Skólavarðan - 01.08.2007, Blaðsíða 29
29
ERLENT SAMSTARF
SKÓLAVARÐAN 5.TBL. 7. ÁRG. 2007
Vorfundur stjórnar NLS - Nordiska Lärar-
organisationers Samråd var haldinn
í Ystad í Svíþjóð dagana 11. og 12.
júní 2007. Í samtökunum eru tæplega
600.000 félagsmenn og telur minnsta
félagið 440 félagsmenn en það stærsta
um 180.000. Félagsmenn starfa á öllum
skólastigum en hlutfallslega fæst félög
hafa háskólakennara innan sinna raða.
KÍ greiðir tæpa hálfa milljón íslenskra
króna árið 2007 fyrir aðild að NLS eða
um 53 kr. pr. félagsmann. Stjórnarfundir
eru haldnir tvisvar á ári.
Sænskir kennarar fá
10,2% launahækkun
Fastir liðir á stjórnarfundum eru, auk
hefðbundinna atriða, skýrslur um það
sem efst er á baugi í aðildarfélögum og
og í hverju landi fyrir sig. Auk þess eru
flutt erindi og lagðar fram skýrslur um
alþjóðamál. Fram kom á fundinum að
nýir kjarasamningar kennara í Svíþjóð
færa þeim töluverða kauphækkun eða
að lágmarki 10,2% á samningstímanum
sem er þrjú ár. Í Danmörku verður
lífeyristökualdur mögulega hækkaður
um tvö ár og þar er skortur á opinberum
starfsmönnum, líka kennurum. Í Finnlandi
er komin ný ríkisstjórn sem hallast lengra
til hægri en sú gamla en bæði Danir og
Finnar sögðu væntingar félagsmanna til
kauphækkana miklar í kjarasamningum.
Kennarastreita í brennidepli hjá
ETUCE og rætt um matskerfi
Greint var frá starfsemi Pan-European
Structure/ETUCE (Eropean Trade Union
Committee for Education) á undanförnum
mánuðum. Í fréttabréfi samtakanna
frá maí sl. kemur m.a. fram að streita í
kennarastarfinu og umfjöllun um hana
á evrópskum vettvangi verður í brenni-
depli hjá samtökunum þetta árið. Á
döfinni er viðamikil könnun í sjö til átta
löndum á því hvað ræður launum og
starfskjörum kennara og skólastjórnenda.
Hin svokallaða „Stóra stjórn“ ETUCE
hittist næst 27. og 28. nóvember og
verður m.a. rætt um starfsmenntun og
haldið áfram að ræða um ECVET en það
er evrópskt matskerfi fyrir verknám og
þjálfun. ECVET gerir kleifa skráningu og
staðfestingu á verknámsmenntun handan
„kerfislandamæra“ og einkum og sér í lagi
beinist þetta að landamærum þjóðlegra
kerfa verkmenntunar og þjálfunar.
Nemendum sem varið hafa tilteknum
þjálfunartíma í öðru Evrópulandi gefst
þannig tækifæri til að fá hann viður-
kenndan sem hluta af þjálfun þeirra í
heimaríkinu. Nánar er hægt að lesa um
ECVET á www.ecvet.net
Ráðstefnur og þing
Á fundinum var einnig fjallað um undir-
búning heimsþings Education Inter-
national í Berlín 22.-26. júlí 2007 sem nú er
afstaðið. Norrænu fulltrúarnir mynduðu
hóp á þinginu og voru tveir fulltrúar
norrænna kennarafélaga í framboði til
stjórnar EI, þær Haldis Holst sem er einn
af varaformönnum Utdanningsforbundet
í Noregi og Eva Lis Preisz, formaður
Lärarförbundet í Svíþjóð en þær hafa setið
í stjórn EI á yfirstandandi kjörtímabili og
náðu báðar endurkjöri. Þá var á fundinum
kynntur undirbúningur svokallaðs
Förbundsseminarium sem er fastur liður
í starfsemi NLS og verður að þessu sinni
haldið í Bergen í Noregi dagana 23.-25.
október 2007. Á námskeiðinu verður fjallað
um fagmennsku kennarastéttarinnar
- eða nánar tiltekið rýnt í hvernig hún
verði aukin - og meðal annars horft til
rannsókna á og þróun kennarastarfsins
og kennarahlutverksins og fjallað um
mikilvægi sjálfstæðis kennara í starfi.
Einnig var kynnt Ledarforum NLS
sem er sérstakur samstarfsvettvangur
skólastjórnenda í aðildarfélögum NLS
og kom saman dagana 26.-28. júní.
Yfirskrift þeirrar ráðstefnu var Ledarskap
i utveckling. Þess er rétt að geta hér að
fulltrúar frá Skólastjórafélagi Íslands (SÍ)
sóttu ráðstefnuna.
Gildi stéttarfélagsaðildar
Sérstakt þema vorfundar að þessu sinni
bar yfirskriftina Medlemskapets värde
og flutti Eva-Lis Preisz, formaður Lärar-
förbundet í Svíþjóð erindi um efnið. Hún
skipti því í fjóra meginþætti og ræddi
fyrst um félagsaðild að stéttarfélögum og
þátttöku í starfi þeirra og taldi hvorugt
lengur jafnsjálfsagt og áður. Hún benti á
nauðsyn þess að setja sig inn í hugsana-
gang og lífssýn yngri kennara og leggja
sig fram um að gera stéttarfélagsstarfið
aðlaðandi fyrir þá. Efla þarf gagnkvæman
skilning á lífssýn og viðhorfum meðal
félagsmanna sjálfra, m.a. í þeim tilgangi að
þjappa stéttinni saman og auka samkennd.
Eva-Lis telur blikur á lofti í þessum
var meðal þess sem rætt var á stjórnarfundi
Norrænu kennarasamtakanna NLS í júní
Á fundinum hrósaði Anders Bondo Christ-
ensen formaður dönsku kennarasamtakanna
DLF Svíum fyrir stuðning við þá sem hafa
annað móðurmál en sænsku. Hann telur að
Svíum gangi mun betur að styðja nýbúa en
Dönum, bæði í skólakerfinu og þjóðfélaginu
almennt.
Eva-Lis Preisz benti á nauðsyn þess að
setja sig inn í hugsanagang og lífssýn yngri
kennara og leggja sig fram um að gera
stéttarfélagsstarfið aðlaðandi fyrir þá. Efla
þarf gagnkvæman skilning á lífssýn og
viðhorfum meðal félagsmanna sjálfra, m.a.
í þeim tilgangi að þjappa stéttinni saman og
auka samkennd. Eva-Lis telur blikur á lofti
í þessum efnum og ástæðu til að reyna að
greina vandann betur og bregðast við, þar
sem meira að segja þeir sem eru félagsmenn
taka æ minni þátt í stéttarfélagsstarfi og
halda ekki á lofti málstað menntunar og
kennslu.
Elna Katrín Jónsdóttir
Aukin stýring að ofan og
oftrú á mælingum
Lj
ó
sm
y
n
d
:
k
e
g