Skólavarðan - 01.02.2006, Side 21

Skólavarðan - 01.02.2006, Side 21
21 SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 6. ÁRG. 2006 því ekki sem skyldi þar sem nemendur eiga í erfi ðleikum með að heyra til kennarans, ekki síst í bakgrunnshávaða og of mikilli fjarlægð. Auk þess hefur rannsókn (5) sýnt að skemmdar raddir fara í taugarnar á áheyrendum og þeir dæma persónuna leiðinlega ef röddin hugnast þeim ekki. Ef börn þola ekki röddina í kennara sínum gæti það sem best orðið að agavandamáli. • Rúmlega helmingur kennara hafði áhyggjur af því að nemendur heyrðu ekki til þeirra. • Þriðjungi fannst röddin ekki duga í hávaða. • 70% hópsins höfðu aldrei reykt. Það bendir því margt til að misnotkun á rödd sé höfuðorsök vandans hjá þeim sem svöruðu. • Um þriðjungi kennaranna fannst kennsla verulega streituvekjandi en slíkt er talið geta leitt til raddveilna. Þetta minnir á niðurstöður úr enskri rannsókn (6) þar sem 20% kennara fannst kennsla vera mjög streituvekjandi. Í þessari rannsókn fundu fl eiri konur en karlar fyrir einkennum. Kvenfólki er hættara við raddveilum en karlmönnum þar sem raddbönd kvenna eru helmingi styttri en karla og verða því fyrir helmingi meira álagi. Ekki fannst marktækur munur á einkennum kvenna eftir árafjölda í kennslu sem gæti bent til þess að óþægindaeinkennin komi fram snemma á kennsluferlinum. Ekki fannst samband hjá körlum milli lengdar á vinnutíma og þess hvort raddmeinaeinkenni voru mikil eða lítil. Niðurstöður gáfu til kynna að eldri íþróttakennarar fi nna meira fyrir ein- kennum en þeir yngri. Ekki var þó hægt að fi nna samband milli árafjölda í kennslu og einkenna. Hins vegar er þekkt að eldri kennarar kvarta meir undan óþægindaeinkennum tengdum rödd en yngri kennarar. Miðað við svör kennaranna virðast einkennin fylgja vinnutíma. Yfi r sumartímann fundu aðeins 6% kennaranna fyrir óþægindaeinkennum tengdum rödd en 58% fundu fyrir þeim í kennslu. Heyrn Eitt af því sem vekur athygli í niður- stöðunum er að um fjórðungur kennara- hópsins hefur leitað til sérfræðinga vegna heyrnarvandamála; 12% sögðust vera með heyrnardeyfu, 3% tóku sérstaklega fram að þau hefðu áhyggjur af heyrninni og hún væri farin að dala. Við spurningunni um hvort þeir hefðu unnið í hávaða tók 51 (41%) kennari fram að þeir hefðu unnið í hávaða við íþróttakennslu. Það leiðir hugann að því hvort starfi ð sem slíkt geti verið áhætta fyrir heyrn og/eða sú tómstundaiðja sem íþróttakennarar stunda í miklum hávaða. Þetta er vert að athuga betur. Umræða Það hefur sýnt sig að markviss raddþjálfun og fræðsla um rödd og raddbeitingu gefur röddinni meiri styrk og fækkar veikindadögum (7,8,9). Enn sem komið er hefur slík fræðsla ekki náð að verða fastur ófrávíkjanlegur liður í námi kennara, trúlega vegna almenns þekkingarleysis á rödd. Sú raddþjálfun sem kennarar hafa fengið hefur því aðallega verið í gegnum söng. Af svörunum mátti sjá að einungis 15% íþróttakennara höfðu fengið raddþjálfun, til dæmis í söngnámi. Kennararnir voru spurðir um eigið álit á rödd. Þeir virtust allir meðvitaðir um raddeiginleika sína. Hins vegar töldu 40% eða 48 einstaklingar sig vera með sterka rödd sem bærist vel til nemenda. Þarna þarf að staldra við því að enginn getur sagt til um hvernig röddin berst til annarra. Tvennt kemur til. Í fyrsta lagi þarf einstaklingurinn að standa fyrir utan eigin líkama til þess að geta dæmt um slíkt vegna þess að við getum einungis fundið hvernig röddin hljómar í eigin höfði. Í öðru lagi hefur hljómburður áhrif á hvernig röddin berst innan húss. Raddir berast misvel um húsnæði vegna þess að þær eru einungis hljóð sem endurvarpast um húsakynnin. Þannig getur styrkur og tíðni í rödd einstaklings borist betur í einhverju tilteknu húsnæði heldur en styrkur og tíðni í rödd einhvers annars. Það er líka athyglisvert að komið hefur fram í breskri rannsókn að bjartar kvennaraddir virðast drukkna í klið frá nemendum (10). Einu má ekki gleyma en það er persónuleiki kennarans. Njóti hann virðingar nemenda hlusta þeir betur. Fjórðungur hópsins taldi upp atriði sem óneitanlega teljast raddmein, eins og raddbrestur, kökktilfi nning og raddþreyta. Aðeins 11% höfðu farið til talmeinafræðings. Má ætla að tvennt hafi komið til. Annars vegar hafi læknar ekki vísað þeim áfram til talkennara og/eða þeir hafi sjálfi r ekki farið og leitað sér hjálpar. 28% eða 35 manns voru hætt störfum sem íþróttakennarar. Fimmtungur tók fram að of mikið álag fylgdi íþróttakennslunni, þau vildu hætta vegna þess eða voru þegar hætt. Notkun magnarakerfi s Rannsóknir hafa sýnt fram á að magnarakerfi í almennri kennslu hlífi r rödd kennarans og nemendur heyra mun betur til hans (11). Almenn notkun magnarakerfi s í kennslu er ekki enn við lýði. Trúlega má fyrst og fremst kenna um ofmati á eigin rödd, þekkingarleysi á burðargetu raddar, þekkingarleysi á hlustunargetu barna og vanmati á kringumstæðum. Meirihluti kennara vildi fá magnarakerfi i íþróttasali sem er mjög jákvætt en mun færri vildu nota magnarakerfi í almennum kennslustofum. Þar er þó full þörf á notkun magnarakerfi s eins og rannsóknir um hlustunargetu og slæma raddheilsu kennara bera vott um (11). Enn á ný má kenna um ofmati á eigin rödd sem heyrist vel í eigin höfði en lýtur lögmáli hljóðs sem dofnar með fjarlægð og drukknar í hávaða. Lokaorð Svarhlutfall var aðeins fi mmtungur og því ber að hafa vissan vara á þessum niðurstöðun. Til dæmis má spyrja sig þeirrar spurningar hvort það voru frekar þeir óánægðu sem svöruðu en hinir. Á hinn bóginn ber þessum niðurstöðum saman við niðurstöður sem fengust úr forrannsókn á Akureyri þar sem allir íþróttakennararnir tóku þátt. Þeim ber líka saman við niðurstöður sem fengust í samanburðarrannsókn skólastjóra og íþróttakennara en í þeirri könnun var 86% svarhlutfall. Að lokum eru niðurstöðurnar sambærilegar við þær sem fi nnast í erlendum rannsóknum (12,13,14). Samkvæmt því er ljóst að Rannsókn á raddheilsu íþróttakennara Fjórðungur leitar til læknis út af raddvandamálum Það er vitað að þessi hópur kennara vinnur við einna verstu aðstæður sem kennarar búa við á sínum kennsluvettvangi. Má þar benda á stóra glymjandi sali, úti- og innisundlaugar með mishita og klóruppgufun, mikinn bakgrunnshávaða sem kennslan skapar, mikla fjarlægð til einstakra nemenda og mikil hlaup um salinn til að fylgja kennslunni eftir. RADDHEILSA ÍÞRÓTTAKENNARA

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.