Morgunblaðið - 07.09.2015, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 07.09.2015, Qupperneq 32
MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 250. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696 1. Forboðin ást í fangabúðum … 2. Ísland á EM í fyrsta sinn 3. Allt tryllt á Ungfrú Ísland 4. Ferðamaður féll til bana »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Fyrsta hefðbundna listmunaupp- boð vetrarins í Gallerí Fold fer fram í dag og á morgun. Meðal verka sem boðin verða upp er „Sólblóm“ eftir Gunnlaug Blöndal, málverk sem er 115x90 cm að stærð, merkt af höf- undi og metið á 2,8-3,2 milljónir króna. Verkið komst í fréttir árið 1990 þegar það var boðið upp hjá Klausturhólum og segir í tilkynningu frá galleríinu að módelmyndir Gunn- laugs séu afar eftirsóttar. Af öðrum verkum sem boðin verða upp má nefna „Kærleik“ eftir Jóhannes S. Kjarval, málverk metið á 2-2,5 millj- ónir króna, og „Birtuskil“, annað Kjarvalsverk. Þá verður boðið upp verk eftir Kristínu Jónsdóttur, „Upp- stilling með blárri könnu“, sem sést á myndinni. Verk eftir Kristínu eru afar eftirsótt og ekki mörg á markaði. Kannan á mynd Kristínar er enn til og fylgir verkinu. Kannan á málverki Kristínar fylgir með  Nína Magnúsdóttir, sýningarstjóri íslenska skálans á Feneyjatvíær- ingnum, mun leiða umræður um framlag Íslands til tvíæringsins, Moskuna – fyrstu moskuna í Fen- eyjum, í fyrirlestrasal myndlistar- deildar Listaháskóla Íslands, að Laugarnesvegi 91, í dag kl. 12.30. Verkið var unnið að frum- kvæði listamanns- ins Cristoph Büchel í samstarfi við félög múslima í Feneyjum og á Íslandi. Borgaryfirvöld í Feneyjum létu loka moskunni 22. maí sl. Leiðir umræður um Mosku Büchels Á þriðjudag Suðaustan 8-15 m/s og rigning um landið S- og V- vert en hægari og þurrt NA-lands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast NA-til. Á miðvikudag Sunnan hvassviðri um morguninn en dregur úr vindi þegar líður á daginn. Rigning S- og V-lands. Hiti 10 til 16 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Strekkings sunnanátt og rigning með köfl- um V-til en áfram dálítil súld S-lands, annars léttskýjað. VEÐUR Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik, sem tekur í fyrsta sinn þátt í lokakeppni EM í körfuknattleik, tapaði fyrstu tveimur leikjum sín- um á mótinu í Berlín. Búast hefði mátt við að liðið myndi tapa stórt enda leikið við Þýskaland og Ítalíu, en íslenska liðið sýndi úr hverju það er gert þrátt fyrir að leikmenn þess séu höfðinu lægri en leikmenn hinna þjóðanna. »2 og 4 Naumt tap í körf- unni í Berlín Júlían J. K. Jóhannsson, lyftinga- kappi úr Ármanni, varð um helgina heimsmeistari unglinga í kraftlyft- ingum í +120 kg flokki þegar hann lyfti rúmlega einu tonni á HM í Prag. Júlían hafði áður orðið heimsmeistari unglinga í einni grein kraftlyftinga, réttstöðulyftu, árið 2012. Sigur hans í Tékklandi um helgina var nokkuð öruggur. » 1 Júlían heimsmeistari í kraftlyftingum ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Íslenska U21 árs landsliðið vann frækinn sigur á Frökkum í undan- keppni EM á laugardag. Strákarnir eru með fullt hús stiga í riðlinum en þrátt fyrir gleðina var einbeitingin til staðar og ljóst er að bjartsýni ríkir um næstu kynslóð okkar bestu knattspyrnu- manna. »8 Næsta kynslóð slökkti í frönsku stjörnunum Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Bjarni Guðjónsson, fyrrverandi útgerðarmaður, fagnar 100 ára afmælinu sínu í dag, en þrátt fyrir háan aldur keyrir Bjarni enn og var að endurnýja ökuskírteinið sitt. Bjarni ætlar að hafa kaffi á könnunni og jafnvel eitthvert með- læti á stóra daginn en ekkert formlegt. „Það verður lítið gert í tilefni dagsins, ætli það verði ekki eitthvað smá í boði hér en ekk- ert skipulagt. Ég kann ágætlega við mig bak við stýrið. Ég á Chevrolet Corsica núna, lang- besti bíll sem ég hef átt,“ segir Bjarni, en hann hefur átt nokkra bíla í gegnum árin. „Ég hef átt marga góða bíla, flestir voru þeir ágætir nema einn. Sá var breskur, hann var ekki góð- ur. Þó að Corsican sé gamall bíll er það besti bíllinn.“ Alltaf unnið mikið Ýmislegt hefur breyst á ævi Bjarna og ýmis- legt gerst. Hann hefur haldið heilsu og alltaf unnið mikið. „Ég var alltaf viðloðandi útgerð- ina hjá pabba þegar ég var krakki en tók svo við bátnum þegar hann hætti. Í ástandinu fór- um við með bátinn til Ameríkananna í tvö ár. Það var ágætt. Vorum með bátinn í Sandgerði en ég var þó alltaf í landi. Svo fór ég á sjóinn þegar ég tók við bátnum og varð vélamaðurinn, bróðir minn Jóhannes sem nú er dáinn var skipstjóri.“ Bjarni býr enn heima en dvelst þessa stund- ina á Hrafnistu. Hann svaf þó í sínu rúmi í nótt. „Hrafnista er frábær staður til að vera á,“ segir Bjarni léttur. Morgunblaðið/Eggert Bjarni við Corsicuna Bjarni sem hefur lifað í heila öld býr heima og keyrir enn, en hann hefur nýlega endurnýjað ökuskírteinið sitt. Hefur átt marga bíla og kann ágætlega við sig bak við stýrið  Bjarni Guðjónsson, fyrrverandi útgerðarmaður, fagnar 100 ára afmæli í dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.