Morgunblaðið - 07.09.2015, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 07.09.2015, Blaðsíða 27
MENNING 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2015 Leikaranum Tom Hardy þótti það lítið mál að leika bæði gagnkyn- hneigðan og samkynhneigðan mann í kvikmyndinni Legend. Sjálf- ur segist hann vera fyrir bæði karl- menn og konur og finnst því lítið mál að leika bæði gagnkynhneigð- an mann og samkynhneigðan. „Ég hugsaði ekki mikið út í þetta. Þú leikur ekki kynhneigð. Um leið og þú ferð að leika eitthvað er hætta á því að þú skiljir ekki hvað þú ert að gera,“ sagði Hardy í við- tali við fjölmiðla. Í Legend leikur hann tvíbura og er annar þeirra gagnkynhneigður en hinn samkynhneigður. Um það segir Hardy að í raun og veru komi hvergi fram að mennirnir séu ekki fyrir bæði kyn. Það gæti því allt eins verið. Kynhneigðir þvælast ekki fyrir Hardy Reffilegur Tom Hardy á frumsýn- ingu Legend 3. september sl. AFP þegar hafður er í huga sá fjöldi sem getur tekið þátt í einu spili. Þannig er fjárfestingin ekki slík að fólk telji sig þurfa að verja hana sérstaklega. Komi fyrir að fólki finnist spil ekki skemmtilegt er kostnaðurinn ekki mikill. Það er því enginn skaði skeð- ur þótt spilið sé bara spilað einu sinni.“ Spilamenning er nokkuð ung á Ís- landi og þó að til séu hópar sem hitt- ast reglulega til að spila og hafa gert það í mörg ár er það nýtilkomið að spilið sé að verða hluti af almennu félagslífi fólks. „Mér finnst vera vakning hjá al- menningi um gæði og skemmtun borðspila. Úrvalið er orðið meira og spilin sem við seljum eru ekki bara stór og flókin borðspil. Í Þýskalandi eru spil gjarnan hluti af matarboði. Þá er keypt spil fyrir kvöldið og fólk kemur saman til að borða góðan mat og spila. Þannig er spilið hluti af kostnaði kvöldsins. Þetta er hefð sem Íslendingar mættu taka sér til fyrirmyndar en hafa verður þó í huga að Þjóðverjar framleiða reynd- ar mikið af spilum og þau eru ódýr- ari en hér á Íslandi. Engu að síður eru spil ekki svo dýr hér miðað við marga aðra afþreyingu.“ Íslensk spil og sögur Spil eru án nokkurs vafa hluti af skapandi greinum enda fer hönnun, handverk, hugverk og hæfileikar í þróun og framleiðslu spila, líkt og Gísli hefur bent á. Það er því ekki hjá því komist að spyrja Gísla hvort þessi aukni áhugi hafi ýtt undir framleiðslu og þróun spila á Íslandi og hvort Nexus taki þátt í þróun spila og þannig þeim vaxandi geira sem skapandi greinar eru? „Öll góð spil og allar góðar bækur og kvikmyndir eiga erindi í búiðna hjá okkur. Hér höfum við þá ástríðu að bjóða viðskiptavinum okkar upp á það besta.Við spyrjum því ekki hvar eða hver framleiðir vöruna heldur hvort hún uppfylli þá gæðastaðla sem við setjum. Þrátt fyrir það reyn- um við að sjálfsögðu að hjálpa ís- lenskum spila- og leikjaframleið- endum,“ segir Gísli, en þegar hönnuðir spila leita til Nexus veitir búðin þá hjálp sem hún getur. „Við komum ekkert að framleiðslu spila sjálfir, enda er það ekki hluti af starfsemi okkar. Hins vegar reynum við eftir mesta megni að aðstoða hönnuði spila, t.d. við að safna í hópa til að prófa spilin.“ Sökum smæðar íslenska markaðarins hafa fá íslensk spil komið út en Gísli telur að Íslend- ingar eigi engu að síður að geta skapað skemmtilega söguheima og spil. Allar forsendur séu fyrir fleiri íslenskum spilum á næstu árum. „Vinsældir fantasíubókmennta og kvikmynda í dag eru að skila mörg- um í nám í spila- og leikjahönnun. Við eigum örugglega eftir að sjá ís- lenskum spilum fjölga, eða í það minnsta spilum frá Íslandi. Mér finnst þó líklegra að spilin verði gef- in út á ensku enda íslenski markaðurinn ekki nægilega stór.“ Allir eru jafnir í Nexus Gísli segir mikilvægt að gera ekki upp á milli listforma, ævintýraheima eða framleiðslufyrirtækja fyrir verslun af þessu tagi á Íslandi. Markaðurinn er hreinlega ekki nógu stór og mikilvægt að sinna öllum hópum. Þannig má finna allt frá Star Trek yfir í Star Wars og Marvel til DC Comics. „Hvoru tveggja reynum við að anna þeirri eftirspurn sem er hverju sinni en einnig að selja bækur og spil sem við höfum sjálfir gaman af. Ís- land er bara ekki nægilega stórt til að sérhæfa sig á einu sviði eins og víða gerist erlendis.“ Öll listform ævintýraheima koma því saman í Nexus og skiptir formið ekki máli. Mestu skiptir að sögn Gísla að fólk fái tækifæri til að nálg- ast uppáhalds fantasíuheima sína í búiðinni. „Auðvitað laumum við alltaf ein- hverju nýju inn á sama tíma og við erum að svara þörf viðskiptavina okkar. Meginreglan hjá okkur er einfaldlega sú að í Nexus eru allir jafnir. Við tökum ekki eitt listform fram yfir annað og þá gerum við heldur ekki upp á milli ólíkra æv- intýraheima eða vísindaskáldsagna, hvort heldur sem er Star Trek eða Star Wars, DC Comics eða Marvel.“ Nexus Morgunblaðið/Styrmir Kári » Í Þýskalandi eru spilgjarnan hluti af matarboði. Þá er keypt spil fyrir kvöldið og fólk kemur saman til að borða góðan mat og spila. Þannig er spilið hluti af kostnaði kvölds- ins. Þetta er hefð sem Íslendingar mættu taka sér til fyrirmyndar. Morgunblaðið/Styrmir Kári Morgunblaðið/Styrmir Kári Billy Elliot (Stóra sviðið) Lau 12/9 kl. 19:00 Sun 20/9 kl. 19:00 Sun 27/9 kl. 19:00 Sun 13/9 kl. 19:00 Fim 24/9 kl. 19:00 Fös 18/9 kl. 19:00 Fös 25/9 kl. 19:00 Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega Dúkkuheimili (Stóra sviðið) Fim 10/9 kl. 20:00 aukas. Lau 19/9 kl. 20:00 Lau 26/9 kl. 20:00 Fös 11/9 kl. 20:00 aukas. Mið 23/9 kl. 20:00 Aukasýningar í september Lína langsokkur (Stóra sviðið) Sun 20/9 kl. 13:00 Sun 4/10 kl. 13:00 Sun 11/10 kl. 13:00 Sun 27/9 kl. 13:00 Lau 10/10 kl. 13:00 Haustsýningar komnar í sölu Hystory (Litla sviðið) Lau 12/9 kl. 20:00 Sun 20/9 kl. 20:00 Sun 27/9 kl. 20:00 Fös 18/9 kl. 20:00 Fös 25/9 kl. 20:00 Aðeins þessar sýningar! Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl. 65 20151950 5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið) Þri 8/9 kl. 19:30 fors. Fim 17/9 kl. 19:30 Aukas. Sun 27/9 kl. 19:30 8.sýn Mið 9/9 kl. 19:30 fors. Fös 18/9 kl. 19:30 3.sýn Fös 2/10 kl. 19:30 9.sýn Fim 10/9 kl. 19:30 fors. Lau 19/9 kl. 19:30 4.sýn Lau 3/10 kl. 19:30 10.sýn Fös 11/9 kl. 19:30 Aðalæ. Sun 20/9 kl. 19:30 5.sýn Sun 4/10 kl. 19:30 11.sýn Lau 12/9 kl. 19:30 Frums. Fös 25/9 kl. 19:30 6.sýn Sun 13/9 kl. 19:30 2.sýn Lau 26/9 kl. 19:30 7.sýn Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports! Móðurharðindin (Kassinn) Fös 11/9 kl. 19:30 3.sýn Fim 17/9 kl. 19:30 6.sýn Lau 19/9 kl. 19:30 8.sýn Lau 12/9 kl. 19:30 4.sýn Fös 18/9 kl. 19:30 7.sýn Fim 24/9 kl. 19:30 9.sýn Gamanleikur um samskipti móður og barna og harkaleg átök kynslóðanna. 4:48 PSYCHOSIS (Kúlan) Fim 10/9 kl. 19:30 Frums. Sun 13/9 kl. 19:30 2.sýn Mið 16/9 kl. 19:30 3.sýn DAVID FARR HARÐINDIN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.