Morgunblaðið - 24.09.2015, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ | 13
Landsnet // Gylfaflöt 9 // 112 Reykjavík // Sími 563 9300 // landsnet@landsnet.is // landsnet.is // @Landsnethf
Í nútímaþjóðfélagi þurfa allir að hafa aðgang að rafmagni
AT
H
YG
LI
-0
6
-2
0
15
Við flytjum rafmagn
arðar, þannig að verðmætasköpun
aukist hraðar en tekjur.
Fjórða hvert starf tengt garðinum
Hjá fyrirtækjum Auðlindagarðsins
starfa yfir 500 manns og eru afleidd
störf metin um 600. Í fyrrnefndri
skýrslu GAMMA kemur fram að ætla
megi að frá árinu 2011 hafi eitt af
hverjum fjórum nýjum störfum á
Suðurnesjum tengist garðinum með
einum eða öðrum hætti.
Um 73% heildarmannaflans starfa
við þjónustu og framleiðslu en helstu
afurðir fyrirtækjanna í garðinum eru
hótelrekstur, fiskþurrkun, fram-
leiðsla afurðar úr fiskslógi, eldi hlý-
sjávarflatfisks, hefðbundin og heilsu-
tengd ferðaþjónusta, náttúruleg
meðferð húðsjúkra, ræktun þörunga,
vistvænar snyrtivörur með virk efni
úr náttúru svæðisins, metanól úr
jarðhitagasi, heitt og kalt grunnvatn,
jarðhitavökvi, volgur hreinn sjór o.fl.
Markmiðið að nýta alla strauma
„Okkar markmið er að nýta það sem
auðlindin gefur af sér til fullnustu,“
segir Kristín Vala Matthíasdóttir,
framkvæmdastjóri Auðlindagarðsins.
„Okkur hefur verið treyst til að nýta
þessar auðlind og okkur ber að gera
það eins vel og kostur er, á sem
ábyrgastan hátt. Hugmyndafræðin
gengur út á að koma sem flestum
auðlindastraumum í nýtingu sem
hráefni fyrir fjölþætta starfsemi í ná-
munda við jarðhitanýtinguna,“ út-
skýrir hún.
Aðspurð um framtíðarsýn garðs-
ins, svara Kristín Vala því til að áætl-
að sé að garðurinn verði bæði stærri
og fjölbreyttari. ,,Við viljum fá inn
fleiri fyrirtæki sem geta nýtt það sem
við nýtum ekki í dag. Það gildir til
dæmis um kolsýru og kísilinn úti á
Reykjanesi. Svo eru ákveðnir málmar
sem falla til í útfellingum á Reykja-
nesi, svo sem gull og silfur. Svo vill til
að íslenskur doktorsnemi í Cornell
háskóla vinnur að því að einangra
líþíum úr jarðhitavökvanum, sem er
afar verðmætur málmur vegna raf-
væðingarinnar.“
Hún segir talsvert gull og silfur
vera að finna í útfellingum. ,,Hins
vegar skortir okkur ennþá þekkingu
til að vinna þessa málma úr útfelling-
unum. Í raun er þetta vettvangur til
nýsköpunar.“ Áhugasamir um að
komast inn í Auðlindagarðinn geti
haft samband við Kistínu Völu.
Fyrirliggjandi er að fyrirtækj-
unum í garðinum muni fjölgi á næstu
mánuðum þar sem von er á fiskeld-
isfyrirtæki í Grindavík sem nýtir
varma úr affalli frá Svartsengi. Þá
segir Kristín Vala að þessa dagana sé
unnið að því að kom á fót hreinsun á
kolsýru fyrir iðnaðinn og útfellingu
kísils á Reykjanesi. brynja@mbl.is
háverðsafurðum
Ljósmynd/www.audlindagardur.is
Jarðvarmi Fyrirtækin í garðinum samnýta jarðvarma frá HS Orku með
mismunandi hætti. Fyrirliggjandi er að þeim verði fjölgað um eitt á næstu
mánuðum og önnur áhugasöm fyrirtæki geta haft samband.
,,Við viljum fá inn fleiri fyr-
irtæki sem geta nýtt það
sem við nýtum ekki í dag.“
Ljósmynd/Bláa lónið
Hrein ræktun Mikið er lagt upp úr því að þörungarnir séu hreinir í Bláa lóninu.