Franskir dagar - 01.07.2016, Blaðsíða 13
Franskir dagar Les jours français
13
Upp úr 1980 fékk björgunarsveitin svo lítinn skúr,
sem stóð við Skólaveg 50b, til afnota, og var í eigu
Rafmagnsveitu Ríkisins. Þar var meðal annars sett
upp stjórnstöð og skápar fyrir einstaklingsbúnað
björgunarsveitarmanna.
Björgunarsveitin Geisli, Fáskrúðsfjarðardeild
Rauða kross Íslands og Slysavarnadeildin Hafdís
sameinuðust svo um að byggja hús undir starf-
semi sína árið 1988, að Grímseyri 9, og hýsir
það starfsemina í dag. Húsið var nokkuð lengi
í byggingu, þar sem ekki var framkvæmt neitt
nema félögin ættu fyrir því. Starfsemin fluttist
þó í nýbygginguna haustið 1990, þó ekki væri
búið að klára húsið að innan.
Ungliðadeildin Logi
Árið 1984 var stofnuð ungliðadeild innan björg-
unarsveitarinnar sem fékk nafnið Logi. Frum-
kvæðismaður að stofnun ungliðadeildarinnar
var Bjarni Björnsson og var markmiðið með
henni að gefa unglingum á aldrinum 14 til 18
ára tækifæri til að öðlast ýmsa þekkingu, sem
nýttist síðar mögulega í björgunarstörfum, eða
bara í lífinu sjálfu.
Starf ungliðadeildarinnar fór rólega af stað, en
varð svo nokkuð vinsælt meðal unglinga og sér-
staklega var starfið öflugt og óslitið á árunum
milli 1990 og 2005.
Í seinni tíð hefur framboð á alls konar tóm-
stundum og íþróttum fyrir unglinga aukist mjög,
og ungliðadeildin orðið minni, auk þess sem
erfiðara er orðið að fá aðila til að halda úti því
mikla starfi, sem umsjón með ungliðadeild er, í
sjálfboðavinnu.
50 ára afmælishátíðin – móttaka á
nýjum björgunarbát
Laugardaginn 4. júní síðastliðinn, daginn fyrir
sjómannadag, kom Hafdís, nýi björgunarbátur
björgunarsveitarinnar, svo til heimahafnar. Bát-
urinn var fluttur landleiðina úr skipasmíðastöð-
inni í Kópavogi til Hafnar í Hornafirði, þar sem
hann var sjósettur, honum siglt heim og kom inn
í hópsiglingu skipa og báta frá Fáskrúðsfirði í
tilefni sjómannadagsins.
Á sjómannadaginn sjálfan var svo haldið upp
á 50 ára afmæli björgunarsveitarinnar Geisla
og komu nýja björgunarbátsins, með veg-
legri kökuveislu, sem slysavarnadeildarkonur
gáfu björgunarsveitinni í tilefni dagsins. Um
170 manns mættu í Skrúð þar sem veislan var
haldin. Meðal gesta voru Smári Sigurðsson for-
maður Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Gísli
V. Sigurðsson stjórnarmaður Slysavarnafélagsins
Landsbjargar, Björn Jónsson framkvæmdastjóri
bátasmiðjunnar Rafnar, Friðrik Mar Guðmunds-
son framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar (LVF)
og kaupfélagsstjóri, Lars Gunnarsson stjórnar-
formaður LVF, Elvar Óskarsson stjórnarmaður
LVF og Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga, Páll
Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri Fjarða-
byggðar og Steinþór Pétursson hafnarstjóri
Fjarðabyggðarhafna. Björgunarsveitinni voru
færðar myndarlegar gjafir í tilefni tímamót-
anna, meðal annars 3 milljónir frá Loðnu-
vinnslunni og Kaupfélagi Fáskrúðsfirðinga,
en það var sú upphæð sem uppá vantaði til
að full fjármagna kaupin á nýja björgunar-
bátnum. Kom þessi gjöf mjög á óvart þar
sem Loðnuvinnslan hafði þegar styrkt verk-
efnið veglega, og uppskar mikið lófaklapp
frá veislugestum. Í afmælisveislunni stóð til
að heiðra Bjarna Björnsson, með því að gera
hann að fyrsta heiðursfélaga björgunarsveit-
arinnar Geisla, og þakka honum þannig fyrir
allt það óeigingjarna starf sem hann hefur
unnið fyrir björgunarsveitina og samfélagið.
Bjarni gat því miður ekki verið viðstaddur, þar sem
einnig var verið að skíra nýjasta barnabarn hans
þennan dag, en þessu til staðfestingar var útbú-
inn áletraður skjöldur sem Bjarni fær afhentan.
Björgunarsveitin Geisli þakkar öllum þeim sem
heiðruðu hana með komu sinni í afmælið, fyrir
hlýjar kveðjur í sinn garð og síðast en ekki síst
fyrir þær gjafir sem sveitinni voru færðar.
Stefna björgunarsveitarinnar Geisla
Stefna björgunarsveitarinnar Geisla hefur alltaf
verið að vera sem best í stakk búin að bregðast
við í nærumhverfi hennar og miða búnað hennar
fyrst og fremst við það, en að sjálfsögðu er farið
lengra til þegar kallað er eftir aðstoð og hægt að
bregðast við því. Félagar úr björgunarsveitinni
Geisla hafa meðal annars farið í útköll um allt
Austurland, á Norðurland, upp á jökla og á
hálendið og alveg suður á Mýrdalsjökul.
Þá hefur alltaf verið farið vel með það fé sem
björgunarsveitin hefur aflað til starfsemi sinnar
enda annað hvort mikið búið að hafa fyrir því
að afla þess með vinnu félaganna, eða um gjafafé
einstaklinga og fyrirtækja að ræða, sem ekki er
gengið að sem vísu.
Björgunarsveitin kann öllum þeim sem styrkt
hafa starfsemi hennar í gegnum árin miklar
þakkir fyrir, án ykkar stuðnings værum við ekki
til fyrir samfélagið.
Þá eiga allir þeir sem starfað hafa fyrir björg-
unarsveitina í gegnum árin þakkir skyldar fyrir
sitt fórnfúsa og óeigingjarna starf.
Núverandi húsnæði björgunarsveitarinnar, að Grímseyri 9.
Mynd: Grétar Helgi Geirsson.
Ungliðar að læra skyndihjálp. Mynd: Grétar Helgi Geirsson.
Unglingadeildin Logi á sínu fyrsta Landsmóti árið 1988. Efri röð f.v.:
Rafn Heiðar Ingólfsson, Helga Snædal Guðmundsdóttir, Nökkvi Dan
Kristmannsson, Björn Kristinn Bjarnason, Grétar Helgi Geirsson,
Sigþór Rúnarsson. Neðri röð f.v.: Vignir Örn Stefánsson, Sigurður
Elmar Birgisson, Guðrún Íris Valsdóttir, Jónas Friðrik Steinsson,
Þórður Már Jónsson, Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, Hanna Guðbjörg
Þorgrímsdóttir. Mynd: Bjarni Björnsson.
Mynd frá 50 ára afmælishátíðinni. Mynd: Jónína G. Óskarsdóttir.
Stjórn björgunarsveitarinnar Geisla, f.v. Hörður Árnason
meðstjórnandi, Málfríður Hafdís Ægisdóttir ritari, Grétar Helgi
Geirsson formaður, Jökull Fannar Helgason varaformaður, Hans
Óli Rafnsson gjaldkeri. Mynd: Pétur Björgvinsson.
Viðurkenningarskjöldur Bjarna, fyrsta heiðursfélaga björgunar-
sveitarinnar Geisla.