Morgunblaðið - 07.09.2015, Page 9

Morgunblaðið - 07.09.2015, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2015 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ef fram heldur sem horfir gæti þurft að endurbyggja aðstöðuna við Jarðböðin við Mývatn vegna mik- illar aðsóknar. Fram kom í Morgunblaðinu síðastliðinn laugardag að mikil uppbygging ætti sér nú stað í hótelrekstri í Mývatnssveit og má nefna að framkvæmdir eru að hefjast við nýtt 90 herbergja hótel Fosshótela. Gunnar Atli Fríðuson, fram- kvæmdastjóri Jarðbaðanna við Mý- vatn, áætlar að um 130 þúsund gest- ir muni sækja jarðböðin í ár. Það sé um 20% fjölgun milli ára. Til samanburðar komu 65 þúsund gestir í böðin 2008 og 75 þúsund gestir 2010. Stefnir því í að aðsókn- in muni tvöfaldast á sjö árum. Gunnar Atli segir að þrátt fyrir leiðinlegt veður í Mývatnssveit í sumar, kalt veður og hvasst, hafi ferðamenn verið duglegir við að heimsækja böðin. „Erlendir ferðamenn gera sínar ferðaáætlanir, fylgja þeim og mæta. Fjölgunin er í kringum 20% milli ára. Hún er fyrst og fremst í kom- um erlendra ferðamanna.“ Kominn tími á framkvæmdir Gunnar Atli segir aðspurður að með sama áframhaldi verði gest- irnir orðnir 200 þúsund á ári innan fárra ára. Núverandi húsakostur anni ekki slíkum mannfjölda. „Það er ekki ósennilegt að þetta markmið náist. Það hangir náttúr- lega margt á spýtunni. Það er að mörgu að hyggja. Það þarf að byggja upp vegakerfið og flug- kerfið. Við erum svolítið bráðlát, myndi ég segja, við Íslendingar. Við hlaupum af stað og auglýsum landið en erum kannski ekki í stakk búin að taka á móti öllum þessum fjölda ferðamanna. Nú er kominn tími til að gera eitthvað og láta hendur standa fram úr ermum og fram- kvæma. Það sama gildir ef við ætlum að taka á móti 200 þúsund gestum í jarðböðunum. Þá erum við að horfa á nýtt húsnæði. Þetta húsnæði mun í núverandi mynd ekki anna 200 þúsund gestum eins og þeir dreifast yfir nú árið,“ segir Gunnar Atli. Hann segir nýtt húsnæði ekki komið á hönnunarstig. Menn séu að „kasta á milli sín hugmyndum“. „Menn eru að horfa til framtíðar og láta sig dreyma,“ segir hann. Spurður hversu mikil fyrirmynd Bláa lónið sé í þessu efni bendir Gunnar Atli á að Bláa lónið eigi hlut í Jarðböðunum á Mývatni. Þessir aðilar eigi í góðu samstarfi. Stefnir í 130 þúsund gesti í ár Morgunblaðið/Baldur Arnarson Jarðböðin Núverandi húsakostur dugar ekki lengur til.  Hraður vöxtur mun kalla á nýtt húsnæði fyrir Jarð- böðin við Mývatn  Útlit er fyrir að tvöfalt fleiri gestir komi í ár en komu árið 2008 Gunnar Atli Fríðuson „Framkvæmdir eru á fullu en einmitt núna erum við að tyrfa áhorfenda- brekkuna. Framkvæmdirnar fóru seinna af stað en við ætluðum, en þetta gengur vel í blíðunni. Nú er loksins komið sumar á Norðurlandi,“ segir Áskell Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Landsmóts hesta- manna, en mótið verður haldið á Hól- um í Hjaltadal 27. júní - 3. júlí 2016. Kostnaður vegna framkvæmda á svæðinu fyrir Landsmótið er áætl- aður um 100 milljónir króna. Lagður verður nýr kynbótavöllur og ný áhorfendabrekka, kerruplan, plan undir þjónustu, aðalvöllur lagfærður, reiðleiðir og upphitunarbrautir lag- færðar. Auk þess verður ljósleiðari lagður inn á svæðið, rafmagn tengt inn á tjaldsvæði og ýmislegt fleira. Á Hólum er mikill húsakostur. Brúnastaðir nefnist bygging sem hýsir hvort tveggja hesthús og reið- höll, þar eru 189 eins hests stíur og í suðurenda hennar er 800 fermetra reiðhöll. Í gamla hesthúsinu er pláss fyrir 20-30 hross, áföst því hesthúsi er Skólahöllin, sem er einnig 800 fer- metra reiðhöll. Þráarhöllin sem er stærst er um 1.545 fermetrar að stærð og þar er einnig áhorfenda- stúka. thorunn@mbl.is Hólastaður búinn undir Landsmót hesta- manna næsta sumar „Deilan snýst um nokkra tugi millj- óna. Í heildarsamhenginu er það lág fjárhæð en ef ekki næst samkomulag er daglegu lífi fjölda fatlaðs fólks stefnt í voða. Í raun má segja að allt að 60 manns verði sviptir frelsinu til að stjórna lífi sínu,“ segir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður vel- ferðarnefndar Alþingis. Eygló Harð- ardóttir velferðarráðherra hefur ekki svarað ítrekuðum beiðnum Morgunblaðsins um stöðu mála um notendastýrða persónulega aðstoð, eða NPA, sem er í uppnámi. Sam- band íslenskra sveitarfélaga vill að ríkið borgi 30% í stað 20% eins og áð- ur var og deilan er í hnút. Fatlaðir eru uggandi yfir auknum kostnaði við NPA vegna nýrra kjarasamninga og segir Ellen Calmon, formaður Ör- yrkjabandalagsins, að fatlað fólk sem nýti sér NPA-þjónustu hafi öðlast meira sjálfstæði með verkefninu. „Auk þess eru fjölmargir sem geta hreinlega ekki lifað af án NPA, fólk sem þarf sólarhringsþjónustu. Það sem er mikilvægast í þessari umræðu er að fólk fái þjónustu við hæfi, ríki og sveitarfélög verða fyrst og fremst að standa við þann hluta samkomulags- ins sem snýr að fólkinu,“ segir hún. Þverpólitísk sátt hefur verið um verkefnið og vonar Sigríður að sú samstaða sé ekki að bresta. „Guð- mundur Steingrímsson lagði fram til- lögu um NPA á sínum tíma. Guð- bjartur Hannesson skipaði verkefnis- stjórn og gerði Guðmund að formanni hennar. Þegar Eygló tók við lyklunum að ráðuneytinu steig hún það óheillaskref að ýta Guð- mundi út úr verkefninu og setti þar með verkefnið í flokkspólitískan bún- ing..“ „Sviptir frelsinu til að stjórna lífi sínu“  Deilan um NPA-þjónustuna er í hnút Brynja Björg Halldórsdóttir brynja@mbl.is Árni Þór Árnason sjósundskappi lagði af stað frá Dover í Bretlandi yfir Ermarsundið kl. 23.00 í gær- kvöldi. Hann kvaðst í samtali við Morgunblaðið stefna á að klára sundið á 13-14 klukkustundum, þannig að hann yrði kominn til Frakklands um hádegisbil í dag. Sundið lagðist vel í Árna, en hann er að eigin sögn í góðu formi. „Æfingar fyrir sundið hafa verið stífar, bæði í sjó og sundlaug. Síð- ustu vikuna hef ég þó verið í svo- kallaðri „virkri hvíld“ segir Árni og vísar þá til áreynslulítilla æfinga sem hvíla líkamann. Hann segir veðuraðstæður í sundinu erfiðar og því hafi hann ákveðið að synda um nóttina, í kol- niðamyrkri. „Veður versnar sem líður á vikuna og því notum við tækifærið,“ útskýrir Árni og bætir við að sjórinn sé um 16 gráðu heit- ur. Með honum í för verður vel upp- lýstur bátur og nokkrir félagar til aðstoðar. Árni Þór hefur stundað sjósund af krafti í um ellefu ár, en hann reyndi síðast við Ermarsundið árið 2011. Hann þurfti því miður að hætta sundinu vegna meiðsla en kemur nú tvíefldur til Dover. Hægt er að fylgjast með Árna synda á síðunni www.cspf.co.uk/ tracking Morgunblaðið/Eggert Sjósundskappi Árni Þór stefnir á að koma í mark á 13-14 klukkustundum. Árni Þór lagður af stað í Ermarsundið  Í góðu formi eftir stífar æfingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.