Skólavarðan - 01.10.2001, Blaðsíða 7
Björg Bjarnadóttir formaður félagsins
setti þingið og talaði um tímamótin sem
félagið stendur á. Hún rakti stuttlega sögu
sameiningar kennarafélaganna og hvað
breytist við inngöngu FL í Kennarasam-
bandið. Breyting sem félagsmenn verða
fljótlega varir við er breytingin á trúnaðar-
mannakerfinu, sem áður var samtvinnað
fulltrúaráði en verður nú aðskilið og trún-
aðarmaður kosinn á hverjum vinnustað.
Sjóðir og eignir félagsins ganga inn í sjóði
KÍ að undanskildum Vísindasjóði og
Rannsóknarsjóði. Björg hefur ekki áhyggj-
ur af verkefnaskorti og segir mörg verkefni
framundan.
Eiríkur Jónsson formaður KÍ var við-
staddur setninguna og ávarpaði þingið.
Hann fór yfir sögu sambandsins og gerði
að umtalsefni baráttu kennarafélagsins á ár-
unum 1989-1995 þegar það gekk í gegnum
erfiða niðurlægingartíma. Þá var ekki farið
að tala um sameiningu leikskólakennara og
annarra kennarahópa enda félagið ungt og
vildi reyna meira sjálft. Í kjölfar verkfalla
og annarra hremminga fór loks að rofa til
og kennarar gátu horft fram á veginn til
betri og bjartari tíðar. Forsendur þess að
félögin sameinuðust styrktust og þau
mættu til leiks á jafnréttisgrundvelli þegar
þar að kom.
Að loknum ávörpum skemmtu Aðal-
steinn Ásberg og Anna Pálína þinggestum
með líflegum og fallegum söng. Þá var
þriggja mínútna þögn til minningar um þá
sem létust í Bandaríkjunum.
Eftir kaffihlé var hafist handa við þing-
störf, forsetar og ritarar kosnir. Björg
Bjarnadóttir fór stuttlega yfir ársskýrslu og
eftir það voru mál lögð fram. Lagabreyt-
ingar eru miklar því að verið er að sam-
ræma lög FL og annarra félaga innan KÍ.
Afgreiðsla lagabreytinga gekk vel og voru
þingfulltrúar sammála um flestar breyting-
ar sem lagðar voru til.
Í framhaldi af því komu fram ýmsar til-
lögur og var umræða um þær jafnóðum.
Þegar komið var fram á miðjan dag tóku
nefndir til starfa. Mismikil verkefni lágu
fyrir þeim og komust sumir fulltrúar ekki
heim fyrr en langt var liðið á kvöld.
Laugardagurinn ekki síðri
Það var hress hópur og nokkur eftir-
vænting ríkti þegar fulltrúar komu til starfa
á laugardeginum. Venja er að byrja daginn
á morgunverði og ekki var brugðið frá
henni nú. Að morgunverði loknum var
þingstörfum haldið áfram þar sem frá var
horfið. Ekki var mikill ágreiningur um mál
og greinilegt að fulltrúar voru vel undir-
búnir og höfðu ígrundað viðfangsefnið.
Björg hvatti þingfulltrúa til að þiggja
gott boð Eiríks Jónssonar um að koma í
hús KÍ og þiggja veitingar að þingi loknu.
Helga þingforseti lofaði að klára þingið
fyrir klukkan 17 svo að tímasetningar stæð-
ust. Þingmálin fóru svo eitt af öðru til sam-
þykkta og engin stórátök urðu um þau. Það
fór því þannig að klukkan 15 var þingi slit-
ið og muna elstu menn ekki annað eins.
Þingfulltrúar brugðu þá á það ráð að setjast
inn á næstu krá og bíða eftir að ganga inn í
sambandið í orðsins fyllstu merkingu því
að rétt fyrir klukkan 17 þrammaði hópur-
inn frá húsi BSRB að húsi KÍ við Laufás-
veg. Þar tóku formenn félaganna á móti
hópnum úti á tröppum og báðu okkur um
að vera eins og heima hjá okkur því að það
værum við svo sannarlega núna. Glatt var á
hjalla í glæsilegu boði KÍ og ríkti eftir-
vænting meðal fólks að koma til starfa í
þessu fallega húsi.
Særún Ármannsdóttir
Myndir: Sigurlína Kristjánsdóttir og
Særún Ármannsdóttir
Þing le ikskólakennara
8
12. fulltrúaráðsþing Félags leikskóla-
kennara var haldið dagana 14. og 15.
september sl. Um það bil 65 fulltrúar
af öllu landinu komu saman á þing-
inu.
Þingstörf gengu hratt og vel
Ný stjórn Félags leikskólakennara
Eiríkur Jónsson tekur á móti leikskólakennurum við Kennarahúsið