Hagskýrslur um húsnæðismál - 01.01.1968, Síða 7
Inngangur.
Introduction.
I. Skýrslueyðublaðið o. fl.
The questionnaire etc.
Við allsherjarmanntalið 1. desember 1960 var, auk upplýsinga um fólkið sjálft,
aílað upplýsinga um húsnæði þess. Gerð var manntalsskýrsla fyrir hvert hús, þar
sem allir íbúar þess skyldu tilgreindir með tilheyrandi upplýsingum, en á bakhlið
eyðublaðsins skyldi svarað spurningum um húsið sjálft og íbúðir í því. Þykir rétt að
birta hér þessar spurningar eyðublaðsins, til þess að sem gleggst mynd fáist um
grundvöll húsnæðisupplýsinga manntalsins 1960 (skástrik greinir á milli einstakra
spurninga viðkomandi atriðis hverju sinni):
A. Spurningar um húsið sjálft:
1. Er húsið íbúðarhús á jörð, einbýlishús, sérstætt fjölbýlishús eða hluti sam-
byggingar (t. d. raðhús eða hluti af fjölbýlishúsi með eigin aðahnngang).
2. Er húsið sumarbústaður, lierskáli eða annað bráðabirgðahúsnæði.
3. Ef húsið er ekki notað einvörðungu til íbúðar, þá skal tilgreina til hvers
annars það er notað, og hve stór lxluti þess hér um bil.
4. Úr hvaða byggingarefni eru útveggir hússins ofan kjallara (steinsteypa,
vikurholsteinar, aðrir steyptir hleðslusteinar, hlaðið úr tilhöggnu grjóti,
timbur múrliúðað, timbur járnklætt, torfbær o. fl. Ef ekki hrein tegund, skal
rita nánari skýringu).
5. Hæð hússins: Hve margar hæðir eru í húsinu fyrir utan kjallara og ris/Er
kjallari í húsinu/Tala íbúðarherbergja í honum/Er rishæð á húsinu/Tala
íbúðarherbergja í risi.
6. Aldur hússins (hér um bil, ef óvíst er, hvenær byggingu þess lauk).
7. Er miðstöðvarkerfi í húsinu.
8. Til upphitunar er aðallega notað: Rafmagn/Kol (koks)/01ía/Jarðhiti/Fljótandi
gas.
9. Fær húsið rafmagn: Frá almenningsrafveitu/Frá einkarafstöð.
10. Er vatn leitt í húsið: Frá almenningsveitu/Frá einkaveitu.
11. Er skolpleiðsla frá húsinu.
B. Spurningar um hverja íbúð hússins fyrir sig:
1. Númer íbúðar (komi heim við númer íbúðar á þeirri síðu eyðublaðsins, þar
sem íbúarnir eru taldir).
2. Staður íbúðar í húsinu (kj., 1. hæð, 2. hæð, o. s.frv., rishæð).