Skólavarðan - 01.08.2007, Blaðsíða 4
4
LEIÐARI
EFNISYFIRLIT
SKÓLAVARÐAN 5.TBL. 7. ÁRG. 2007
Forsíðumynd: Check Point Charlie. Ólafur Loftsson tók myndina á
heimsþingi kennara í Berlín.
Auglýsingar: Stella Kristinsdóttir
stella@ki.is / sími 595 1142 eða 867-8959
Prentun: Svansprent
Skólavarðan, s. 595 1118 (Kristín)
Laufásvegi 81, 101 Reykjavík
Heima er best – hugleiðingar eftir heimsþing kennara 3
Formannpistill eftir Björgu Bjarnadóttur
Boot camp í menntakerfinu? 4
Leiðari
Hástemmdur fagurgali um menntun 5
Gestaskrif eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur
Íslenskir tónlistarskólar fyrirmynd annarra þjóða að mörgu leyti 7
Íslensk menntun, menntastefna og –framkvæmd, 3. grein
Við upphaf skólagöngu 12
Fræðsla fyrir foreldra sex ára barna
Góð menntun og félagslegt réttlæti 14
Tíu fulltrúar frá KÍ sátu fimmta heimsþing kennara í Berlín þar sem
baráttufólk úr hópi kennara var heiðrað og samþykktar verkefnaáætlanir
gegn hvers kyns útilokun frá menntun. Upplýsingar sem fram komu á
þinginu um mismunun og mannréttindabrot gegn kennurum og nemendur
höfðu mikil áhirf á þátttakendur
Námsgagnavefurinn Katla: Ég vil læra íslensku 20
Anna Guðrún Júlíusdóttir og Sigríður Ólafsdóttir hafa þróað Kötluvefinn
undanfarin fjögur ár og skólar geta keypt áskrift að öllu fræðslu- og
námsefninu sem þar er að finna. Þar ber hæst námsefnið Ég vil læra
íslensku en það er ætlað ungum byrjendum í íslenskunámi sem eru
nýfluttir til landsins
Gerum handverki hátt undir höfði 24
Norrænt heimilisiðnaðarþing verður haldið í Reykjavík 26.-30 september
Fréttir og tilkynningar 26
Aukin stýring að ofan og oftrú á mælingum 29
var meðal þess sem rætt var á stjórnarfundi Norrænu kennarasamtakanna
NLS í júní. Elna Katrín Jónsdóttir segir frá þinginu og rekur Smiðshöggið á
blaðið
Formenn svæðafélaga í FG funda - getraun 30
Baráttan gegn niðurskurði til menntamála er eitt af forgangs-
verkefnum Thulas Nxesi forseta alheimssamtaka kennara
(Education International) og vísbendingar eru um að sífellt gangi
verr að halda í horfinu með fjármögnun skólakerfisins, hvað þá
að meiri fjármunum sé varið til menntamála en áður. Í nýlegri
skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga kemur fram
að Námsmatsstofnun býr við mikinn hallarekstur, uppsafnaður
halli stofnunarinnar er 77 miljónir króna. Ríkisendurskoðun segir
ástæður þessa fyrst og fremst of naumar fjárveitingar ríkisins.
Um þessar mundir hverfa kennarar unnvörpum til annarra
starfa vegna hærri launa sem þar bjóðast og minna álags. Aðhald
og eftirlit eykst á öllum skólastigum. Framhaldsskólar og háskólar
Boot camp í menntakerfinu
Ritstjóri: Kristín Elfa Guðnadóttir kristin@ki.is
Ábyrgðarmaður: Eiríkur Jónsson eirikur@ki.is
Umsjónarmaður félagatals: Sigríður Sveinsdóttir
sigridur@ki.is / sími 595 1115
Hönnun: Zetor ehf.
Ljósmyndir: Jón Svavarsson, nema annars sé getið
leita nýrra leiða til að rétta af reksturinn með því til dæmis að
bjóða nýjar námsleiðir með meiri kostnaðarþátttöku nemenda
og auka sjálfsnám og fjarnám nemenda til að draga úr þörf fyrir
mannafla, húsa- og tækjakost. Ríkisstjórn George Bush boðar
niðurskurð til menntamála annað árið í röð og sama er uppi á
teningnum víða um lönd. Hver skýrslan af annarri um menntamál
er gefin út þar sem sveigjanleiki, stuttar og vinnumarkaðsmiðaðar
námsbrautir og sjálfstýring nemenda er lofuð í hástert. Stöðluð
próf tröllríða skólakerfinu og sums staðar eru menn farnir að
tengja undirbúning nemenda fyrir samræmdu prófin við sk. boot
camps sem njóta sívaxandi vinsælda í heiminum, ekki einungis
æfingaferlið heldur hugmyndafræðin. Á þessu ári kom til að
mynda út bókin „Boot Camp for Leaders in K-12 Education“.
Lykilorð allra herþjálfunarkerfa eru árangur, einbeiting, hlýðni
og agi, þessi út af fyrir sig ágætu hugtök mynda líka kjarnann í
bókinni.
Boot camp líkanið náði talsverðri útbreiðslu í unglinga-
fangelsum í BNA upp úr 1980 og var byggt á þjálfun nýliða í
hernum. Oft var ungmennum boðið að stytta fangelsisdvöl með
þátttöku í slíkri þjálfun. Síðar hefur líkanið aukist að vöxtum og til
eru boot camps fyrir athafnamenn, trúarhópa, líkamsræktendur
og rithöfunda. Oprah er með sitt eigið boot camp fyrir konur
sem vilja grennast og komast „í form“. Foreldrar sem áður sendu
stálpuð börn sín í sumarbúðir skáta senda krakkana nú í boot
camp til að losna við hegðunarvandamálin sem gera vart við sig
með gelgjunni. Hinum gamla Leiklistarskóla Íslands var á einu
æviskeiði sínu líkt við það sem viðgekkst í þjálfunarbúðunum
fyrir vandræðaunglinga í bandarískum fangelsum: Brjóttu þá
niður til að byggja þá upp.
Þjálfunarkerfið í líkamsræktinni og það sem er boðað í bókinni
fyrir kennara og stjórnendur í grunnskólum er öllu mildara. Engu
að síður er full þörf á að spyrja: Er boot camp heilaþvottur? Ef svo
er, hvert er þá þvottakerfið? Til hvers tekur hver skólinn á fætur
öðrum upp agastjórnunarkerfi hérlendis? Eiga þau eitthvað skylt
við boot camp æfingakerfin? Er það menntun og þroska nemenda
til heilla að sundurliða og og útfæra námskrár æ ítarlegar? Eru
samræmd próf besta leiðin til að ná árangri? Hvaða árangri?
Erum við ef til vill að leita skyndilausna til að ala upp sjálfstýrða
vinnumaura? Erum við að bregðast við samtímanum eða erum
við að móta hann í krafti fagmennsku okkar? Þegar upp er staðið
er lykilspurningin sú sama og ætíð, spurning sem við verðum að
ræða í sífellu: Hvað er menntun?
Kristín Elfa Guðnadóttir
Kristín Elfa Guðnadóttir
Lj
ó
sm
y
n
d
:
K
ri
st
já
n
V
a
ld
im
a
rs
so
n