Skólavarðan - 01.05.2004, Blaðsíða 4
Skerðing á grundvallarréttindum ríkisstarfsmanna 8
Frumvarp fjármálaráðherra um breytingar á lögum um réttindi og skyldur rík-
isstarfsmanna mætir harðri andspyrnu þeirra sem telja sér málið skylt, eins og
fram kom á sameiginlegum fundi KÍ, BHM og BSRB 13 maí.
Í upplýsingasturtunni 9
Jón Árni Friðjónsson lýsir eftir umræðu um Netið og samskipti, skuldbinding-
ar og kennslufræði, og hefur mál sitt á póstmódernískum leikþætti fyrir sam-
tengda rafmagnsheila.
Andspænis sjálfum sér 14
Málþing um stöðu samkynhneigðra og tvíkynhneigðra ungmenna var haldið á
Selfossi í apríl. Þetta er í fyrsta sinn hérlendis sem þingað er um þetta málefni.
Samkynhneigð og grunnskólinn 15
Sara Dögg Jónsdóttir grunnskólakennari og fræðslufulltrúi Samtakanna '78
hélt erindi á málþinginu um samkynhneigð og tvíkynhneigð ungmenni.
Gríðarlegur áhugi og þörf á fræðslu 16
Námstefnan „Einhverfa - leikur - félagsfærni“ var haldin í Reykjavík í apríl og
sótt af hátt á þriðja hundrað manns.
Dyggustu notendur þjónustunnar hafa ekkert um hana að segja 17
Áslaug Jóhannsdóttir rannsakaði útileiki leikskólabarna og notaði viðtöl við
börnin auk athugana á vettvangi í meistaraprófsverkefni sínu við KHÍ.
Vinnubrögð Launanefndar sveitarfélaga hörmuð 20
Langlundargeð grunnskólakennara er á þrotum og horfur á verkfallsboðun í
haust.
Meginverkefnið snýst ekki um tískubólur í samningagerð 22
heldur að bæta kjörin, sagði Aðalheiður Steingrímsdóttir varaformaður FF á
kjararáðstefnu opinberra starfsmanna í apríl.
Landskeppni ungra vísindamanna 24
Úrslit voru kynnt þann 19. maí og tvö verkefni verðlaunuð.
Að læra fyrir lífið 25
Á ráðstefnunni UPPNám 2004 á Akureyri 15. maí kynntu nemendur á fjórða ári
félagsfræðibrautar Menntaskólans á Akureyri rannsóknarverkefni sín.
Nauðsynlegt að efla félagsdeildir framhaldsskólanna 27
Starfsháttanefnd hefur verið við skipuð í FF.
Lagaumhverfi tónlistarskóla á Norðulöndum 30
Helgi Þ. Svavarsson, skólastjóri Tónlistarskóla Akureyrar, hefur dregið saman
ýmsar upplýsingar um þetta málefni.
Formannspistill 3
Hanna Hjartardóttir skrifar.
Gestaskrif 5
Berglind Rós Magnúsdóttir varar við því að hengja bakara fyrir smið og kenna
kvenkennurum um slæma stöðu drengja í skólum. Brennheitur uppáhellingur
hjá Berglindi.
Skóladagar 7
Myndasaga Skólavörðunnar.
Að auki
er blaðið stútfullt af fréttum, kjaramálum, tilkynningum og fleiru
að ógleymdum leiðara.
Ritstjóri: Kristín Elfa Guðnadóttir kristin@ki.is
Ábyrgðarmaður: Helgi E. Helgason helgi@ki.is
Hönnun: Zetor ehf.
Ljósmyndun: Jón Svavarsson
Teikningar: Ingi
Auglýsingar: Öflun ehf. / Kristín Snæfells /
kristin@oflun.is / sími: 533 4470
Prentun: Svansprent
Forsíðumynd: Jón Svavarsson /
Skólavarðan, s. 595 1118 (Kristín) og 595 1119 (Helgi).
Sveitarfélögin segjast vera á kúpunni. Þau eru eflaust ekki að
skrökva því. Það er því ljóst að ef ekki finnst hið snarasta olía við
landið þá verður að biðla til ríkisins um fjármagn til grunnskól-
ans. Kennarar hafa lýst sig reiðubúna til að vera hluti af lausninni
og aðstoða sveitarfélögin við að sækja fé í ríkisvasann. Þeir eru
ekki vandamálið. En það er næsta víst að verði kjör þeirra ekki
samanburðarhæf við kjör annarra háskólamenntaðra opinberra
starfsmanna þá munu þeir „gömlu“ flýja úr starfi og þeir „nýju“
ekki láta sjá sig. Hafa menn áttað sig á því hversu alvarlegt þetta
er? Ég er ekki viss um það. Nú þarf að bretta upp ermar góðir
hálsar, allir sem einn, og vinna saman að lausn. Viljum við eiga
það á hættu að grunnskólastarf hríðversni á komandi árum? Er
okkur ósárt um skólagöngu barna okkar á aldrinum sex til sext-
án ára? Nei, margt bendir til að svo sé ekki, til að mynda aukið
samstarf heimila og skóla sem gerð var góð skil á tveimur nýaf-
stöðnum ráðstefnum sem því miður reyndist ekki rými til að fjalla
um í þessu tölublaði Skólavörðunnar. Auðvitað er eitt og annað
aðfinnsluvert í skólastarfi og þá ekki síður í starfi utan skólatíma
sem stundum er lítt ígrundað og ódýrasta lausnin valin. Kennar-
ar og foreldrar kvarta með réttu undan fundafargani, aukinni
stöðlun og vandræðagangi í tengslum við sérúrræði ásamt með
öðru. En ef grunnlaun kennara og stjórnenda í skólum eru ekki
sambærileg við laun í öðrum störfum sem kennaramenntað fólk
hefur aðgang af þá brestur flótti á liðið. Að standa frammi fyrir
þeim vanda er ekkert grín. Hér er ekki deilt um örfáa aura, hér er
deilt um framtíð öflugs skólastarfs á Íslandi. Hér er spurt hversu
annt okkur er um góða menntun.
En að öðru. Í blaðinu að þessu sinni er viðtal við Áslaugu Jó-
hannsdóttur, en hún vann rannsókn til meistaraprófs á útileikjum
barna í tveimur leikskólum. Áslaug óttast það að útivist barna
fari í auknum mæli hallloka fyrir inniverunni, og að auki að sú
tilhneiging vaxi að stýra leikjum barna of mikið, jafnvel úti við.
Mér finnst þetta alvarlegt mál ef rétt er. Að standa vörð um leik
barnsins hefur alla tíð verið aðall leikskólakennarans. Gott skóla-
starf á ekkert sammerkt með ofstýringu, sérstaklega ekki á þessu
skólastigi. En vonandi er þróunin ekki í þessa átt. Ég treysti leik-
skólakennurum fyllilega til að spyrna við fótum ef krafan um mín-
útustýrt skólastarf fer að teygja anga sína um of til leikskólans.
Kristín Elfa Guðnadóttir
4
LEIÐARIEFNISYFIRLIT
FASTIR LIÐIR
Finnst olía við landið?
SKÓLAVARÐAN 5.TBL. 4. ÁRG. 2004
Á myndinni eru Álfdís Þorleifsdóttir, Loftur
Þórarinsson og Inga Þórunn Waage nemendur í 6. B
Menntaskólanum í Reykjavík.