Morgunblaðið - 07.09.2015, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þótt þú berir ábyrgð þýðir það
ekki að þú þurfir að gera allt sjálf/ur og
megir ekki þiggja aðstoð. Ef þú efast,
skaltu fá aðra til þess að sannfæra þig.
20. apríl - 20. maí
Naut Það gæti komið upp óánægja innan
heimilisins eða fjölskyldunnar í dag. Dag-
urinn hentar vel til að ræða málin við þá
minnstu í fjölskyldunni.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þetta er góður dagur til að njóta
samvista við vini. Oftar en ekki er nauð-
synlegt að ræða út um hlutina svo allir
séu sáttir. Reyndu málamiðlanir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gerðu eitthvað sem eykur álit ann-
arra á þér í dag. Yndisleg manneskja gæti
komið í heimsókn í eftirmiðdaginn.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nú er komið að því að þið reynið
eitthvað sem þið hafið aldrei upplifað áður,
t.d. fjallgöngu. Reynið að gera öllum eitt-
hvað til góða en munið að þið getið ekki
bjargað öllum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Allt er breytingum háð og því
skaltu ekki blekkja sjálfa/n þig með því að
þú sért búin/n að skipa málum til eilífðar.
Börnin eru ljúf sem lömb þessa dagana.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér hefur tekist vel upp við end-
urskipulagningu starfs þíns. Kannski ert þú
of fljótfær og gerir eitthvað vanhugsað í
erfiðri stöðu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þótt þú getir verið sveigj-
anleg/ur þýðir það ekki að þú eigir að láta
stjórnast af tilfinningum annarra. Hafðu
þetta hugfast þegar þú ráðstafar tíma þín-
um.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er eins og þú sért að
spóla áfram með fjarstýringu lífsins. Gerðu
þér far um að hitta aðra og þiggðu heim-
boð.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Dómgreind þín er ekki með
besta móti þessa dagana, fyrir það fyrsta.
Í öðru lagi freista dýrir hlutir þín.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú byrjar alltaf á því að vera al-
mennileg/ur, því það virkar oftast vel fyrir
þig – en ekki alltaf. Sýndu úr hverju þú ert
búin/n til.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú getur ekki breytt öðru fólki,
bara viðbrögðum þínum við þeim. Allt sem
þú gerir venjulega höfðar ekki til þín leng-
ur því þú þarfnast meiri spennu í líf þitt.
Nú er landsleiknum lokið meðsigri Íslendinga. Vísnasmiðir
láta ekki sitt eftir liggja til að fagna
honum.Gunnar J. Straumland yrkir
á Boðnarmiði:
13 hrs
Vaskir menn á vígaslóð
vængjum flugu þöndum.
Þráin reyndist þrautagóð
þarna í Niðurlöndum.
Golli, Kjartan Þorbjörnsson, yrk-
ir að leik loknum:
Áætlunin eftir gekk,
áræði og kraftur.
Íslenskt lið og Lagerbäck
lögðu Holland aftur.
Áður en leikurinn hófst skrifaði
Ólafur Stefánsson; „Fátt er í frétt-
um þessa dagana nema hörmungar
innan lands og utan. Því er lítið ort
á Leirnum enda á hann frekar að
vera í léttari kantinum og enginn
gantast með þessi alvarlegu mál.
Ég nota orðið „vakurt“ til heiðurs
mínum gamla lærisveini, P. Ims-
land. Hann ku vera hestamaður.
Vísnaleirinn vakurt enn
vil ég gjarna styrkja,
en hvorki flóð né flóttamenn
fá mig til að yrkja.
Fía á Sandi leit þannig á:
Víða er núna vandi stór,
voða fátt sem gleður menn.
En ef að flóðin yrðu að bjór
öll þau mundu hverfa senn.
Páll Imsland heilsaði leirliði
„undir bragandi norðurljósum“:
Haraldur Hrólfsson og kó
höndluðu’ í Mosó, og þó,
því hugur var ætíð
á handfæraskaktíð
og mestmegnis Suðurmeðsjó.
Á Boðnarmiði hefur Helgi Ing-
ólfsson orð á því, að skrýtið sé
hvernig maður vakni stundum með
kviðling í kolli:
Fyrrum þá mér fannst ég vera
………………………….í flestu bestur.
Lítill var þó lestrarhestur,
loðmæltur og heldur blestur.
Jósefína Dietrich segir mann-
fólkið merkilegt og mesta furða
hversu mikill orðaflaumur standi
upp úr því sem stríður straumur:
Talmál flestum tekst að læra
á tveimur árum
en furðulegt er frá að segja
hvað fáir geta lært að þegja.
Helgi Ingolfsson gerði þessa at-
hugasemd:
Byrjendur þó bíða gjarna bætur litlar.
Oft mér finnst sá ami mestur
hve erfitt er að kenna lestur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af landsleiknum og
lestrarkunnáttu
Í klípu
„VIÐ ERUM EKKI AÐ FARA NEITT.
HVERS VEGNA GETUM VIÐ EKKI FENGIÐ
FARSÍMA?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HEMMI, VILTU AÐ ÉG BÚI TIL LÍTIÐ GAT
OG GEFI ÞÉR NOKKUR VÍNBER?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... langar vetrarnætur
saman.
HVERNIG GENGUR?
HRÆÐILEGA!
ÉG ER MEÐ
DÚNDRANDI
HAUSVERK!
HÉRNA,
ÞÁ...
ÞAÐ ER KOMINN
TÍMI TIL AÐ
LESA SÉRRÉTTI
KVÖLDSINS
Að hafa áhuga á umhverfi sínu erVíkverja eðlislægt, enda er
hann sjaldan í rónni heldur á sífelld-
um þeytingi til að skoða umhverfi
sitt og hitta fólk að máli. Helgarnar,
stundum lengdar í annan endann,
nýtast vel til ferðalaga út á land en
stakir frídagar í miðri viku og falleg
sumarkvöld hafa nýst vel til ferða-
laga í nágrenni Reykjavíkur.
x x x
Úr höfuðborginni er ekki nema umhálftímaferð að Hvítanesi við
Hvalfjörð. Þar standa enn nokkuð
heillegar rústir af flotastöð þeirri
sem Bandamenn starfræktu á tím-
um síðari heimsstyrjaldar. Veggir
nokkurra bygginga og hafnarmann-
virki standa enn, svo auðvelt er að
framkalla í huganum myndir úr
þeirri veröld sem þarna var þegar
dátar sprönguðu um hlöðin.
x x x
Þormóðsdalur er við Hafravatn,rétt ofan við bæinn. Þetta er fal-
legur staður með skemmtilegum
gönguleiðum um söguslóðir. Á þess-
um slóðum sjást enn menjar um leit í
grjótinu að gullinu sem þarna á að
leynast. Ekki langt frá eru fallegir
staðir eins og Silungatjörn og Sel-
vatn og við Lynghólsveg fangar
járnsleginn stórfugl eftir Guðmund
frá Miðdal auga vegfarenda.
x x x
Heiðmörkin er heill ævintýra-heimur. Í rjóðrum eru faldar
byggingar og reitir þar sem einstaka
félög settu sprota í mold og vitna um
fallega ræktarsemi. Og í Hjalladal,
sunnarlega í Heiðmörk, erum við ut-
an geisla farsímakerfsins og komin í
friðsæld.
x x x
Skemmtilegasta ferðalag Víkverjaþetta sumarið var sennilega að
fara suður á Reykjanesskaga og
suður á Krýsuvíkurbjarg; sem er
himinhátt með fuglum á hverri syllu
og fyrir neðan svarrar aldan og lem-
ur á köldum fjörusteinum. Og fyrir
utan sigldu fraktarar íslensku skipa-
félaganna sem voru á stími inn til
Reykjavíkur, „færandi varninginn
heim“ eins og skáldið orti forðum.
víkverji@mbl.is
Víkverji
En nú varir trú, von og kærleikur,
þetta þrennt, en þeirra er kærleik-
urinn mestur. (1. Kor. 13.13)
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Landsins mesta
úrval af trommum
í öllum verð�lokkum.
Hjá okkur færðu
faglega þjónustu,
byggða á þekkingu
og áratuga reynslu.