Morgunblaðið - 07.09.2015, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 07.09.2015, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2015 Alfons Finnsson alfons@mbl.is Sú hugmynd að opna gisti-heimili hér í Ólafsvík hefurblundað með okkur lengi,“segja hjónin Rut Einars- dóttir og Sigurjón Hilmarsson, sem í ársbyrjun keyptu húsnæði sem áður hýsti Líkamsræktarstöðina Sólar- sport. „Þegar við heyrðum að til stæði að hætta rekstri stöðvarinnar ákváðum við að slá til, kaupa hús- næðið og breyta því í gistiheimili.“ Þau fengu húsnæðið afhent 5. janúar og næstu fjóra mánuði stóðu þau í ströngu við að breyta húsnæð- inu; rífa allt niður og endurnýja að innan. „Verkið tók fjóra mánuði, en það eina sem við hreyfðum ekki voru sturturnar,“ segja þau og lýsa framkvæmdunum nánar: „Við sett- um upp milliveggi og bjuggum til herbergi af ýmsum stærðum auk þess sem við settum upp eldunar- aðstöðu og borðsal og útbjuggum aðstöðu fyrir gesti til að þvo óhrein föt.“ Frábærar móttökur Í gistiheimilinu Við hafið eru fimmtán herbergi og 44 rúm. „Við höfum fengið frábærar móttökur. Gistinæturnar eru orðnar 3.300 og er það meira en björtustu vonir okk- ar stóðu til. Allt var fullbókað í sjö- tíu nætur og stundum höfum við þurft að vísa gestum annað því við höfum ekki getað tekið á móti fleir- um,“ segir Rut. Þau hjónin segjast hafa orðið margs vísari eftir að þau hófu rekst- ur gistiheimilisins. Sérstaklega finnst þeim lærdómsríkt að sjá hvernig erlendir ferðamenn upplifa Ísland. „Ég hafði gaman af því þeg- ar ferðamönnum sem voru hér á Snæfellsnesi var boðið að fara hring um eina fiskvinnsluna til að skoða hvað verið væri að gera í svona fyr- irtæki. Þeir komu síðan alsælir til baka með fisk með sér sem þau höfðu fengið og elduðu hann hérna í eldunaraðstöðunni hjá okkur um kvöldið. Þetta voru erlendir ferða- menn sem aldrei höfðu bragðað fisk öðruvísi en keyptan út úr búð. Öðrum ferðamönnum sem voru hérna þótti fiskurinn svo girnilegur að þeir fóru út í búð og keyptu sér fisk sem þeir elduðu líka hérna,“ segir Rut. Henni hefur komið einna mest Ferðamennirnir komu með fisk í soðið Í vor létu hjónin Rut Einarsdóttir og Sigurjón Hilmarsson gamlan draum rætast og opnuðu gistiheimilið Við hafið í Ólafsvík. Fullbókað hefur verið í sumar og þau horfa björtum augum til vetrarins. Norðurljósin heilla erlenda ferðamenn. Setustofan Það væsir ekki um Lilju í bjartri og notalegri setustofunni. Borðsalurinn Gestir hafa stundum tekið sig til og útbúið gómsætar máltíðir sem þeir bera fram í borðsalnum fyrir gesti og starfsfólk gistiheimilisins.nu. Ekkert kynlíf takk, við erum Bretar og sambönd okkar blómstra alveg án þess, skrifar The Sunday Times grínaktugt í lítilli frétt um YouGov-- könnun sem komin er út í skýrslu með yfirskriftinni The State of the UK’s Relationships 2015, eða Staða sambanda í Bretlandi 2015. Í ljós kom að meira en helmingur fullorð- inna stundaði ekki kynlíf síðastlið- inn mánuð. Rúmlega þriðjungur á aldrinum 25 til 34 ára var sömu- leiðis skírlífur og sama átti við um 43% para með börn og 26% barn- lausra para. Þátttakendur voru 6.500 manns. Í skýrslunni er gefið í skyn að á sama tíma og á yfirborðinu hverfist þjóðfélagið æ meira um kynlíf séu margir hamingjusamir þótt ekki sé mikið fjör í svefnherbergjum þeirra. Næstum sjö af tíu töldu líkamlegt aðdráttarafl og gæði kynlífs ekki vera meðal þriggja þátta sem væru mælikvarði á styrk sambandsins. Heiðarleiki og góð tjáskipti vógu þyngra. „Á meðan kynlíf getur ver- ið neistinn sem kveikir bálið, án til- lits til aldurs, er kynlíf sjaldan eldsneytið sem viðheldur bálinu,“ segir í skýrslunni. Könnunin afhjúpaði aukið framhjáhald en þó sögðu 43% para samband þeirra vera það besta sem þau hefðu átt á ævinni. Helm- ingurinn kvaðst sjaldan eða aldrei rífast og 87% mátu sambandið gott. Alls sögðust 46% gagnkyn- hneigðra vera ánægð með kynlífið miðað við 38% lesbía, homma eða tvíkynhneigðra. „Niðurstöður okkar munu stappa stálinu í fólk sem heldur að það sé að missa af einhverju af því að kynlíf þeirra er ekki eins og í Fimmtíu gráum skuggum,“ lét einn aðstandenda könnunarinnar hafa eftir sér. YouGov-könnun á parasamböndum í Bretlandi Meta heiðarleika meira kynlíf Losti Dakota Johnson og Jamie Dorn- an í hlutverkum sínum sem lostafulla parið í Fimmtíu gráum skuggum. Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Jóhannes S.Kjarval Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna. Listmunauppboð í Gallerí Fold Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is mánudaginn 7. september og þriðjudaginn 8. september uppboðin hefjast kl. 18 Forsýning í Gallerí Fold mánudag kl. 10–17, þriðjudag kl. 10–17 (þau verk sem boðin eru upp á þriðjudag) Margir þeirra sem ég hef að-stoðað í starfi mínu semsálfræðingur hafa leitað til mín af því að þeim fannst þeir ekki vera að ná árangri í lífi sínu, ýmist í einkalífi, starfi eða á öðrum sviðum. Allir vilja ná árangri en mörgum finnst þeim ekki vera að takast það. Ráðleggingar um að- ferðir til þess að ná betri árangri berast almenningi úr ýmsum áttum eins og sjálfshjálparbókum, fyrir- lestrum, vefsíðum, útvarpi og sjón- varpi. Staðreyndin er sú að margar algengustu aðferðirnar sem fólk notar endurtekið til þess að ná ár- angri eru ekki studdar af niður- stöðum rannsókna, standast ekki skoðun almennrar skynsemi og eru ýmist gagnslausar eða hamla ár- angri. Skýr framtíðarsýn Reynsla mín og þekking á þessu sviði segir mér að það sem almennt heldur mest aftur af árangri fólks er ekki óheppni, leti, aumingja- skapur, ónógur viljastyrkur eða skortur á innri hæfileikum, heldur það að allt of margir nota óskyn- samlegar og ógagnlegar aðferðir til þess að ná árangri. Góðu fréttirnar eru að til er mikil haldbær þekking á því hvaða aðferðir skila fólki sem bestum árangri. Hér gefst aðeins rými til þess að skoða einn hinna mikilvægu þátta sem skilar fólki árangri, en það er skýr framtíðarsýn. Þeir sem ná raunverulegum árangri sjá framtíð sína fyrir sér og skilgreina þá út- komu sem þeir vilja fá áorkað, þannig að þeir geti beint kröftum sínum að þeim markmiðum. Það einkennir marga sem segjast ekki vera að ná árangri að þeir hafa ekki skýra framtíðarsýn um hvað þeir vilja. Hvernig geturðu ákveðið hvaða veg þú ferð ef þú veist ekki hvert þú ert að fara? Hvernig get- urðu vitað hvort þú hefur komist þangað sem þú vilt ef þú ákvaðst aldrei hvert þú ætlaðir að fara? En hvað er það sem þú raun- verulega vilt fá áorkað í lífinu? Mörgum finnst erfitt að svara þeirri spurningu. Ein megin- ástæðan er rík tilhneiging fólks til þess að efast um um að það sem það virkilega vill og þráir sé mögu- legt. Þessar efasemdir, ásamt öðr- um hamlandi þáttum, gera það að verkum að allt of margir búa sér aldrei til skýra og háleita fram- tíðarsýn sem inniheldur það sem þeir raunverulega þrá og langar mest í. Ef þú hefur ekki þegar gert það hvet ég þig til að búa þér til þína eigin heillandi og háleita fram- tíðarsýn. Leyfðu þér að dreyma og sjá hvað það er sem þú þráir í raun mest í lífinu, jafnvel þótt þú hafir efasemdir í augnablikinu um að geta náð þangað. Gerðu þetta í ein- rúmi, helst þar sem þú hefur gott næði og frið frá hversdagslegu áreiti, og leitaðu inn á við. Beindu athyglinni að þér og þinni persónu- legu sýn á framtíðina. Þín framtíð- arsýn á að byggjast á því sem þú þráir, því sem skiptir þig mestu máli og þínum gildum, en ekki hug- myndum þínum um hvað aðrir eða samfélagið metur sem árangur. Sjáðu fyrir þér bæði hverju þú hef- ur áorkað og hver þú ert í framtíð- arsýninni. Með því hefurðu tekið mikilvægt skref í áttina að því að ná þeim árangri sem þú virkilega vilt í lífinu. Morgunblaðið/Kristinn Af hverju næ ég ekki árangri í lífinu? Heilsupistill Haukur Sigurðsson sálfræðingur  Heilsustöðin, sálfræði- og ráðgjafarþjón- usta, Skeifunni 11a, Reykjavík. www.heilsustodin.is Dagdraumar Leyfðu þér að dreyma og sjá hvað þú þráir mest í lífinu, helst þar sem þú hefur gott næði og frið frá hversdagslegu áreiti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.