Franskir dagar - 01.07.2016, Page 11
Franskir dagar Les jours français
Fyrsti sjúkrabíll Fáskrúðsfirðinga var jeppi af
gerðinni International Harvester Scout, sem
gerður var að sjúkrabíl inni á Ljósalandi hjá
Bjarna og sáu tveir hagleikssmiðir, þeir Baldur
Guðlaugsson og Erlendur Jóhannesson um að
smíða innréttingarnar í bílinn.
Björgunarsveitin tók svo að sér að manna bílinn
og gerði alla tíð á meðan sjúkrabílar voru reknir
af Fáskrúðsfjarðardeild Rauða kross Íslands.
Strax um og eftir 1975 fór svo að verða til aukinn
björgunarbúnaður og tæki hjá björgunarsveitinni,
CB talstöðvar, sjúkrabúnaður, áttavitar og kort,
börur, fjallabúnaður ýmis konar svo sem línur,
broddar, ísaxir, broddstafir og þess háttar búnaður.
Árið 1976 fékk björgunarsveitin fyrsta björg-
unarbátinn, Zodiak slöngubát. Björgunarsveit-
armenn höfðu þá lagt mikla vinnu í dagskrá fyrir
sjómannadaginn árið áður, voru með sjoppu í
vigtarskúrnum, seldu merki og héldu dansleik
um kvöldið, og var afrakstur þessarar vinnu not-
aður í bátakaupin.
Fyrsti björgunarsveitarbíllinn var svo keyptur um
1978, frambyggður rússajeppi (UAZ), en fram
að því höfðu félagar björgunarsveitarinnar lagt
til sína eigin bíla í útköll og önnur störf björg-
unarsveitarinnar.
Björgunarsveitin fær nafnið Geisli
Á félagsfundi björgunarsveitarinnar þann 29.
apríl 1975 var ákveðið að gefa björgunarsveitinni
nafnið Geisli og var merki fyrir björgunarsveitina
valið úr nokkrum tillögum. Merkið var teiknað
af Stefáni Jónssyni.
Merki björgunarsveitarinnar breytt
Árið 1999 voru Slysavarnafélag Íslands og Lands-
björg, tvö félagasamtök sem höfðu björgunar-
sveitir starfandi undir sínum merkjum, sameinuð
í eitt félag sem fékk nafnið Slysavarnafélagið
Landsbjörg. Við þessa breytingu urðu margar
björgunarsveitir að breyta merki sínu, þar sem í
þeim voru oft tilvísanir í gömlu félögin sem nú
voru ekki lengur til.
Tillögur voru einnig gerðar
að nýju merki fyrir björg-
unarsveitina Geisla, en engin
fékk sérstaklega góðan hljóm-
grunn, þar sem menn sáu það
ekki fyrir sér sem almennilegan
arftaka merkisins sem fylgt
hafði sveitinni þetta lengi og
margir ákaflega stoltir að bera.
Úr varð að lokum, að fengið
var leyfi höfundar til að fella
bara út stafina SVFÍ, skamm-
stafi Slysavarnafélags Íslands
sáluga, og merkið því nánast
það sama á eftir.
Sjóflokkurinn og bátarnir
Þann 26. desember 1986 fórst tankskipið Syneta
við Skrúðinn, og fórust allir tólf skipverjarnir, sex
Bretar og sex menn frá Grænhöfðaeyjum. Sjö lík
áhafnarmeðlima fundust af björgunarmönnum.
Þetta sjóslys varð síðar dálítill vendipunktur í
áherslu björgunarsveitarinnar Geisla í sjóbjörg-
unarmálum, þegar menn áttuðu sig á því að öfl-
ugur hraðskreiður björgunarbátur hefði þarna
bjargað mannslífum. Litlu opnu slöngubátarnir
máttu sín lítils við þær aðstæður sem þarna voru,
sjóhæfni þeirra og ganghraði var ekki upp á marga
fiska í lok desember fyrir opnu
hafi.
Björgunarsveitarmönnum varð
því ljóst að öflugan björgunarbát
þyrfti sveitin að eignast og eiga
öflugan sjóflokk, en alvöru bátur
var of dýr fyrir litla björgunarsveit,
sem einnig var að reyna að koma
sér upp húsnæði undir starfsemi
sína.
Markmiðið gleymdist þó ekkert
og því tókst að ná og fyrsti stóri
harðbotna björgunarbáturinn var
keyptur árið 1995, notaður frá björgunarsveitinni
á Höfn í Hornafirði. Báturinn var af gerðinni
Viking, smíðaður í Danmörku og fékk nafnið
Guðjón Gunnarsson, í höfuðið á ungum dreng,
félaga flestra þeirra sem sjóflokkinn skipuðu,
sem látist hafði af slysförum nokkru áður. Bát-
urinn var búinn 165 hestafla dieselvél og var um
8 metra langur. Guðjón Gunnarsson reyndist
góður sjóbátur, en varð dýr í rekstri, aðallega
vegna bilana, og reyndist ekki nægilega áreið-
anlegur, með einungis einni vél og einu hældrifi.
Báturinn var svo seldur til einstaklings, sem seldi
hann til köfunarþjónustufyrirtækis í Hafnarfirði.
Næsti stóri harðbotnabátur sjóflokksins var af
gerðinni Atlantic 75, 7,5 metra langur, smíðaður
í Bretlandi af skipasmíðastöð breska sjóbjörg-
unarfélagsins (NRLI) og keyptur notaður af því
félagi árið 2010.
Báturinn var keyptur án
véla og allra tækja, og voru
settar á hann tvær nýjar 75
hestafla utanborðsvélar og
öll tæki ný.
Báturinn fékk nafnið Hafdís,
í höfuðið á slysavarna-
deildinni á staðnum, sem
fyrir utan að hafa átt frum-
kvæðið af því að björgunar-
sveitin var stofnuð, hefur
reynst björgunarsveitinni
ákaflega góð „mamma“ í
gegnum árin.
Hafdís reyndist gríðarlega
góður sjóbátur í þeim að-
stæðum sem björgunarbátur þarf að vinna við
og var vel tækjum og búnaði búinn. Galli hans
var að hann var opinn, það er að segja lítið skjól
var fyrir áhöfn, og aðra sem taka þyrfti um borð,
og því erfitt bæði að sækja fólk mjög langt út á
haf og fyrir áhöfn að halda út, til dæmis í langri
leit í mjög köldu veðri.
Sjóflokkur björgunarsveitarinnar með Zodiac slöngubátinn.
Fyrsti björgunarsveitarbíllinn.
11
Upphaflega merkið. Eftir breytingu.
Stefni Synetu upp úr sjónum við Skrúðinn.
Guðjón Gunnarsson (7440).