Franskir dagar - 01.07.2016, Side 3
Söngskemmtun í
Fáskrúðsfjarðarkirkju
Sigrún Hjálmtýsdóttir og Bergþór Pálsson syngja á tónleikum á Dalvík
og Austurlandi dagana 18.- 22. júlí. Píanóleikari er Kjartan Valdemarsson.
Albert Eiríksson hefur skipulagt tónleika í tengslum við Franska daga á Fáskrúðsfirði síðan
2001, en það voru einmitt Diddú og Bergþór sem riðu á vaðið á fyrstu tónleikunum. Síðan þá
hefur tónleikunum vaxið fiskur um hrygg og ýmsir staðir á Austurlandi verið heimsóttir, allt
suður til Hafnar. Margir tónleikagestir hafa komið ár eftir ár og sumir hafa aldrei látið sig vanta.
Í ár verða síðustu tónleikarnir í þessari mynd og því þótti Albert tilvalið að Diddú og Bergþór
lokuðu hringnum. Efnisskráin er að mestu byggð á fyrstu efnisskránni, en þar kennir ýmissa
grasa; ljúflingslög eftir Inga T. Lárusson, Sigfús Halldórsson, Jónas og Jón Múla, Oddgeir
Kristjánsson, en einnig frönsk lög, létt Vínarlög og önnur þekkt erlend og íslensk sönglög.
Tónleikarnir verða sem hér segir:
Dalvík 18. júlí kl. 20 í Bergi.
Safnaðarheimili Norðfjarðarkirkju 20. júlí kl. 20.
Álfakaffi, Borgarfirði eystra 21. júlí kl. 20:30.
Fáskrúðsfjarðarkirkju 22. júlí kl. 17 og 20.
Þau Diddú og Bergþór hafa átt margvíslegt samstarf í áranna rás, haldið fjölda tónleika saman,
farið með aðalhlutverk saman í mörgum óperum og síðast en ekki síst komið fram á óteljandi
skemmtunum af fjölbreyttu tagi.
Það verður létt og fallegt yfirbragð á tónleikunum, enda eru þau löngu þekkt fyrir glaðlega
útgeislun og vandaðan tónlistarflutning.
Kjartan mun prýða tónleikana af sinni alkunnu hógværð og leikni, enda er hann eftirsóttur
píanóleikari af öllum helstu söngvurum landsins, en búast má við að hann kippi nikkunni með.
Miðasala við innganginn og á tix.is.
Góða skemmtun!
3