Iðjuþjálfinn - 01.03.2016, Síða 4
4 5
uðust vorið 2001. Félagið hefur stækkað
ört þessi 15 ár frá fyrstu útskrift iðjuþjálfa
á Íslandi og á síðustu 10 árum hefur félagið
stækkað um þriðjung! Heildarfjöldi félaga
í dag er 280 talsins og ef við höldum sama
vaxtarhraða mun fjöldi félagsmanna vera
orðinn yfir 400 á hálfrar aldar afmælinu
2026.
Iðjuþjálfar eru nú starfandi um allt land og
á fjölbreyttum vettvangi. Iðjuþjálfar eru
sérfræðingar í því að finna hagkvæmar og
góðar lausnir með fólki sem vegna líkam-
legra og/eða andlegra veikinda eða fötlunar
getur ekki gert það sem það þarf og vill geta
gert í daglegu lífi. Þessi sérstaða gerir það að
verkum að fagþekking iðjuþjálfa hentar jafnt
á sviði heilbrigðis-, félags- og menntamála,
ýmist innan eða utan stofnana samfélags-
ins. Iðjuþjálfar starfa meðal annars í dag hjá
hinu opinbera við skipulagningu heilbrigðis-
og félagsþjónustu og við hönnun umhverfis.
Þeir starfa einnig hjá fyrirtækjum eða sem
sjálfstæðir ráðgjafar við t.d. heilsueflingu og
forvarnir. en betur má ef duga skal og við
viljum sjá enn fleiri starfsmöguleika fyrir
iðjuþjálfa á næstu árum, en það verður ein-
staklega spennandi að fylgjast með þróun
stéttarinnar og fjölgun frumkvöðla og rann-
sakenda.
Síðastliðinn október var haldið framtíðar-
þing IÞÍ í tilefni afmælisins. Þangað mætti
stór hópur iðjuþjálfa til að hafa áhrif á
stefnumótun félagsins. Margar góðar hug-
myndir komu fram og stjórn IÞÍ er þegar
byrjuð að forgangsraða verkefnum og vinna
að framkvæmd þeirra.
Fróðleiksfýsn og metnaður iðjuþjálfa á
sér engin takmörk og á þessu ári munum
við taka þátt í ýmsum viðburðum, halda
námskeið og ráðstefnur meðal annars í
samvinnu við önnur félög og bjóða upp á
fjölbreytta fræðslu. Það er því einstaklega
skemmtilegt ár framundan. Á þessum tíma-
punkti er þó komið að afmælisráðstefnunni
sem við erum afar stolt af. njótum þess að
eiga þessa daga saman, lærum hvert af
öðru, styrkjum og styðjum.
kæru iðjuþjálfar innilega til hamingju með
40 ára afmælið og bestu þakkir fyrir fram-
lag ykkar allra til fagsins og félagsins. verum
stolt og berum höfuðið hátt.
Ósk Sigurðardóttir,
formaður IÞÍ
TIl HAMInGJu MeÐ AFMælIÐ! lITIÐ YFIr FArInn veG
kæri lesandi, Iðjuþjálfafélag Íslands er 40
ára í dag og á tímamótum sem þessum er við
hæfi að minnast á nokkra framsýna og kraft-
mikla iðjuþjálfa sem komu saman í febrúar
1975 og stofnuðu fyrsta vísi að félaginu. eftir
mikla vinnu hópsins var félagið svo formlega
stofnað þann 4. mars 1976 þegar fyrsti aðal-
fundur félagsins var haldinn. Stofnendur
félagsins voru;
Nafn Fæðingarland Vinnustaður
anne grethe Hansen Danmörk reykjalundur
emelita o. nocon Filipseyjar Sólvangur Hafnafirði
guðrún Pálmadóttir Ísland reykjalundur
Hildegard Demleitner Þýskaland grensásdeild Landsp.
Hope knútsson Bandaríkin kleppsspítali
Ingibjörg Ásgeirsdóttir Ísland Landspítali
jóna kristófersdóttir Ísland kleppsspítali
kristín tómasdóttir Ísland kristnes
Margret Demleitner Þýskaland grensásdeild Landsp.
Sigríður Loftsdóttir Ísland Landspítali
Á þessum tíma fjölgaði hægt en örugglega
í félaginu þar sem að meðaltali komu einn
til tveir iðjuþjálfar heim á ári. Í nær öllum
tilfellum var beðið eftir þeim og þeir komnir
samstundis með vinnu.
Árið 1997 hófst svo kærkomið nám í iðju-
þjálfun við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans
á akureyri og fyrstu iðjuþjálfarnir útskrif-
Sumarið 1969 fékk ég, ung kona og iðjuþjálfi
frá new york borg, brjálæðislega hugmynd
um að verða brautryðjandi í iðjuþjálfun á
Íslandi. allir sem þekktu mig héldu nátt-
úrulega að ég væri búin að missa vitið!
Ég var róttækur aðgerðasinni sem var alltaf
að mótmæla ójafnræði í heilbrigðiskerfinu
í Bna, víetnamstríðinu og byggingu kjarn-
orkuvera. Ég var búin að fá nóg af bandaríska
kerfinu og fór alein í sex vikna ævintýraferð
til evrópu. Ég flaug með Loftleiðum sem var
þá fyrsta lágfargjaldaflugfélag í heimi og var
þekkt sem „hippie“ flugfélagið. Ég stoppaði
í sólarhring á Íslandi á mínum fyrsta degi
fyrir utan ameríku og varð strax ástfangin
af landinu!
Á meðan ég ferðaðist um meginland evrópu
reikaði hugur minn aftur og aftur til Íslands
og ég velti því fyrir mér hvort það vantaði
iðjuþjálfa þar. Ég skrifaði bréf til heilbrigð-
ismálaráðuneytisins og spurði hvort það
vantaði iðjuþjálfa og fékk til baka boð um
að koma og stofna námsbraut í iðjuþjálfun
og eins og sagt er „the rest is history!“.
eftir 11 heimsóknir hingað til lands flutti ég
loks til Íslands (1974) og tók, ásamt fáein-
um íslenskum iðjuþjálfum og hópi erlendra
iðjuþjálfa starfandi á Íslandi, þátt í að stofna
Iðjuþjálfafélag Íslands. Ég var kosin fyrsti
formaður félagsins við stofnun þess árið
1976. Líf mitt og saga iðjuþjálfunar á Íslandi
voru samtvinnuð næstu 28 árin, þar sem ég
var formaður félagsins í 22 ár og fulltrúi IÞÍ
í Heimssambandi iðjuþjálfa í 28 ár. Þetta
voru spennandi brautryðjendaár, þegar við
hittumst í heimahúsum hjá stjórnarmönn-
um félagsins (stundum með börn á brjósti),
sömdum kynningarbæklinga og settum upp
nokkrar nefndir sem við vorum allar meira
eða minna þátttakendur í.
Ég reyndi að nýta tengsl mín við iðjuþjálfa
í Bandaríkjunum og víðar, fagfólk sem ég
kynntist þegar ég kenndi við námsbraut í
iðjuþjálfun við Columbia háskólann í new
york borg og meðan ég var fulltrúi í heims-
sambandinu, til að fá nokkra leiðtoga og
brautryðjendur í faginu til að halda nám-
skeið hér á landi áður en skólinn okkar
byrjaði. Það segir mikið til um metnað iðju-
þjálfa á Íslandi að um 90% mæting var á
þessi námskeið, þar sem fólk eins og gary
kielhofner, nedra gillette, Barbara o’Shea o.fl.
komu til að miðla nýjustu þekkingu í faginu.
okkur dreymdi lengi um námsbraut en
sá draumur virtist oft vera órafjarri. Það
var erfitt að ímynda sér fagið með nokkur
hundruð manns, með sterka fagímynd og
fólk starfandi um allt land á eins fjölbreytt-
um vinnustöðum eins og raun ber vitni! Ég
er mjög stolt af faginu okkar og mjög stolt
af því að hafa tekið þátt í uppbyggingu þess.
Þó ég starfi ekki lengur sem iðjuþjálfi finnst
mér að allt sem ég hef tekið að mér í lífinu,
hafi ég gert miklu betur vegna menntunar
og reynslu minnar sem iðjuþjálfi.
til hamingju með 40 ára afmælið okkar!
Húrra, húrra, húrra!
Hope Knútsson