Þjóðmál - 01.09.2008, Blaðsíða 89
Þjóðmál HAUST 2008 87
John.Locke,.sem.um.er.fjallað.í.bókinni,.
fæddist. í. Somerset. á. Englandi. árið. 1632.
og. lést. 1704 .. Hann. nam. læknisfræði. en.
fékkst.einnig.við.margvísleg.önnur.vísindi ..
Skrif. hans. um. þekkingarfræði,. stjórnmál,.
menntamál,. hagfræði. og. guðfræði.
mörkuðu. raunar. tímamót. í.öllum.þessum.
greinum .. Með. þeim. hófst. sigurganga.
raunhyggju.í.þekkingarfræði.og.frjálslyndrar.
einstaklingshyggju. í. stjórnmálaheimspeki.
meðal.enskumælandi.þjóða ..Með.þeim.urðu.
líka. þáttaskil. í. viðhorfum. lærdómsmanna.
til. heimspekinnar,. því. Locke. mótaði. þá.
afstöðu. til. hennar. að. hún. væri. fyrst. og.
fremst. gagnrýni. og. greining. á. hugsun.
manna.en.það.væri.verkefni.reynsluvísinda.
að.lýsa.því.hvernig.veruleikinn.er ..
Þegar. bók. Woolhouse. var. gefin. út.
var. hálf. öld. liðin. frá. því. síðast. kom. út.
vandað. fræðilegt. rit. um. ævi. Lockes .. Það.
var. bókin. John Locke, A biography. eftir.
Maurice. Cranston .1. Á. þessari. hálfu. öld.
hefur.ýmislegt.efni.sem.áður.lá.í.ólesnum.
handritum. verið. gert. aðgengilegt .. Mest.
munar. um. að. sendibréf. Lockes,. sem. eru.
meira.en.3600.talsins,.hafa.verið.gefin.út.
í.8.bindum ..
Locke. var. hirðusamur. um. handrit. sín.
og.bréf.og.fyrir.vikið.eru.miklar.heimildir.
til. bæði. um. hugsun. hans. og. daglegt. líf ..
Mér. er. til. efs. að. meira. sé. vitað. um. líf.
nokkurs. annars. manns. frá. þessum. tíma ..
Ævisöguritarar. hafa. því. af. nógu. að. taka ..
Þótt. sagan. sem. Cranston. skrifaði. sé. álíka.
löng. og. bók. Woolhouse. og. þótt. þessar.
bækur. séu. báðar. til. mikillar. fyrirmyndar.
hvað. varðar. vandaða. sagnfræði. og. skýra.
framsetningu.inniheldur.hvor.um.sig.mikið.
efni. sem. er. ekki. í. hinni .. Cranston. leggur.
meiri. áherslu.á. tengsl.Lockes.við. sögulega.
atburði. en. Woolhouse. segir. betur. frá. því.
hvernig. hugsun. hans. þróaðist .. Það. er. því.
vel.þess.virði.að.lesa.báðar.ævisögurnar .
1.Longmans,.Green.and.Co ..New.York.og.London,.1957 .
*
Þótt.miklar.heimildir. séu. til.um.Locke.er.
erfitt.að.lýsa.manninum ..Hann.er.bæði.of.
fjölhæfur.og.margbrotinn.til.að.hægt.sé.að.
skipa.honum.í.neinn.flokk.og.svo.dulur.og.
gætinn. að. lesendur. hans. grunar. að. hann.
hafi.aldrei.sagt.hug.sinn.allan,.enda.hætt.við.
að.þá.hefði.honum.vafist.tunga.um.höfuð ..
Þeir. sem. hófu. baráttuna. fyrir. trúfrelsi,.
tjáningarfrelsi. og. borgaralegum. réttindum.
nutu.þessara.gæða.ekki.sjálfir.nema.að.litlu.
leyti.og.lengst.af.ævinni.var.Locke.bannað.
að.boða.margt.af.því.sem.hann.hugsaði.um.
stjórnmál.og.trúarbrögð ..
*
Þegar. saga. heimspeki. og. vísinda. er. sögð.
er. sautjándu. öldinni. lýst. sem. miklum.
framfaratíma .. Á. fyrri. helmingi. hennar.
lögðu.Galíleo,.Descartes.og.fleiri.hornstein.
að. heimsmynd. vísindanna .. Á. seinni. hluta.
hennar. héldu. Newton,. Boyle,. Locke. og.
fleiri. því. starfi. áfram .. Alls. konar. fræði.
blómstruðu.sem.aldrei.fyrr.og.það.þarf.að.
fara.aftur.til.Grikklands.á.fjórðu.öld.f ..Kr ..
til.að.finna.dæmi.um.jafn.frumlega.og.djarfa.
heimspeki.og.þá.sem.Thomas.Hobbes,.René.
Descartes,.Benedict.Spinoza.og.John.Locke.
færðu.í.letur.á.þessari.framfaraöld ..
En. sautjánda. öldin. var. ekki. aðeins. öld.
framfara. í. andlegu. lífi .. Hún. var. líka. öld.
galdrabrenna,. óhugnaðar. og. grimmdar-
verka ..Á.fyrri.hluta.hennar.(1618–48).geis-
aði. þrjátíu. ára. stríðið. í. Norður-Evrópu ..
Mótmælendur. voru. ofsóttir. í. löndum.
kaþólikka. og. kaþólikkar. í. löndum. mót-
mælenda .. Mikilvægasta. úrlausnarefnið. í.
stjórnmálum.aldarinnar.var.að.finna. leiðir.
til. að. ólíkir. trúflokkar. gætu. lifað. saman. í.
friði .
Seinni. hluti. aldarinnar. var. tími.
sólkonungsins,.Loðvíks.XIV,. í.Frakklandi ..