Skólavarðan - 01.05.2008, Blaðsíða 7
SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 8. ÁRG. 2008
GESTASKRIF: KRISTjÁN KRISTjÁNSSON, KjARASAMNINGAR
þú leggir þig eins fram þar.“ Það er ekki að
furða þótt sumum foreldrum þyki ráðgjöf
Dweck um hrós langsótt og yfirborðskennd.
Dweck hafnar ekki beinlínis hlutlægum
sannleika um sjálf fólks. Hún gerir hins
vegar lítið með hverjir raunverulegir
eiginleikar okkur séu; öllu skipti hverja
við teljum þá vera og hvernig við skiljum
eðli þeirra (sem fast eða hreyfanlegt). Hún
minnist hvergi á þá staðreynd að hefðbundin
greindarpróf hafa reynst mjög áreiðanleg
– þótt deila megi um réttmæti þeirra –
og að persónuleikaeinkenni sem þekkt
persónuleikapróf mæla hafa reynst mjög
stöðug. Ef maður léti þessi sannindi í ljós
í svörum við spurningalistum hennar yrði
maður strax flokkaður sem óforbetranlegur
festudurgur. Frá heimspekilegu sjónarmiði er
afleitt að hún skuli ekki greina á milli þeirra
sjónarmiða að mörgu í eðli okkar sé erfitt að
breyta (sem er ugglaust satt) og að sumu
sé ómögulegt að breyta (sem er í mörgum
tilfellum rangt). Bæði sjónarmiðin féllu
samkvæmt Dweck undir „festukenningu“.
Dweck bendir réttilega á að kenning
sín leggi sálfræðilegan skýringargrunn að
sjálfsþroska almennt og sérílagi róttækum
sjálfshvörfum. Samt er margt í kenningu
hennar óljóst í besta falli og þversagnakennt
í því versta. Hún hamrar á því að sjálfshvörf
séu torsótt: „að sleppa taki á sjálfinu sem
verið hefur manns eigið um árabil“. Sjálfs-
hvörf eru engu að síður möguleg en aðeins
fyrir þá sem hafa vaxtarsjálf. Hvernig geta
þeir sem hafa festusjálf þá breytt sjálfum
sér? Dweck ýjar að því að þeim sem hafa slíkt
sjálf séu ekki allar bjargir bannaðar; en við
vitum ekki glöggt hvers konar meðferð þeir
þurfi á að halda nema sækja tveggja mánaða
vinnusmiðju Dweck sjálfrar um vaxtarsjálfið.
Hún lætur, sjálfsagt af viðskiptaástæðum,
lítið uppi um hvað þar fari fram. Ég er því
miður ekki viss um að kennari sem sæti uppi
með erfiðan bekk unglinga með „festusjálf“,
brotna sjálfsmynd og kulnaðan námsáhuga
gæti sótt nógu mörg hagnýt ráð í rannsóknir
Dweck. Engu að síður er bók hennar um
sjálfskenningarnar holl og hressandi lesning
fyrir kennara enda skrifuð á mannamáli og
tekur til umfjöllunar ýmis þau efni tengd
einstaklingsmiðuðum þroska og menntun
sem mest mæða á skólafólki beggja vegna
kennaraborðsins.
Kristján Kristjánsson
Höfundur er prófessor í heimspeki menntunar við
Kennaraháskólann og Háskólann á Akureyri.
Ég er því miður ekki viss um að kennari sem sæti uppi
með erfiðan bekk unglinga með „festusjálf“, brotna
sjálfsmynd og kulnaðan námsáhuga gæti sótt nógu mörg
hagnýt ráð í rannsóknir Dweck. Engu að síður er bók
hennar um sjálfskenningarnar holl og hressandi lesning
fyrir kennara.
Samninganefndir Félags grunnskólakennara og Launanefndar
sveitarfélaga undirrituðu kjarasamning klukkan hálf tvö í húsa-
kynnum ríkissáttasemjara 28. apríl sl. Núverandi samningur
rennur út 31. maí nk. og laun grunnskólakennara hækka um 25
þúsund krónur 1. júní. Kjarasamningurinn gildir frá 1. júní 2008
til 31. maí 2009. Það eru nýmæli að samið sé áður en fyrri
kjarasamningur rennur út og ný vinnubrögð hafa verið viðhöfð í
samningaviðræðunum sem talin eru skila góðum árangri.
Í fréttatilkynningu frá samninganefndum Félags grunnskólakennara
(FG) og Launanefndar sveitarfélaga (LN) sagði meðal annars: „Þegar
formlegar kjaraviðræður hófust í febrúarmánuði sl. voru aðilar sam-
mála um að í upphafi yrði samið um sameiginleg markmið og gengu
þeir samningar greiðlega. Fyrsta markmiðið er að grunnlaun og
starfskjör kennara verði jöfnuð við laun annarra háskólamenntaðra
starfsmanna sem sinna sambærilegum störfum, þannig að laun
og önnur kjör kennara verði samkeppnisfær við kjör samanburðar-
hópa. Þetta þýðir m.a. að hækka þarf sérstaklega laun yngstu
kennara og byrjenda vegna þess að staða þeirra var mun lakari en
viðmiðunarhópa.
Í þeim samningi sem nú hefur verið undirritaður er þessari jöfnun
og leiðréttingu náð í þremur áföngum.
Þann 1. júní nk. hækka laun kennara um 25.000.- kr. á mánuði.
Með því er að hluta verið að færa launataxta að greiddum launum þar
sem yfirborganir hafa átt sér stað. Við upphaf næsta skólaárs þann 1.
ágúst, bætast 9.000.- kr. inn í launatöflu auk þess sem uppbyggingu
hennar er breytt til hagsbóta fyrir yngri kennara. Lokaáfanga að
framangreindu marki er síðan náð 1. október nk. þegar öll starfsheiti
hækka um einn launaflokk. Þessar þrjár hækkanir, fyrir þá sem ekki
hafa notið yfirborgana, nema samtals um 15-23% á grunnlaun eftir
aldurshópum. Þann 1. janúar 2009 hækka laun síðan um 2,5%. Á
þessu ári má vænta að launakostnaður sveitarfélaga vegna þessa
samnings hækki um 1,2 milljarða króna.“
Skrifleg atkvæðagreiðsla um kjarasamning grunnskólakennara
stendur yfir frá 9. – 14. maí og trúnaðarmenn KÍ annast fram-
kvæmdina.
keg
Grunnskólakennarar undirrituðu 28. apríl
Samningar renna út á sama tíma og samningar
annarra starfsmanna sveitarfélaga eða í maílok 2009
KJARASAMNINGAR
7