Morgunblaðið - 07.09.2015, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2015
Opið: 8
:00-18
:00
mánud
. til fim
mtud.
8:00-1
7:00
föstud
aga
Er bílrúðan
brotin eða
skemmd?
Við erum sérfræðingar í
bílrúðuskiptum og viðgerðum
á minni rúðutjónum.
Erum í samvinnu við öll
tryggingafélög landsins.
Stórhöfða 37 | 110 Reykjavík | Sími 586 1900 | framrudur@simnet.is | bilrudur.is
Áratuga reynsla og framúrskarandi þjónusta
Það segir meira en mörg orð umstjórnmálaflokkinn Bjarta
framtíð að á rúmlega 50 manna árs-
fundi hans um helgina var kosið í 40
sæti í 80 manna stjórn.
Því til viðbótar var kosinnstjórnarformaður og formaður
og úthlutað formennsku í þing-
flokki.
Björt framtíð leitar skýringa áþví hvers vegna flokkurinn
mælist nú með nánast ekkert fylgi í
könnunum, en getur ekki verið að
skýringin sé einfaldlega sú að flokk-
urinn stendur ekki undir nafni?
Getur ekki verið að almenningurhafi áttað sig á að Björt fram-
tíð er ekki stjórnmálaflokkur í þeim
skilningi að á bak við hina kjörnu
fulltrúa sé fjöldi starfandi flokks-
manna, grasrót, eins og það er oft
kallað?
Ætli það geti ekki hafa runniðupp fyrir fólki að Björt fram-
tíð er líkari lítilli klíku sem hrekur
formanninn út án kosninga og plott-
ar svo nýjan inn, einnig án kosn-
inga?
Stjórnmálaflokkur án flokks-manna sem taka þátt í flokks-
starfinu er vitaskuld í miklum
vanda.
Og vandinn minnkar varla viðþað að gera út um ágreining á
sellufundum bak við luktar dyr.
Þess háttar starfsaðferðir erutæpast uppskriftin að bjartri
framtíð stjórnmálaflokks.
Stjórnmálaflokkur
án grasrótar
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 5.9., kl. 09.00
Reykjavík 10 rigning
Bolungarvík 7 skýjað
Akureyri 13 rigning
Nuuk 2 þoka
Þórshöfn 7 léttskýjað
Ósló 10 skúrir
Kaupmannahöfn 12 skúrir
Stokkhólmur 12 heiðskírt
Helsinki 15 skúrir
Lúxemborg 7 léttskýjað
Brussel 12 skýjað
Dublin 10 léttskýjað
Glasgow 3 heiðskírt
London 12 skýjað
París 13 upplýsingar bárust ek
Amsterdam 12 skúrir
Hamborg 12 skúrir
Berlín 13 skýjað
Vín 15 skýjað
Moskva 12 skúrir
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 12 heiðskírt
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 20 þrumuveður
Róm 22 skýjað
Aþena 27 heiðskírt
Winnipeg 18 skýjað
Montreal 17 heiðskírt
New York 21 léttskýjað
Chicago 23 léttskýjað
Orlando 24 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
6. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:25 20:29
ÍSAFJÖRÐUR 6:24 20:39
SIGLUFJÖRÐUR 6:07 20:22
DJÚPIVOGUR 5:53 19:59
Laufey Rún
Ketilsdóttir var
kjörin formaður
Sambands ungra
sjálfstæðismanna
og Elvar Jónsson
varaformaður á
43. sambands-
þingi félagsins,
sem fram fór í
Vestmannaeyjum
um helgina.
Í stjórnmálaályktun sem SUS
sendi til fjölmiðla að þingi loknu er
lagt til að þrepaskiptur tekjuskattur
verði lagður af, sala áfengis verði
gerð frjáls og lögum verði breytt
hvar sem þurfa þykir til þess að
breyting geti orðið í verslun og við-
skiptum samhliða nýjum tækni-
lausnum á borð við leigubílavett-
vanginn Über, fasteignaleigu-
markaðinn Airbnb og fleira.
Þá hvetur SUS til þess að frekari
skref verði tekin í átt að breytingum
sem hjálpa fíklum með því að draga
úr refsingum, og með því megi einn-
ig draga úr valdi fíkniefnasala. Hvet-
ur fundurinn stjórnvöld einnig til
þess að endurskoða stefnu varðandi
heilbrigðismál með það að leiðarljósi
að einstaklingar hafi meira val þegar
kemur að heilbrigðisþjónustu.
Laufey nýr
formaður
SUS
Laufey Rún
Ketilsdóttir
„Ég er komin í röðina á Dunkin’
Donuts, aðeins að leyfa mér, og svo
er það hamborgari í kvöld,“ segir
Arna Ýr Jónsdóttir, tvítug Kópa-
vogsmær, en hún var krýnd Ungfrú
Ísland um helgina. Arna fer því sem
fulltrúi Íslands í Miss World sem
haldið verður í Kína á næsta ári.
„Titillinn kom mér mjög á óvart,
ég var alveg í skýjunum og átti ekki
von á þessu.
Næsta ár verður undirlagt af
skemmtilegum ævintýrum þar sem
hápunkturinn verður ferð til Kína
og keppnin Miss World þar sem ég
verð að minnsta kosti mánuð.“
Arna Ýr segir að hún hafi ákveðið
við skráningu að það sem kæmi í
kjölfarið á keppninni myndi fara í
forgang, mánaðarferð til Kína á
næsta ári setur því plön hennar
ekki í uppnám. „Ferðalagið að titl-
inum var mjög skemmtilegt og fróð-
legt. Ég mætti á allar æfingarnar í
sumar og það var æðislegt að kynn-
ast stelpunum. Það var svolítið
stress í síðustu viku en þegar dóm-
araviðtölin voru búin náði ég að
slaka á.“
Þrátt fyrir sigurinn var Arna far-
in heim af galakvöldinu fyrir mið-
nætti. „Ég er enginn djammari í
mér. Ég er kósítýpan,“ segir hún,
en næst á dagskrá hjá Ungfrú Ís-
land er ferð til Tenerife með kær-
astanum Agli Trausta Ómarssyni.
Hamborgarar og kleinuhringir
Arna Ýr Jónsdóttir krýnd Ungfrú Ísland Sigurinn kom henni á óvart
Morgunblaðið/Eggert
Glæsileg Kórónan komin á sinn stað.