Skólavarðan - 01.02.2006, Side 16
16
LAUN LEIKSKÓLAKENNARA
SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 6. ÁRG. 2006
Þegar þetta er skrifað hefur tæpur
fimmtungur leikskólakennara í leiks-
kólum Reykjavíkur sagt upp störfum.
Þolinmæði þeirra er á þrotum. Jafnmjög
og menn fagna hækkun lægstu launa
sker í augu að til lægstu launa skuli
nú teljast laun sérmenntaðs fólks með
þriggja ára kennaranám að baki.
Þótt við þekkjum söguna er ekki úr vegi
að rifja upp helstu málsatvik:
• Þann 4. desember 2005 eru undirritaðir
samningar borgarinnar við Starfsmanna-
félag Reykjavíkurborgar og Eflingu
- stéttarfélag.
• Félag leikskólakennara skoðar samn-
inginn og sér að miklar upphafshækkanir
færa laun réttindalausra starfsmanna í
leikskólum yfir laun leikskólakennara.
Allir réttindalausir með háskólamenntun
– af hvaða toga sem er – fara yfir
leikskólakennara í launum og allir
réttindalausir deildarstjórar, burtséð frá
menntun, fara yfir deildarstjóra með
leikskólakennaramenntun. Í samanburði
er ávallt tekið mið af jafnaldra fólki í
sama starfi með jafnlangan starfsaldur.
„Við trúðum ekki okkar eigin augum,“
sagði Björg Bjarnadóttir formaður FL af
þessu tilefni.
• Þann 7. desember sendir FL stjórn
Launanefndar sveitarfélaga (LN) erindi
þar sem óskað er eftir viðræðum
um leiðréttingu á launum leikskóla-
kennara á grundvelli bókunar I sem
er svohljóðandi: „Samningsaðilar
skulu fylgjast með innleiðingu hæfnis-
launakerfis í samningum hjá öðrum
starfsmönnum í leikskólum en þeim
sem taka laun samkvæmt samningi
þessum og sinna sambærilegum störf-
um og leikskólakennarar. Leiði slíkt
kerfi til almennra innbyrðis breytinga
í launasetningu þessara starfa m.v.
það sem samningur þessi byggir á skal
samstarfsnefnd FL og LN taka málið til
umfjöllunar og semja um fyrirkomulag
sem felur í sér að grunnforsendur
launaviðmiðunar þessa samnings raskist
ekki. Í því sambandi skal tekið tillit
til óformlegs hæfnislaunakerfis sem
tíðkast í sumum leikskólum.“ Tilgangur
bókunarinnar var að koma í veg fyrir að
innleiðing hæfnislauna hefði í för með
sér að laun réttindalausra færu yfir laun
leikskólakennara. „Enginn reiknaði með
að það gerðist með prósentuhækkunum
á grunnlaun“, segir Björg Bjarnadóttir.
„Fulltrúi Reykjavíkurborgar í samninga-
nefnd LN sannfærði bæði samninga-
nefnd FL og samherja sína um að það
væri óhugsandi og því trúðum við.“
Bókun I var því gerð til að koma í veg
fyrir ósamræmi sem gæti skapast. Eins
og FL hefur bent á veitir hún svigrúm til
túlkunar sem innlimar stöðuna eins og
hún er nú ef vilji er fyrir hendi. Þá er ljóst
að borgin sveigir til gildistíma samninga
ef svo ber undir samanber afturvirkni
samninganna við Starfsmannafélagið
og Eflingu. Það eru því engin rök
sem mæla gegn því að leiðrétta laun
leikskólakennara í Reykjavík.
• Um leið og er erindið er sent LN óskar
FL eftir fundi með Steinunni Valdísi
Óskarsdóttur borgarstjóra og Stefáni
Jóni Hafstein formanni menntaráðs.
„Við vildum hitta þau strax,“ segir Björg
Bjarnadóttir aðspurð um þann fund,
„til að geta áttað okkur betur á því
hvað þetta þýddi. En borgarstjóri vildi
ekki hitta okkur fyrr en búið væri að
samþykkja samningana í félögunum og
borgarráði. Við héldum því ekki þann
fund fyrr en 19. desember en Stefán Jón
hafði gefið sér tíma til að ræða við okkur
fyrr. Þegar fundur með borgarstjóra er
haldinn er komin upp mikil ólga í okkar
röðum, enda vorum við þá búin að senda
út trúnaðarmannabréf sem skýrði hvað
þetta fól í sér og fjölmiðlar komnir í
málið.“ Á þessum fundi lýsti borgarstjóri
því yfir að hún vildi hitta talsmenn FL
aftur fyrir áramót til að frétta frá þeim
hvernig samstarfsnefndin tæki á málinu.
„Þetta var strax á þessum tímapunkti
orðinn hálfgerður skrípaleikur,“ segir
Björg.
• Á sama tíma gerist það að stjórn LN
tekur erindi FL fyrir og vísar því til
samstarfsnefndar FL og LN. Þetta skilur
FL svo að samstarfsnefnd sé ætlað að
taka á málinu en raunin varð önnur.
• Reykjavíkurdeild Félags leikskólakennara
kemur saman á fjölmennum fundi 14.
desember og sendir fundurinn frá sér
ályktun þar sem segir meðal annars:
„Leikskólakennarar fagna kjarabótum
annarra starfsmanna leikskóla en sætta
sig ekki við að leikskólakennarar hafi
lægri laun en réttindalausir starfsmenn
og krefjast launa í samræmi við menntun
sína og mikilvægi starfsins. Fundurinn
skorar á Launanefnd sveitarfélaga að
taka strax til endurskoðunar kjara-
samning leikskólakennara. Ella blasi við
að leikskólakennarar í Reykjavík grípi til
örþrifaráða og segi upp störfum.“
• Fundur í samstarfsnefnd er haldinn 19.
Björg Bjarnadóttir segir það velta
á útspili stjórnar Launanefndar
sveitarfélaga hvort friður komist
á í leikskólum og hrina uppsagna
stöðvist.
Uppsögnum fjölgar stöðugt
Kjör leikskólakennara í deiglunni
Ljósmynd: keg