Skólavarðan - 01.08.2007, Blaðsíða 24
24
HEIMILISIÐNAÐARÞING
SKÓLAVARÐAN 5.TBL. 7. ÁRG. 2007
Heimilisiðnaðarfélag Íslands (HFÍ) stendur fyrir norrænu
heimilisiðnaðarþingi á Grand hóteli í Reykjavík dagana
26. – 30. september næstkomandi. Þingið höfðar
til allra sem bera hag handverks fyrir brjósti, m.a.
listgreinakennara og skólastjórnenda.
Þema
Handverkshefð í hönnun er þema þingsins. Það vísar til
þeirrar auðlindar sem býr í handverkshefðinni. Með því
að hvetja til þess að gamalt verklag og aðferðir séu notuð
sem innblástur að nýjum verkum er stuðlað að varðveislu,
viðhaldi og endurnýjun hefðarinnar. Undirtitill þingsins
– framtíðin er í okkar höndum – minnir ennfremur á að
á tímum fjöldaframleiðslu og alþjóðavæðingar eykst
mikilvægi þess handgerða, staðbundna og einstaka.
Dagskrá
Dagskrá þingsins er þrískipt, fyrirlestrar, heimsóknir á
sýningar og dagsferð um Borgarfjörð. Þingið er sett
mið-vikudagskvöldið 26. september. Fimmtu-daginn 27.
september og laugardaginn 29. september eru fyrirlestrar
fyrir hádegi og heimsóknir á sýningar eftir hádegi.
Föstudaginn 28. september er dagsferð um Borgarfjörð
og lokakvöldverður er á laugardagskvöldið á Fjörukránni.
Hægt er að taka þátt í öllu þinginu eða hlutum þess, til að
mynda hlýða á einstaka fyrirlestra.
Fyrirlestrar
Tíu einstaklingar, innlendir og erlendir, flytja erindi á
þinginu. Listamenn og hönnuðir fjalla um hugmyndir
og hefðir í handverki og hvernig þær birtast í verkum
þeirra. Efnahagsleg og félagsleg áhrif handverks, ásamt
UNESCO-samningunum um menningarerfðir, verða einnig
til umfjöllunar. Þess má geta að áhugaverðir útdrættir úr
fyrirlestrunum eru á www.heimilisidnadur.is/2007 og þar
gefst þátttakendum gott tækifæri til að velja einstaka
fyrirlestra, hyggist þeir ekki sitja allt þingið. Þar eru einnig
slóðir á vefi fyrirlesara.
Fyrirlesarar og umfjöllunarefni:
• Arne Nerjordet og Carlos Zahrison fatahönnuðir frá
Noregi og Svíþjóð: „Frá hefð til tísku.“ Arne og Carlos
sækja í norræn áhrif og náttúru og sláandi hönnun
þeirra er blönduð kímni, kitsj og kvenleika.
• Guðmundur Oddur Magnússon prófessor í grafískri
hönnun við Listaháskóla Íslands: „Rýnt í skraut og
munstur í þjóðar arfinum.“ Hugmyndir almennt,
þ.m.t. formrænar, eru yfirleitt hvorki þjóðlegar né
persónulegar. Hvernig við fáumst síðan við þær og
vinnum úr þeim er hins vegar persónulegt, svæðisbundið
og þjóðlegt.
Gerum handverki hátt undir höfði
Norrænt heimilisiðnaðarþing í Reykjavík, fyrirlestrar,
sýningar og dagsferð um Borgarfjörð
Arne og Carlos - Ljósmynd: Bent René Synnevåg
Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir - Ljósmynd: Flash Gordon
Hildur Bjarnadóttir - Ljósmynd: Birgir Vigfússon
Lori Talcott - Ljósmynd: Doug Yaple