Morgunblaðið - 07.09.2015, Page 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2015
Markmiðið er að verða gamall maður og þá er um að gera aðbúa í haginn fyrir framtíðina, þótt ungur sé. Að taka þátt ífélagsmálum er kjörin leið til þess og starf með Öldungaráði
Hafnarfjarðarbæjar hefur verið virkilega skemmtilegt en þar leitum
við leiða og komum með hugmyndir að því hvernig líf eldra fólks hér í
bænum getur orðið enn betra,“ segir Guðmundur Fylkisson sem er
fimmtugur í dag.
Ísfirðingurinn Guðmundur var tvítugur að aldri þegar hann var
ráðinn í lögregluna vestra. Þar stóð hann vaktina í ellefu ár. Seinna lá
leiðin suður og síðasta árið hefur Guðmundur starfað hjá Lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu þar sem hann hefur þann starfa að leita
að ungmennum sem ekki skila sér til síns heima enda þá hugsanlega
illa á vegi stödd. „Þetta eru um tuttugu krakkar í hverjum mánuði
sem ég grennslast fyrir um eða kem til aðstoðar með einhverju móti.
Starfið er lærdómsríkt og gefandi og krakkarnir og foreldrarnir oft
mjög þakklátir fyrir hjálpina,“ segir Guðmundur.
Afmælisdagsins kveðst Guðmundur ætla að njóta í botn. Í gær-
kvöldi bauð hann börnum sínum, bróður og móður í kvöldmat hvar ís-
lenskt lambalæri var á borðum. „Þetta var íslensk framsóknarveisla,“
segir afmælisbarnið og hlær. Og lífið brosir líka við okkar manni, sem
í dag ætlar að bregða undir sig betri fætinum og fara á flakk. Óráðið
er hvert leiðin liggur – en á fallegum haustdegi eru allir vegir færir.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Hafnfirðingur Guðmundur og Katrín Tekla dóttir hans við Lækinn.
Í öldungarráði en
er þó ungur enn
Guðmundur Fylkisson er 50 ára í dag
N
orma Elísabet Ritchie
Samúelsdóttir fædd-
ist í Glasgow í Skot-
landi 7.9. 1945. „Eftir
seinni heimsstyrjöld-
ina, árið 1946, bauð móðurafi minn,
Valdimar Björn Valdimarsson,
mömmu að koma til Íslands og hitta
ættingjana. Þá var ég átta mánaða
og bróðir minn James Valdimar
fjögurra ára. Pabbi var þá að ganga
frá því að sækja um íbúð í Glasgow
fyrir fjölskylduna, en þar sem hann
gat ekki sýnt eiginkonuna og börn-
in sem voru á leið í þetta frí fékk
hann ekki íbúðina. Ílentist Ritchie-
fjölskyldan því í Vesturbæ Reykja-
víkur hjá afa, sem var um þær
mundir að kaupa íbúð, og bjuggum
við öll saman næstu áratugina.
Afi Valdimar Björn var ættfræð-
ingur og vörubílstjóri. Hann gaf út
stærsta ættfræðirit sem þá hafði
verið tekið saman, fjögurra binda
rit um Arnardalsætt og Eyr-
ardalsætt. Verk þetta vann hann í
áratug, prýtt myndum sem safnað
var saman. Þetta starf hans var
þrekvirki, sem hann stundaði ásamt
vörubílakeyrslu hjá Þrótti á dag-
inn.“
Norma fór eitt ár í verslunarskól-
ann Skerrýs í Glasgow 1962-63.
Hún vann á skrifstofum, m.a. hjá
Skeljungi, Orku, Agnari Norðfjörð
& co, vann í fiskvinnslu og eitt ár
sem au pair í París.
Ritstörf
Útgefnar bækur Normu eru:
Næstsíðasti dagur ársins (undir-
titill dagbók húsmóður í Breiðholt-
inu), 1978, Tréð fyrir utan gluggann
minn, ljóð, 1982, báðar gefnar út af
Máli og menningu. Marblettir í
regnbogans litum, ljóð, 1987, Gang-
an langa, ljóð, 1990, og Fundinn
lykill, smásögur 1991, útgefandi
bókaútgáfan Hildur, Óþol, 1991,
Konufjallið og sumarblómin smáu,
saga, 1997, Mömmublús, minninga-
ljóð, 1999, Stálfljótið og fjögurra
Norma E. Samúelsdóttir, rithöfundur og myndlistarmaður - 70 ára
Stórfjölskyldan Norma ásamt börnum og barnabörnum að gera sér glaðan dag í Grasagarðinum.
Stolt af sínum skosku
og írsku rótum
Rithöfundarnir Norma Samúels-
dóttir og Þorsteinn Antonsson.
Sólveigarstaðir Jakob Henrik Lopatka
fæddist 10. janúar 2015 kl. 15.07 á sjúkra-
húsinu á Selfossi. Hann vó 3.520 g og var
52 cm langur. Foreldrar hans eru Aleks-
andra Mróz og Pawel Adam Lopatka.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
• Konica Minolta fjölnotatækin (MFP) eru
margverðlaunuð fyrir hönnun, myndgæði, notagildi,
umhverfisvernd og áreiðanleika.
• Bjóðum þjónustusamninga, rekstrarleigusamninga og
alhliða prentumsjón.
• Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki,
stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt
að gera kröfur um gæði og góða þjónustu.
• Kjaran er viðurkenndur söluaðili á
prentlausnum af Ríkiskaupum.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
BLI A3 MFP Line of the Year:
2011, 2012, 2013, 2014
bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki
BLI Pro Award:
2013, 2014