Skólavarðan - 01.02.2006, Side 10

Skólavarðan - 01.02.2006, Side 10
10 TÓNLIST OG MENNTUN Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að þjóna tónlistargyðjunni. Samt rifta fáir samningnum og Jón Hrólfur Sigurjónsson, doktor í tónlistarkennslu- fræðum, er sannarlega ekki á þeim buxunum. Samvinna þeirra hefur staðið í um fjóra áratugi, báðum til gagns og gamans. Jón Hrólfur er ekki síst kunnur sem upphafsmaður vefjarins músík.is sem er að öllum líkindum yfir- gripsmesti upplýsingavefur um tónlist einnar þjóðar sem um getur í heiminum. Hann vinnur jöfnum höndum við tónlistarkennslu, miðlun upplýsinga um tónlist, félagsmál og fræðagrúsk. Honum finnst gaman að kenna og vill að nemendahópur tónlistarskólanna sé sem stærstur og fjölbreyttastur. Um þessar mundir kemur Jón Hrólfur vikulega í Kennarahúsið til að sinna ýmsum verkefnum sem hann hefur tekið að sér í fæðingarorlofi formanns Félags tónlistarskólakennara, Sigrúnar Grendal. Jón Hrólfur ólst upp í Kópavogi á sjötta og sjöunda áratugnum og hóf gítarnám á unglingsárum hjá Gunnari H. Jónssyni. Hann segir ekki mikið um tónlistarmenn í ættinni, þó hafi faðir hans mikinn áhuga á tónlist og leiki á harmonikku. „Ég var aldrei poppari,“ segir Jón Hrólfur og hlær, aðspurður hvort hann hafi ekki farið beint á rafmagnsgítarinn. „Fyrst lærði ég klassískan gítarleik og svo bættist fiðlan fljótlega við. Gunnar kenndi við Tónskóla Sigursveins og þangað fór ég. Tónskólinn var á þessum árum við Hellusund og það var afskaplega skemmtilegt samfélag meðal okkar nemendanna sem lengst vorum komnir; við æfðum okkur öllum stundum, spiluðum saman og vorum mjög samheldin. Þarna kynntist ég m.a. Önnu Magnúsdóttur, sem nú er látin, en hún átti seinna talsverðan þátt í að ég fór í tónlistarkennslufræðina. Rómantískur draumur Þegar frá leið lét ég mig dreyma um nám í útlöndum; það var einhver rómantík yfir því að vera námsmaður í útlöndum. Að vísu þorði ég varla að orða þetta við nokkurn mann en málin æxluðust þó þannig að bandarískur kennari sem ég hafði um tíma, Michael Shelton fiðluleikari hjá Sinfóníunni, útvegaði mér sumarnám við tónlistarháskólann í Bloomington í Indiana í Bandaríkjunum. Þangað fór ég sumarið 1981 til náms í fiðluleik. Eins og stundum er sagt er allt stórt í Ameríku. Tónlistardeild Bloomington háskólans er mjög stór, m.a.s. á amerískan mælikvarða. Þar voru starfandi margar sinfóníuhljómsveitir, kammersveitir, fullkomið óperuhús og æfingaaðstaða sem engu er lík. Í deildinni sem ég var í var áhersla lögð á tónlistarflutning. Ég var kominn undir þrítugt og í námi með allt niður í þrettán og fjórtán ára kóreskum og japönskum „undrabörnum“ sem spiluðu allan litteratúrinn! Þetta var töff. Eina helgina fór ég að heimsækja Önnu Magnúsdóttur vinkonu mína sem áður er nefnd. Hún var þá í námi við háskólann í Illinois, Champaign-Urbana, sem er í næsta fylki. Þar var lögð áhersla á tónlistarkennslufræði fremur en tónlistar- flutning eins og í Bloomington. Ég fékk að fara með Önnu í einhverja tíma og fann um leið að þarna átti ég heima. Eftir sumarnámið fór ég aftur heim, ákveðinn í að sækja um nám í Illinois. Í ágústmánuði 1982 fór ég svo aftur utan og nú til að læra Music Education, tónlistarkennslufræði. Að sjálfsögðu var ég enn talsvert eldri en flestir samnemendur mínir en núna stóð mér á sama, þetta var svo skemmtilegt. Ég byrjaði á byrjuninni og klifraði svo upp námsskalann, tók meistarapróf og loks doktorsgráðuna. SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 6. ÁRG. 2006 Kennsla er list! VIÐTAL VIÐ JÓN HRÓLF SIGURJÓNSSON

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.