Skólavarðan - 01.05.2008, Qupperneq 5
5
GESTASKRIF: KRISTjÁN KRISTjÁNSSON
SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 8. ÁRG. 2008
Rannsóknir bandaríska sálfræðingsins
Carol S. Dweck hafa vakið talsverða athygli
meðal skólafólks og foreldra á undanförnum
árum enda hafa þær augljósa þýðingu fyrir
ýmis þau efni sem hæst ber í umræðum
um þroska- og einstaklingsmiðað nám. Ég
ætla hér á eftir að gera stutta grein fyrir
kenningum hennar og segja á þeim kost og
löst.
Ég miða einkum við bók Dweck, Self-Theo-
ries: Their Role in Motivation, Personality,
and Development (Philadelphia, Psychology
Press, 1999), sem dregur saman niðurstöður
þriggja áratuga rannsókna hennar og
samstarfsfólks hennar á sjálfshugmyndum
okkar og þroska þeirra. Bókin er afar
upplýsandi og ögrandi lesning, ekki síst
fyrir áhugafólk um menntamál. Nýjasta
bók hennar, Mindset: The New Psychology of
Success (New York, Random House, 2006),
bætir því miður litlu við fyrri skrif nema
dæmisögum, endurtekningum og útþynntu
sjálfshjálparhjali.
Fræðilegar forsendur
Aðferðafræði Dweck byggist á félagsmótunar-
og hugfræðilíkani um manninn. Skoðanir
fólks, ekki síst á sjálfu sér, mynda
merkingarkerfi sem móta hugfar og dagfar
þess og leiða til þess að það bregst á
ólíkan hátt við líkum aðstæðum. Sérstaka
þýðingu hafa í þessu sambandi duldar innri
kenningar fólks um hvaða kost það hafi á að
stjórna sjálfu sér og umhverfi sínu. Þessar
kenningar hafa mismikið „aðlögunargildi“,
sem merkir á mannamáli að þær séu
mishollar fólki. Nánar tiltekið er Dweck höll
undir svokallaðar „eignunarkenningar“ í
sálfræði sem gera ráð fyrir að við breytum í
ljósi þeirra eiginleika sem við eignum sjálfum
okkur: teljum okkur hafa til að bera (með
réttu eða röngu). Einnig felst í kenningunni
að skýringar okkar á eigin hegðun og annarra
hafi áhrif á breytni okkar.
Sjálfskenning
Endurteknar niðurstöður rannsókna Dweck
leiða í ljós að hægt sé að skipta fólki frá
blautu barnsbeini í tvo meginflokka eftir
því hvaða „duldar sjálfskenningar“ það
skiptir það máli fyrir árangur og líðan nemenda?
Lj
ós
m
yn
d
f
rá
h
öf
un
d
i
„Vaxtarsjálf“ eða „festusjálf“
Dweck hefur þróað mælitæki sem skilja
sauðina frá höfrunum. Tækin leiða í ljós að
fæstir eru festu- eða vaxtarkenningarfólk
á öllum sviðum. Algengt er til dæmis að
aðhyllast festukenningu um greind en
vaxtarkenningu um siðvit.