Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1971, Page 7

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1971, Page 7
Inngangur. Introduction. 1. Tala kjósenda. Number of voters on register. Með lögum útgefnum 7. apríl 1971 var ákveðið, að almennar kosningar til Alþingis skyldu fara fram sunnudaginn 13. júní 1971. Nœstu alþingiskosningar á undan höfðu farið fram 11. júní 1967. Við alþingiskosningar 13. júní 1971 var tala kjósenda á kjörskrá 118 289 eða 57,6% af íbúatölu landsins. Hér er miðað við, að íbúatalan hafi verið 205 200 í júní 1971. Síðan kosningaaldur var færður niður í 21 ár og 20 ár með stjórnarskrár- breytingum 1934 og 1968, hefui kjósendatalan verið sem hér segir: Tala 1 % af kjósenda íbúatölu 1934, alþingiskosmngar.......................... 64 338 56,4 1937, alþingiskosningar......................... 67 195 57,1 1942, alþingiskosningar 5. júlí ............... 73 440 59,7 1942, alþingiskosningar 18. október ........... 73 560 59,7 1944, þjóðaratkvæðagreiðsla .................... 74 272 58,5 1946, alþingiskosningar......................... 77 670 59,0 1949, alþingiskosningar......................... 82 481 58,7 1952, íbrsetakjör ............................. 85 877 58,2 1953, alþingiskosningar........................ 87 601 58,4 1956, alþingiskosningar......................... 91 618 56,8 1959, alþingiskosningar 28. júní............... 95 050 55,3 1959, alþingiskosningar 25. og 26. okt...... 95 637 55,2 1963, alþingiskosningar 9. júní................ 99 798 53,9 1967, alþingiskosningar 11. júni.............. 107 101 53,9 1968, forsetakjör ............................ 112 737 55,9 1971, alþingiskosningar 13. júní............... 118 289 57,6 Helztu ástæður fyrir lækkun kjósendahlutfallsius frá alþingiskosningum 1942 til 1967 voiu þessar: í fyrsta lagi hlutfallslega há fæðingartala síðustu tvo áratugina. í öðru lagi hafa í siðari kosningum ekki verið með í kjósendatölum dánir og þeir, sem hafa fengið kosningarrétt eftir kjördag á kosningaárinu. í þriðja lagi hafa lík- indin til þess, að menn séu á kjörskrá í fleiri en einni kjördeild, faiið stórum minnk- andi, eftir að farið var að byggja kjörskrár á kjörskrárstofum Þjóðskrárinnar, eða frá og með 1956. Við forsetakjör 1968 og alþingiskosningar 1971 hækkaði kjósenda- hlutfallið verulega. Aðalástæðan fyrir þessari hækkun er lækkun kosningaaldurs úr 21 ári í 20 ár (sbr. stjórnskipunarlög, nr. 9/1968, og lög nr. 48/1968), en þessi lækkun kom fyrst til framkvæmda við forsetakjör 1968. Ástæðan fyrir hækkun kjósenda- hlutfallsins frá 1968 til 1971 er hins vegar fyrst og fremst sú, að tiltölulega fjöl- mennÍT árgangar náðu 20 ára aldri á árunum 1968—1971, og enn fremur hafði fæðingartala farið lækkandi siðustu árin.

x

Hagskýrslur um kosningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.