Þjóðmál - 01.09.2008, Blaðsíða 19
Þjóðmál HAUST 2008 17
Visna vöðvar frelsisins
ef þeir eru ekki notaðir?
Sumir vilja líkja frelsinu við vöðva heilans. Ég er sammála þessari samlíkingu.
Hvaða þýðingu hefur frelsið fyrir velmegun
og hvað er það sem fær velmegun til að vaxa
og dafna? Það er frelsið, kæru lesendur.
Frelsi einstaklinga sem svo verður að frelsi
heillar þjóðar. Frelsið er vöðvabúnt heilans
og þegar það dafnar með ágætum þá eykst
velmegun okkar allra. Það er þó einn hængur
á þessu máli, það þarf að nota frelsið. Það
þarf að koma í veg fyrir að þetta vöðvabúnt
heilans visni. Með því að iðka frelsið og nota
vöðvabúnt heilans þá er hægt að koma í veg
fyrir að þessir dýrmætu vöðvar visni og þar
með að velmegun okkar minnki. Ef auka á
velmegun okkar allra þá þarf að standa vörð
um frelsið, viðhalda því og oft að kaupa það
dýru verði. Sífellt þarf að vinna að því að
auka frelsi því frelsisaukning á, andstætt
frelsisskerðingu, oft erfitt uppdráttar. Þegar
frelsið og sjálfsábyrgðin hverfur hjá ein-
staklingum og þjóðum, þá munu þær sjálf-
krafa verða fátækari og fátækari.
Innganga í Evrópusambandið (ESB)
eða upptaka myntar annarra ríkja mun
óhjákvæmilega þýða frelsisskerðingu. Það
er vegna þessa sem Evrópusambandið dregst
sífellt meira og meira aftur úr velmegun
bæði Bandaríkjamanna og Íslendinga,
alveg andstætt þeim markmiðum Evrópu-
sambandsins sem sett voru í Lissabon árið
2000, oft nefnd Lissabon 2000 markmið
ESB. Þau mæla svo fyrir að hagkerfi
Evrópusambandsins eigi að verða ríkasta og
samkeppnishæfasta hagkerfi heimsins árið
2010. Samtök iðnaðar og verslunar í Evrópu,
EuroChambres, ákváðu strax að fylgja eftir
framvindu árangurs þessara markmiða og
að kynna svo reglulega þann árangur sem
Evrópusambandið næði. EuroChambres
er félagsskapur 19 milljón fyrirtækja í 45
löndum Evrópu og hafa samtökin starfað
á vettvangi viðskipta, iðnaðar og efnahags-
mála Evrópu síðan 1958.
Gunnar Rögnvaldsson
Þrífst frelsið í faðmi
ESB og evru?
Fyrsta og annað farrými hagkerfa