Hagskýrslur um húsnæðismál - 01.01.1968, Side 5

Hagskýrslur um húsnæðismál - 01.01.1968, Side 5
Formáli. Preface Skýrslur þær, sem hér hirtast, eru byggðar á upplýsingum þeim um íbúðar- húsnæði landsmanna, sem aflað var við aðalmanntalið 1960. Töflur þessa heftis eru að formi til allmikið breyttar frá því, sem var í Húsnæðisskýrslum 1. desember 1950 (hagskýrslunr. II, 15), en upplýsingasvið þeirra er svipað. Þó eru töflur þessa heftis miklu ýtarlegri, eins og marka má af því, að töfludeild þess tekur yfir 77 blaðsíður, en töfluhluti Húsnæðisskýrslna 1950 var 34 síður. Munurinn stafar aðallega af því, að í þessu hefti eru látnar í té sundurgreindar upplýsingar um íbúðarhúsnæði í hverri kirkjusókn Reykjavíkur fyrir sig, og utan hennar er einnig um að ræða rniklu fyllri staðarlegar aðgreiningar en voru í Húsnæðisskýrslum 1950. Því miður hefur orðið mikill dráttur á útkomu þessa rits, og stafar það aðallega af tvennu. Annars vegar af ofhleðslu starfa í Skýrsluvélum rikisins og Reykja- víkurborgar, sem leiddi til þess, að nokkurra ára bið varð á því, að forrit til úr- vinnslu á vélspjöldum húsnæðisupplýsinga fengjust gerð. Hin aðalástæða drátt- arins var sú, að Hagstofan varð að láta ýmis önnur þýðingarmeiri verkefni ganga fyrir úrvinnslu húsnæðisskýrslna 1960. Upplag þessa heftis er 900, og verð 90 kr. Hagstofa íslands, í apríl 1968. Klemens Tryggvason

x

Hagskýrslur um húsnæðismál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um húsnæðismál
https://timarit.is/publication/1176

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.