Skólavarðan - 01.02.2006, Blaðsíða 7

Skólavarðan - 01.02.2006, Blaðsíða 7
SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 6. ÁRG. 2006 7 Framkvæmdastjórn Akureyrarbæjar veitti leikskólum Akureyrarbæjar sérstaka viðurkenningu fyrir framúr- skarandi faglegt starf og góða þjónustu við bæjarbúa við athöfn á Listasafninu á Akureyri föstudaginn 25. nóvember. Leikskólar Akureyrarbæjar hafa verið í mjög örri þróun undanfarin ár. Mikil gróska og hugmyndaauðgi er í leikskólastarfinu og mannauðurinn er mikill. Allir leikskólarnir eru búnir að vinna sína skólanámskrá og hafa komið sér upp ítarlegri heimasíðu. Leikskólarnir gera starfsáætlun fyrir hvert ár og einnig endur- menntunaráætlun fyrir starfsmennina. Leikskólastjórar hafa komið mikið að vinnu við gerð fjárhagsáætlana undan- farin ár og eru mjög meðvitaðir um það fjármagn sem veitt er til leikskólanna. Þeir hafa fylgst mjög vel með rekstrinum sem hefur skilað sér í því að niðurstöður síðustu ára hafa verið góðar. Að tilstuðlan skólanefndar Akureyrar- bæjar var í janúar gerð skoðanakönnun meðal foreldra leikskólabarna og tóku 86% foreldra þátt í henni. Niðurstaða könnunarinnar var sú að 95% foreldra sögðust vera ánægð með leikskóla barna sinna, 92% sögðu að leikskólinn mætti þörfum barna sinna og 76% foreldra sögðust taka þátt í starfi leikskólanna og eiga samstarf við þá. Niðurstöður úr lífskjarakönnun sem IMG Gallup gerði fyrir Akureyrarbæ eru samhljóma, en þar sögðu 95,7% aðspurðra að þau teldu að leikskólarnir veittu góða þjónustu og 78,5% sögðu að auðvelt væri að fá leik- skólapláss hér á Akureyri. Leikskólarnir hafa unnið mörg þróunar- verkefni undanfarin ár og fengið styrki til að vinna þessi verkefni frá þróunarsjóði leikskóla hjá menntamálaráðuneytinu, Kristnihátíðarsjóði og þróunarsjóði skóla- deildar Akureyrarbæjar. Þau verkefni sem unnin hafa verið eru: Börn og heimspeki, Lestrarnám í leikskóla, Lífsleikni í leikskóla, Menningarlegur margbreytileiki, Upplýsingatækni í starfi leikskóla, Bifröst – brú milli heima og Hver trítlar yfir brúna mína? Nú eru fjórir leikskólar að vinna að þróunarverkefnum, þrír leikskólar eru að hanna kennsluleiðbeiningar fyrir yngsta stig leikskólans, einstaklingsnámskrá fyrir yngstu börnin í leikskólanum. Einn leikskóli er að innleiða í leikskólann „AGNið - aukin gæði til náms”, sem er leið til að stuðla að góðri skólaþróun Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um þessi verkefni á heimsíðu skóladeildar Akureyrarbæjar. Leikskólarnir hafa mjög mikið samstarf og mörg verkefni eru samvinnuverkefni. Má þar meðal annars nefna verkefnið „Bær í barns augum” sem unnið var árið 2003 – 2004. Markmiðið með þessu verk- efni var: • Að vekja athygli barna og kennara á umhverfi sínu. • Að vekja athygli barna og kennara á því sem fer fram í bænum þeirra. • Að vekja athygli samfélagsins á hæfileikum og færni leikskólabarna. • Að auka samkennd bæjarbúa allra. • Að vekja athygli annarra á því sem er að gerast í bænum okkar. Akureyrarbær rekur tólf leikskóla á Akureyri og einn í Hrísey. Einnig styrkir bærinn einkarekinn leikskóla sem rekinn er af Hvítasunnukirkjunni á Akureyri. Aðalnámskrá leikskóla er stefnumót- andi leiðarvísir um uppeldisstörf í leik- skólunum, en hver leikskóli hefur sett fram sín einkunnarorð og sína stefnu: Flúðir: Gleði – friður – virðing eru ein- kunnarorð skólans. Leikskólinn vinnur eftir framfarastefnu Dewey og í öllu uppeldisstarfinu er barnið í brennidepli og gengið út frá þörfum þess og þroska. Holtakot: Sjálfstæði – frumkvæði – agi – tillitssemi er sýn skólans. Hugmynda- fræðin byggist að nokkru á kenningum Kami og DeVries. Iðavöllur: Það er leikur að læra eru ein- kunnarorð skólans. Í þeim felst stefna leikskólans. Daglegt líf á Iðavelli snýst um leik, athafnir, verkefni og samskipti sem miða að því að gefa börnunum fjölbreytt tækifæri til að læra, helst með því að uppgötva og reyna sjálf en stundum með dyggri aðstoð annarra. Kiðagil: Vaxa – vita – vilja eru einkunnar- orð skólans. Stefna Kiðagils er að hafa góðan félagsanda, bera virðingu fyrir börnum og getu þeirra og leggja áherslu á að þau afli sér reynslu og þekkingar á eigin forsendum. Klappir: Virðing – viska – vellíðan eru einkunnarorð skólans. Stefna Klappa er að allir eru einstakir. Meginmarkmið Klappa er að barnið útskrifist sem sjálfstæður einstaklingur með gagnrýna hugsun og sterka sjálfsmynd. Krógaból: Stefna skólans er lífsleikni, leikurinn, hreyfing og hollusta. Markmið Krógabóls er að auka andlega, líkamlega og félagslega vellíðan barna með því að efla siðgæðis-, tilfinninga-, vitsmuna-, félags-, líkams- og hreyfiþroska barna. Lundarsel: Stefna skólans er að allt starfið sé á heimspekilegum nótum. Hugmyndafræðin er að mestu fengin úr hugmyndabanka barnaheimspekinnar. Heimspekin eflir gagnrýna – skapandi - og umhyggju hugsun. Naustatjörn: Aðal áhersluþættir eru tveir. Fyrri þátturinn er náttúra og umhverfi sem felur meðal annars í sér endurvinnslu og umhverfismennt. Seinni þátturinn er samfélag og menning. Lögð er áhersla á að börnin gangi með virðingu um náttúru landsins og að þau þekki sitt nánasta samfélag. Leikskólinn er á grænni grein. Pálmholt: Þrjár megináherslur eru í starfi skólans. Lestrarhvetjandi umhverfi og markviss lestrarkennsla fimm ára barna. - Að leggja inn Tákn með tali við upphaf skólagöngu og leggja markvisst inn tákn í hverri viku. – Að byggja upp jákvæða sjálfsmynd barnanna. Síðusel: Hugmyndafræði skólans er lífsleikni í leikskóla þar sem teknar eru saman kenningar ýmissa fræðimanna sem snúa að mannrækt og siðferðilegu gildismati í samfélagi manna og þeirri trú að efla og styrkja hið góða í hverjum einstaklingi, bæði börnum og fullorðnum. Við stjórnun skólans er unnið eftir altækri gæðastjórnun. Sunnuból: Sýn skólans er að kenna börnum „með umhyggju í hjarta og festu í huga”, stuðla að hvetjandi námsumhverfi sem skilar árangri í leik og námi hvers barns. Sýn leikskólans byggist á þeirri trú að með því að efla LEIKSKÓLASTARF Fréttir af leikskólastarfi á Akureyri

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.