Iðjuþjálfinn - 01.03.2016, Page 23
22
• vera óhrædd að benda á þjónustu
iðjuþjálfa í samfélaginu.
• vera öflugri í að vera með erindi/nám-
skeið t.d. á málþingum og ráðstefnum.
• Fræða samstarfsfólk enn betur um
matstæki, vinnubrögð og hugmyndafræði.
• Hafa upplýsingar um störf iðjuþjálfa á
mínum vinnustað sýnilegar á heimasíðu
vinnustaðarins, t.d. niðurstöður
Framtíðarþings.
• að við séum virk að benda á kollega til
að vera með fræðslu/erindi.
• Bendum unga fólkinu í kringum okkur
á iðjuþjálfunarfræði.
• að iðjuþjálfar skrifi reglulega (ritrýndar)
greinar og birti rannsóknir í fagtímaritum
og blöðum.
• að félagsmenn ýti á aðra félagsmenn að
feta nýjar slóðir og/eða geri sig sýnilega.
• Félagið og félagsmenn nýti öll tækifæri
til að kynna félagið og störf iðjuþjálfa,
noti iðjumiðuð orðfæri og séu stoltir
félagsmenn.
• taka virkan þátt í starfi félagsins.
HvernIG GeTur FélAGIÐ sTuTT vIÐ FAG-
leGA Þróun oG síMennTun?
„ Ég las bók/grein“ og „nota innanhússþekk-
ingu og umbuna fyrir“
Stuðst var við eftirfarandi undirspurningu:
• Hvernig viðhalda félagsmenn þekkingu?
Svörum þátttakenda má skipta í
eftirfarandi flokka:
Framboð og miðlun
eftirfarandi atriði voru m.a. nefnd
í þessu samhengi:
• að heimasíða félagsins innihaldi
margskonar fræðsluefni sem vel flokkað
og aðgengilegt t.d. upprifjun á notkun
hjálpartækja, námsefni Ha, hugmynda-
fræði, hvað er að gerast í náminu, upp-
lýsingar um starfsvettvang, framhalds-
nám, iðjuþjálfastörf á erlendri grundu og
viðfangsefni þeirra, kynning á nýsköpun
og rannsóknum o.fl. o.fl.
• vera með vikupistla frá félagsmönnum
á heimasíðu.
• Félagið standi fyrir námskeiðum,
málþingum og ráðstefnum.
• að hafa virka fræðslunefnd sem gerir
reglulega skoðanakannanir á þörfum/
óskum félagsmanna.
• Hafa „rúllandi“ endurmenntunardag-
skrá þar sem iðjuþjálfar geta sótt nám-
skeið hjá öðrum iðjuþjálfum eða öðrum
fagstéttum.
• Setja það sem skilyrði að sækja námskeið
eða ráðstefnu á ákveðnum árafjölda.
• Hafa námskeið árlega – vettvang þar
sem iðjuþjálfar hittast, halda námskeið,
sitja námskeið, hafa kvöldvökur og
spjalla í 3-4 daga (á launum).
• vera með „iðjukvöld“ þar sem iðjuþjálfar
segja frá áhugaverðu efni.
• vera með gagnvirk námskeið þar sem
skipst er á að rýna efni og kynna, t.d.
fyrirlestra og fræðslumyndbönd.
• nota innanhússþekkingu og umbuna
fyrir. Það er fullt af flottum iðjuþjálfum
sem geta miðlað til hinna.
• gefa út öflugt fagtímarit og gera það
aðgengilegra.
• Morgunverðarfundir og fræðsla. opnir
umræðufundir þar sem rýnt er í fagið.
• gera störf faghópa sýnileg öllum
félagsmönnum.
• auðvelda félagsmönnum aðgengi að
fagtímaritum.
• gera kröfu um að félagsmenn símennti
sig og viðhaldi iðjuþjálfaréttindum.
• Fá tilboð í námskeið á vegum mennta-
stofnana (sbr. Hópkaups-módel).
• Styðja faghópa innan félagsins og vera
með sérnámskeið fyrir hvern faghóp.
Stuðningur og styrkir
eftirfarandi atriði voru m.a. nefnd
í þessu samhengi:
• aðstoða félagsmenn við styrkumsóknir
í ýmsa sjóði fyrir utan félagið og
BHM, t.d. evrópusamband, nýsköpunar
sjóð, Frumkvöðlasjóð.
• ráða sérfræðing í styrkjamálum til að
aðstoða félagsmenn við umsóknir
styrkja til rannsókna og nýsköpunar.
• Styðja félagsmenn sem þýða matstæki
við kynningu og útbreiðslu þeirra.
• Félagið hvetji til endurmenntunar og
veiti styrki við aðsókn námskeiðs, t.d.
námsbúðir.
• Fjárhagslegur stuðningur við rannsóknir,
nýsköpun og símenntun (auglýsa).
• að kostnaður námskeiða sé í samræmi
við laun.
Frumkvæði félagsmanna
eftirfarandi atriði voru m.a. nefnd
í þessu samhengi:
• Félagsmenn miðli, t.d. á Facebook síðu
félagsins, áhugaverðum greinum og
öðru sem skiptir máli.
• „Ég las bók/grein.“
• vera með til að efla samskipti kynslóða.
Samstarf og tengslamyndun
eftirfarandi atriði voru m.a. nefnd
í þessu samhengi:
• Félagið sé í nánu og öflugu samstarfi
við endurmenntun HÍ og við Ha
varðandi sérskipulagða kúrsa.
• Samstarf við félög frá öðrum löndum.
• koma á samstarfsverkefnum iðjuþjálfa
og annarra fagstétta – vera tengiliður.
Þverfagleg nýting á reynslu, t.d. hvað er
hægt að nota bæði í iðju- og sjúkraþjálfun.
• Skiptivinna á milli landa – efla tengingu
á milli félaga úti í löndum. Stuðla að og
styðja við tengslamyndun.
Hagsmunagæsla
eftirfarandi atriði voru m.a. nefnd
í þessu samhengi:
• Í stofnanasamningum sem félagið
kemur að sé símenntun/viðbótar-
menntun metin til launahækkunar.
• Félagið stuðli að auknum rétti
félagsmanna til námsleyfa.
• Starfsréttindi séu tengd fagþróun/
símenntun.
• Fá viðurkennda sérfræðiþekkingu.
• vera faglegur vörður með eftirliti og
mati á fagþróun félagsmanna. Hafa
punktakerfi og umbun sem nýtist.
• Félagið stuðli að gæðaeftirliti svo sem
með endurnýjun starfsleyfis.
eins og vel má sjá á þessum niðurstöðum
höfðu þátttakendur margar hugmyndir
fram að færa og vill stjórnin þakka öllum
þeim sem tóku þátt í undirbúningi og fram-
kvæmd Framtíðarþingsins fyrir þátttökuna
og þeirra framlag. Það er spennandi verkefni
framundan að vinna með og nýta niðurstöð-
urnar í áframhaldandi starfi félagsins, um er
að ræða afar gagnlegan leiðarvísi inn í fram-
tíðina. við vonumst til þess að félagsmenn
muni áfram taka virkan þátt í mótun og þró-
un á starfinu og séu tilbúnir til að leggja sitt
af mörkum til þess að vegur iðjuþjálfunar og
félagsins verði sem mestur í framtíðinni. allt
er fertugum fært!
Stjórn IÞÍ
starfsárið 2015-2016
dAGsKrÁ FösTudAGsIns 4. MArs:
8:30 – 9:15 Skráning
9:15 – 9:30 Setning – Ósk Sigurðardóttir formaður IÞÍ.
Erindi um þverfaglega samvinnu:
9:30 – 9:50 Þverfagleg samvinna í starfsendurhæfingu. Sveindís Jóhannsdóttir, Ma í félagsráðgjöf.
Starfar sem fjölskylduráðgjafi hjá Starfsendurhæfingu Hafnafjarðar.
9:50 – 10:10 að vinna í teymi. Halldóra Sif Gylfadóttir, sérfræðingur í taugasjúkraþjálfun hjá reykjalundi.
10:10 – 10:40 Hlé – veggspjöld og kynningarbásar.
10:40 – 11:00 teymisvinna – áskoranir og ávinningur. Efla Björt Hreinsdóttir, sálfræðingur hjá Björt ráðgjöf.
11:00 – 11:20 Snemmtæk íhlutun og teymisvinna. Guðný Stefánsdóttir, þroskaþjálfi og Ma í menntunarfræði.
Starfar sem sviðsstjóri fræðslu- og kynningarsviðs á greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.
11:20 – 11:40 vinnuvistfræði alls staðar. Oddrún Lilja Birgisdóttir, iðjuþjálfi og formaður
vinnuvistfræðifélagsins (vinnís).
11:40 – 12:50 Hádegisverður – veggspjöld og kynningarbásar.
Skráning.
Erindi um velferðartækni og „hverdagsrehabilitering.“ Haldin í samvinnu við Velferðarráðuneytið.
12:50 – 13:00 eygló Harðardóttir velferðarráðherra opnar dagskránna.
13:00 – 14:00 reablement – the norwegian way. Hanne Tuntland.
14:00 – 15:00 Implementing occupation-focused health promotion in a municipality context
– a strategy to promote healthy ageing. Magnus Zingmark.
15:00 – 15:30 Hlé – veggspjöld og kynningarbásar.
15:30 – 16:30 velfærdsteknologi in Denmark – experiences and strategies. Åse Brandt.
16:30 – 17:30 Móttaka í tilefni af 40 ára afmæli IÞÍ.
19:30 – Hátíðarkvöldverður í veislusalnum á Hótel Örk. veislustjóri er Ólafía Hrönn jónsdóttir.
Um erlendu fyrirlesarana:
Hanne Tuntland
Hanne tuntland is a norwegian occupational therapist with specialization in gerontology/geriatrics. She works
as an associate Professor at Bergen university College. reablement has for several years been her main academic
interest and research topic. She has been a coeditor/coauthor of a textbook in reablement. She is also involved in
two research projects on reablement in norway. Based on studies from the two research projects she intends to
submit a doctoral thesis.
Magnus Zingmark
Magnus Zingmark is head of research and development focusing on active and healthy ageing in the municipality
of Östersund, Sweden. He has extensive experience from working with reablement as an occupational therapist.
In 2015 he published his thesis “occupation-focused and occupation-based interventions for community-dwelling
older people – Intervention effects in relation to facets of occupational engagement and cost-effectiveness.”
Åse Brandt
Åse Brandt’s research contributes to the evidence base of assistive technology interventions. It mainly consists
of outcomes research within the field of assistive technology focusing on everyday activities and participation in
society for people with disabilities and their satisfaction with their devices and the intervention process.
AFMælIsrÁÐsTeFnA IÞí
Á Hótel Örk í Hveragerði 4. og 5. mars 2016
„ allt er fertugum fært “