Morgunblaðið - 24.09.2015, Page 22
22 | MORGUNBLAÐIÐ
O
rka til framtíðar“ er heiti
gagnvirkrar orkuvís-
indasýningar sem var
formlega opnuð almenn-
ingi í sumar í gestastofu Ljósafoss-
stöðvar í tilefni af 50 ára afmæli
Landsvirkjunar. Gagarín og Tví-
horf arkitektar eru hönnuðir sýn-
ingarinnar og kom fjöldi fyrirtækja
og sérfræðinga að sýningunni.
Þema sýningarinnar er raforkan
sjálf, hvaða áhrif hún hefur á okkur
og samfélagið. Sýningin er gagn-
virk með áherslu á leik og upplifun,
þar sem eðli og eiginleiki raforku
birtist í margvíslegum myndum.
Sýningargestir eru leiddir inn í
heim raforkunnar á nýjan og skap-
andi máta. Undirstöðuatriði raf-
magnsfræðinnar eru útskýrð í
gegnum einfaldar, skemmtilegar og
fallegar tilraunir sem hafa leitt til
mikilvægra skrefa í rafmagnssög-
unni. Auk þess fræðast gestir um
helstu orkuvinnsluaðferðir Lands-
virkjunar; vatnsaflsstöðvar, jarð-
varmastöðvar og vindmyllur. Enn
fremur er orkuvinnsla og orkunýt-
ing sett í víðara samhengi og þró-
unin í heiminum skoðuð í samhengi
við mikilvæga þætti svo sem end-
urnýjanleika og sjálfbærni. Orku-
auðlindir og nýting þeirra varðar
alla Íslendinga og leitast verður við
að opna augu gesta fyrir mikilvægi
þess að hámarka afrakstur af orku-
lindunum með sjálfbærri nýtingu,
verðmætasköpun og hagkvæmni að
leiðarljósi.
Kolin burt og rafmagnið inn
Ljósafossstöð var gangsett árið
1937 og stendur við Ljósafoss, út-
fall Úlfljótsvatns. Með tilkomu
stöðvarinnar var framboð rafmagns
fjórfaldað á höfuðborgarsvæðinu
sem gerði íbúum kleift að nota raf-
magnseldavélar í stað kolavéla.
Þáttur í því að auka raforkunýtingu
frá Ljósafossstöð var að bjóða íbú-
um höfuðborgarsvæðisins að fá
eldavél frá Rafha í áskrift með raf-
magninu. Sigurður Guðmundsson
arkitekt teiknaði stöðina í funkisstíl
og hana prýðir verk eftir Ásmund
Sveinsson myndhöggvara. Í sumar,
líkt og fyrri ár, opnaði Lands-
virkjun aflstöðvar sínar fyrir gest-
um sem vildu kynna sér starfsemi
fyrirtækisins og raforkuvinnslu úr
endurnýjanlegum orkugjöfum. Yfir
20 þúsund manns heimsóttu gesta-
stofur Landsvirkjunar og kynntu
sér vindmylluverkefni fyrirtækisins
við Hafið. Magnús Þór Gylfason, yf-
irmaður samskiptasviðs Lands-
virkjunar, segir þetta mikilvægan
þátt í starfsemi fyrirtækisins.
„Landsvirkjun leggur sérstaka
áherslu á að skapa sátt og sam-
stöðu um starfsemi fyrirtækisins og
verkefni þess með opnum sam-
skiptum við hagsmunaaðila. Mark-
miðið er að auðvelda almenningi að
kynna sér starfsemi fyrirtækisins,
áherslur þess í markaðsstarfi og þá
rannsóknarvinnu sem unnin er á
auðlindum og umhverfi.“
Tekið var á móti gestum í Ljósa-
fossstöð, Búrfellsstöð, Fljótsdal og
Kröflustöð auk þess sem leiðsögn
var veitt um Kárahnjúkastíflu.
Langflestir lögðu leið sína í Kröflu
eða hátt í tíu þúsund manns og yfir
90% þeirra voru erlendir ferða-
menn. Tæplega 5.400 manns heim-
sóttu gestastofuna í Búrfelli, rúm-
lega 3.800 manns gestastofuna í
Végarði í Fljótsdal og um 1.400
manns lögðu leið sína á Hafið.
Orkuvísinda-
sýning
Landsvirkjunar
Samvinna Orkuveggurinn lýsist upp þegar gestir sýningarinnar þrýsta á hann og skiptir þá miklu að beita öllu afli.
Áhugavert Gestir sýningarinnar geta tekið þátt í sýningunni enda fjöldi skemmtilegra tilrauna sem hjálpa gestum að kynna sér betur hlutverk raforkunar í nútíma samfélagi og hvernig Landsvirkjun virkjar orkuna.