Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1957, Page 11
Alþingiskosmngar 1956
9
verið notuð á ýmsum stöðum, svo sem sjá má í töflu II (bls. 17). í Reykjavík var
51 kjördeild, en annars staðar voru þær flestar 6, á Akureyri. Eftir tölu kjördeilda
skiptust hreppar og kaupstaðir þannig:
1 kjördeild ......................'... 159
2 kjördeildir .......................... 35
3 20
4 12
6 ..................................... 1
51 kjördeild ............................. 1
228
3. Atkvæðagreiðsla utanlireppsmanna.
Voters casting votes outside their communes.
Samkvæmt kosningalögunum má kjörstjórn leyfa manni, sem ekki stendur á
kjörskránni, að greiða atkvæði, ef hann sannar það með vottorði sýslumanns, að
hann standi á annarri kjörskrá í kjördæminu og að hann hafi afsalað sér kosn-
ingarétti þar. Við kosningarnar 1956 greiddu 162 menn atkvæði í öðrum hreppi
heldur en þar, sem þeir stóðu á kjörskrá, og var það 0,2% af þeim, sem atkvæði
greiddu alls. En með því að slíkar utanhreppskosningar geta aðeins átt sér stað í
sýslum, en ekki í kaupstöðum, sem eru sérstök kjördæmi, er réttara að bera tölu
þessara atkvæða saman við greidd atkvæði utan kaupstaðarkjördæma. Með því
móti verður hlutfallstalan 1956 0,4%, en hún var 0,6% við alþingiskosningar
1953, 0,5% við forsetakjör 1952, 0,9% við alþingiskosningar 1949 og 0,7% við
alþingiskosningar 1946.
Af þeim, sem kusu á kjörstað utanhrepps 1956, voru 89 karlar, en 73 konur.
í töflu I (bls. 16) er sýnt, hve margir kusu á þennan hátt í hverju kjördæmi á land-
inu, og í 1. yfirliti (bls. 7), live margir það hafa verið í samanburði við þá, sem
atkvæði greiddu alls í kjördæminu. Tiltölulega flestir hafa það verið í Norður-
Þingeyjarsýslu (2,5%).
4. Bréfleg atkvæði.
Votes by letter.
Þeir, sem staddir eru, eða gera ráð fyrir að vera staddir, utan þess hrepps eða
kaupstaðar, þar sem þeir standa á kjörskrá, þá er kosning fer fram, og ekki neyta
hins almenna réttar til þess að greiða atkvæði á öðrum kjörstað í sama kjördæmi,
mega greiða atkvæði bréflega fyrir kjörfund í skrifstofu sýslumanns eða bæjar-
fógeta, hjá hreppstjóra, um borð í íslenzku skipi, hjá íslenzkum sendiráðum og
útsendum ræðismönnum erlendis, svo og lijá íslenzkum kjörræðismönnum, sem
eru af íslenzku bergi brotnir og skilja íslenzku. Við kosningarnar 1956 greiddu
bréflega atkvæði 8 083 menn eða 9,6% af þeim, sem atkvæði greiddu alls. Við
kosningar frá og með 1934 hefur þetta hlutfall verið:
1934 7,9% 1946 12,7%
1937 1949 7,9 „
1942 5/7 11,4 „ 1953 9,1 „
1942 ">/l0 6,5 „ 1956 9,6 „