Skólavarðan - 01.02.2006, Blaðsíða 13

Skólavarðan - 01.02.2006, Blaðsíða 13
13 SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 6. ÁRG. 2006 Á umhverfi sþingi sem haldið var dagana 18. og 19. nóvember 2005 var opnaður nýr vefur um umhverfi smál, www. heimurinnminn.is eða www.heimurinn. is .Um er að ræða námsefni í umhverfi s- mennt sem hentar til notkunar í grunnskólum, en einnig almenningi. Vefurinn er samstarfsverkefni Náms- gagnastofnunar og Umhverfi sstofnunar sem eru jafnframt umsjónaraðilar, en auglýsingastofan Næst sá um hönnun, forritun og gerð vefjarins. Höfundar efnisins eru Björn Valdimarsson, Margrét Júlía Rafnsdóttir og Sigrún Helgadóttir. Umhverfi smennt Umhverfi smennt er ekki sérstök náms- grein í grunnskóla heldur þverfaglegur námsþáttur sem gert er ráð fyrir að sam- þættist öllum námsgreinum grunnskólans og í raun öllu skólastarfi frá upphafi skólagöngu. Í námskrám allra námsgreina eru markmið sem tengjast umhverfi smennt en þau eru þó mismörg eftir námsgreinum. Umhverfi smennt er ákveðið uppeldi sem á að stuðla að virðingu fyrir öllu lífi og umhverfi þannig að núlifandi og komandi kynslóðir hafi þekkingu, vilja og getu til að takast á við viðfangsefni sem tengjast umhverfi smálum. Því er mikilvægt að umhverfi smennt sé ekki einungis tengd ákveðnum námsgreinum inni í skólastofunni heldur sé verið að fást við viðfangsefni umhverfi smenntar í öllu skólastarfi , í mötuneyti, á göngum, á skólalóð o.s.frv. Einnig er mikilvægt að tengja viðfangsefnin daglegu lífi utan skólans, heimilunum og samfélaginu öllu. Efnið á heimurinn.is var unnið með þetta að leiðarljósi. Umhverfi smennt og heimurinn minn Á vefnum heimurinn.is er mikill fróðleikur, nemendur fá tækifæri til að vinna ýmis verkefni, á vefnum eða á vettvangi, þurfa að afl a ýmissa upplýsinga og mynda sér skoðanir á ýmsum málum. Á heimurinn. is er fjöldi verkefna sem gert er ráð fyrir að unnin séu utan veggja skólans, verkefni þar sem nemendur eiga að gera athuganir, benda á leiðir að úrbótum og hrinda þeim svo í framkvæmd. Verkefnin er hægt að tengja útikennslu, nota í tengslum við þemadaga, ferðalög, haust- eða vordaga. Í skólum, sem eru með umhverfi sstefnu eða vinna á einhvern hátt að umhverfi smálum, er efnið á vefnum kjörin leið til að auka þekkingu nemenda og færni til að vinna að umhverfi s- málum. Í þeim skólum sem taka þátt í umhverfi sverkefnum, s.s. verkefninu Skólar á grænni grein, er vefurinn kjörin leið til að uppfylla markmið verkefnisins um fræðslu. Uppbygging efnisins Vefurinn skiptist í þrjá hluta, yngsta stig, sem er einkum ætlað nemendum í 1.- 4. bekk, miðstig, einkum fyrir nemendur í 5.- 7. bekk, og efsta stig, einkum fyrir nemendur í 8.-10. bekk. Innan hvers stigs er mikill fróðleikur og verkefni. Á vefnum má einnig fi nna • Fréttir um umhverfi smál. Reglulega eru settar inn fréttir um það sem er efst á baugi í umhverfi smálum á máli sem hentar börnum í grunnskóla. • Fróðleiksbanki. Ýmis hugtök um umhverfi smál koma fyrir í efninu og eru þau útskýrð í fróðleiksbanka. Þegar hugtakið birtist er yfi rleitt hægt að smella með músinni á það og er þá farið beint yfi r í útskýringu í fróðleiksbanka. • Samskiptatorg. Hér eru verkefni sem nemendur geta unnið og sent inn gögn sem fara í sameiginlegan gagnagrunn á samskiptatorginu. Þeir geta svo borið saman niðurstöður frá hinum ýmsu skólum sem einnig hafa sent inn gögn. • Kennarasíður. Kennarasíðum er ætlað að vera leiðbeiningar um notkun efnisins. Það er von okkar, sem að vefnum stöndum, að efni hans muni nýtast vel skólum landsins svo og almenningi. Margrét Júlía Rafnsdóttir í grunn- og framhaldsskólum. Og það er nú svo að það er undantekning á Íslandi ef tónlistarmenn þurfa ekki að kenna. Oft þurfa menn að kenna á fl eiri en eitt hljóðfæri. En það er ekki sjálfgefi ð að menn geti kennt þótt þeir spili á hljóðfæri. Kennslufræði er mikilvæg. Í Listaháskólanum er auðvitað talað mikið um listamenn og skólinn vill fyrst og fremst búa þá til. Kennarar virðast ekki vera listamenn en listamenn eru kennarar! Það þarf ekki að læra það sérstaklega að kenna. En þetta er alrangt. Það er ekkert samasemmerki á milli þess að vera listamaður og að geta kennt. Að sumu leyti má segja að það sem geri fólk að góðum listamönnum eða kennurum verði hvorki kennt né lært. Þetta sé hæfi leiki, náðargáfa. Ef þetta er rétt verður líka að segja að hæfi leikar, hverjir sem þeir eru og á hvaða sviði, duga skammt ef þeir eru ekki ræktaðir og þjálfaðir. Að þessu leyti er enginn munur á listamönnum og kennurum. Auðvitað þarf hæfi leika en Nýr námsvefur í umhverfismennt Margrét Júlía Rafnsdóttir líka langa og stranga menntun, þjálfun og elju. Kennsla er ekki neyðarbrauð. Kennsla er að mínu mati list og þess vegna ekki eitthvað annars fl okks. Margir eru svo lánsamir að hafa kynnst kennurum sem réttnefndir eru listamenn sem slíkir. Slík lífsreynsla breytir mönnum varanlega. Allir kennarar hljóta að vilja vera þannig listamenn,“ segir Jón Hrólfur að lokum. keg TÓNLIST OG MENNTUN Lj ós m yn d fr á hö fu nd i

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.