Skólavarðan - 01.02.2006, Side 5

Skólavarðan - 01.02.2006, Side 5
5 GESTASKRIF SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 6. ÁRG. 2006 Þorsteinn Gunnarsson Svona er hin tætta nútímafjölskylda, stjórnað af börnum sem stjórnast af togstreitu milli menntakerfisins og frístundakerfisins. Afkáralegastur er þessi slagur um börnin í desember þegar allir ætla að gera allt fyrir þau svo að þau nái nú örugglega að skemmta sér. Skólinn vill hafa jólaskemmtun, íþróttafélögin gera sér dagamun, dansskólar hafa sýningar, tónlistarskólarnir halda jólatónleika, allt af miklum metnaði og auðvitað verður að undirbúa þetta meira og minna sérstaklega, halda það um kvöld eða helgar. Jólabekkjarskemmtun verður að vera, börnin verða að geta hist utan skólatíma er þá sagt, auðvitað, þó nú væri. Þau eyða ekki saman nema kannski 40 stundum á viku. Svo eiga allir þessir viðburðir það sameiginlegt að þeim fylgir nammi, helst mikið. Hvernig stendur á því að í hvert sinn sem fleiri en tveir íslenskir krakkar koma saman verður að vera nammi? Nammi í skólanum fyrir jólin, nammi á vídeókvöldinu í fótboltafélaginu, nammi á bekkjarskemmtunum, nammi í afmælum, nema hvað, nammi á laugardögum sem virðist vera hvaða dagur sem er þegar kalla þarf börn saman; eru ekki allir dagar að breytast í bland í poka fyrir 200 kall, helst mikið hlaup? Í hverju felst þá tilbreytingin? Er þetta nammiát bara utan sviga í nútíma lífi, enginn virðist hafa neitt um það að segja, allra síst forráðamenn barnanna. Í miðjum tryllingnum dúkkar svo stundum upp orðið fjölskyldustefna. Næs, en ég bara skil það ekki. Kannski í teoríunni en alls ekki í praxís. Ekki frekar en ég skildi félagsfræðikennarann minn í menntó þegar hann sagði okkur sextán ára óhörðnuðum unglingum að teoría Fjölskyldan og fúndamentalískur basis Kenning eða teoría um nútímalíf segir að fjölskyldan sé hornsteinn samfélagsins. Örugglega rétt, teoretískt, en ég er ekki viss um að ég skilji þessa hugsun. Nema kannski að við sé átt að fjölskyldan sé færanlegur hornsteinn, því oft hef ég á tilfinningunni að drýgstu samverustundir hennar séu í fjölskyldubílnum á leið til og frá skólanum, tónlistarskólanum, íþróttaæfingunni, dans- kennslunni o.s.frv. Allt þetta þekkja allir foreldrar, a.m.k. á höfuðborgarsvæðinu, og allir kennarar líka. Endalaus akstur með börn fram og aftur alla daga svo að þau nái hinni æfingunni og þessari, endalaust stundaskrárpúsl og reddingar svo að allt gangi upp. Staðreyndin er líka sú að kröfurnar á hendur börnunum aukast stöðugt, í skólanum og annars staðar, æfingum íþróttafélaganna fjölgar, tónlistarskólarnir verða kröfuharðari sem og allir aðrir frístundaskólar, ef menn leggja sig ekki alla fram næst ekki árangur, það blasir við. Stundar einhver eitthvað með það að markmiði að ná ekki árangri? Í samkeppnisþjóðfélagi? Varla. Svo þarf ekki að minnast á kostnaðinn við þetta starf allt, frístundastarf barna er orðið grunnurinn að nýrri stéttskiptingu, þeir sem geta verið með og svo hinir. Skóladagurinn hefur verið lengdur, skólaárið lengt og svo meðfram og til hliðar er heimanámið. Svo þurfa börn tíma fyrir sig svo að þau geti verið börn og einhver samvera með þeirra nánustu þarf líka að fylgja með, nauðsynleg uppbyggilegu lífi, ekkert hollara er sagt, en þessi hollusta verður að koma í gæðum en ekki magni. Gæðafjölskyldan hefur orðið til, stutt samvera en áköf, hornsteinninn er orðinn eins og minniskubbur, sést varla en er örugglega talinn á staðnum samt. Lj ós m yn d: T ei tu r Jó na ss on

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.