbúatölu
1934, alþmgiskosningar.......................... 64 338 56,4
1937, alþingiskosningar......................... 67 195 57,1
1942, alþingiskosningar, 5. júli............ 73 440 59,7
1942, alþingiskosningar, 18. október............ 73 560 59,7
1944, þjóðaratkvæðagreiðsla .................... 74 272 58,5
1946, alþingiskosningar......................... 77 670 59,0
1949, alþingiskosningar......................... 82 481 58,7
1952, forsetakjðr ............................. 85 877 58,2
1953, alþingiskosningar........................ 87 601 58,4
1956, alþingiskosningar......................... 91 618 56,8
Lækkun sú á kjósendahlutfallinu, sem þessar tölur sýna, stafar af ýmsum
ástæðum. Aðalástæða lækktmarinnar frá því í alþingiskosningum 1953 er sjálf-
sagt sú, að fæðingatalan hefur verið mjög há á seinni árum, en hins vegar hefur
tala einstaklinga, sem náð hafa 21 árs aldri og því bætzt í kjósendahópinn, verið
tiltölulega lág, vegna lágrar fæðingatölu á árunum 1933—1935. Afleiðingin er sú,
að hlutdeild þess hluta landsmanna, sem kosningarétt hefur, verður minni. í öðru
lagi gætir þess hér, að kjörstjórnir telja nú yfirleitt ekki lengur í kjósendatölunni
dána menn og þá, sem öðlast ekki kosningarétt fyrr en eftir kjördag á kjörskrár-
árinu. í þriðja lagi hefur sennilega kveðið minna að því í síðustu kosningum en
áður, að menn væru á kjörskrá í fleiri en einu umdæmi. Kjörskrár byggðust nú í
fyrsta sinn á kjörskrárstofnum Þjóðskrárinnar — samkvæmt ákvæðum 15. gr.
laga nr. 31/1956 um þjóðskrá og almannaskráningu — og hefur það sennilega
fækkað tvítöldum kjósendum, þó að hin nýja tilhögun þessara mála takmarki ekki
á neinn hátt rétt sveitarstjórna og annarra hlutaðeigenda til að ákveða, hverjir
skuli vera á kjörskrá og hverjir ekki.
í skýrslu Hagstofunnar um alþingiskosningarnar 1949 (nr. 129) er, á bls. 5,
yfirlit um kjósendatölu við allar alþingiskosningar og þjóðaratkvæðagreiðslur frá