Morgunblaðið - 24.09.2015, Page 2
2 | MORGUNBLAÐIÐ
Elkem á Grundartanga
leitast við að
endurvinna orku.
10
24.09.2015
Útgefandi
Árvakur
Umsjón
Sigurður Nordal sn@mbl.is
Blaðamenn
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is
Brynja B. Halldórsdóttir brynja@mbl.is
Skúli Halldórsson sh@mbl.is
Vilhjálmur Andri Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Auglýsingar
Auglýsingadeild Morgunblaðsins
augl@mbl.is
Forsíðumyndina tók Árni Sæberg
Mynd á blaðsíðu 2 af Dettifossi
tók Brynjar Gauti
Prentun Landsprent ehf.
Umhverfisvæn vistun
tölvungagna er möguleg.
6
Mikilvægt er að tryggja
öryggi í iðn- og
orkufyrirtækjum.
14
Markmið Auðlindagarðsins
er "samfélag án sóunar".
12
Bretar eru jákvæðir í
garð samtengingar
raforkukerfa.
16
Frá örófi alda hafa Íslendingar byggt lífsafkomu
sína á auðlindum lands og sjávar. Á undanförnum
áratugum hefur átt sér stað mikil uppbygging í
tengslum við nýtingu á orkuauðlindum landsins
og ný tækifæri hafa orðið til við að skapa úr þeim
verðmæti fyrir þjóðarbúið. Slík verðmætasköpun
getur tekið á sig ýmsar myndir eins og skýrt má
sjá í þessu aukablaði Morgunblaðsins sem helgað
er orkumálum.
Lífshættir nútímans krefjast mikillar og vaxandi
orkunotkunar. Hér á landi búum við svo vel að
orkulindir landsins eru ríkulegar og á ýmsu formi,
þar á meðal vatnsafli, jarðgufu, vindum og jafnvel
þörungum, eins og greint er frá í viðtali hér í
blaðinu. Með framþróun í vísindum og tækni skap-
ast ný tækifæri til þess að nýta auðlindir landsins
með hagkvæmum og sjálfbærum hætti. Í
tengslum við raforkuframleiðslu og orkutengdan
iðnað spretta nýjar hugmyndir sem stuðla að
grósku í atvinnulífi og fjölbreyttara mannlífi.
Í þessu blaði er brugðið ljósi á þá áhugaverðu
þróun sem nú á sér stað í tengslum við orkuiðn-
aðinn og rætt við fólk sem með einum eða öðrum
hætti hefur séð ný tækifæri á þessu sviði.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ný tækifæri á grunni orkuauðlinda