Glettni - 18.01.1939, Síða 4

Glettni - 18.01.1939, Síða 4
4 GLETTNI Áramótahugleiðing — Nú er loks á enda runnið næsta þungbært ár nítján hundruð þrjátíu og átta. Þá grasseraði Deildartungu-drepsótt meðal fjár, sem Dungal mátti berjast um og þrátta. Kreppan eins og ógnarskrimsli yfir landið fló, útgerðin og búskapurinn var í grænum sjó, Avaxtalaus höfuðborgin en af víni nóg og við Hambro þurfti að leita sátta. í stjórnmálunum upp og niður endinn stöðugt gekk, öllum fiokkum virtist ganga miður. íhaldið af bændaflokknum enga blessun fékk. Uti var með stjórnarsinnum friður. Sigð og hamar ákaiiega að örvum þremur hjó, olíukóngur feitlaginn til herferðar sig bjó. En afkoman og velmegunin öll á landi og sjó alltaf hraktist lengra og lengra niður. En svo kom blessað nýjárið með nýja von og þrótt og nú finn8t öllum landsins börnum gaman. Sauðkindunum ferfættu mun batna býsna fijóit, og bændur eins og sólskin verða í framan. Togarar og mótorbátar ösla út á sjó, af ávöxtum og brennivíni stöðugt verður nóg, króna, mark og gyllini og pund í hvers manns kló. Svo kemur líka Alþing bráðum saman. Þá er von á þjóðstjórninni, þar er engin hlífð, — þetta er landsins björg frá öllu grandi. Hvað eina fæst ókeypis, en krónan verður stífð, þá kalla ég vor fjármál séu í standi. Hvergi verður lýginni við kjósendurna beitt, Kratarnir og íhaldið og Framsókn verða eitt. Kommar þagna’ en Nazistarnir eru aldrei neitt. yndislegt er þá í voru landi. Vinnan verður leikur og æfin eintómt grln, alla daga himnesk veðurbliða. Aðalfæða þjóðarinnar eintómt »vítamín«, ekki er þá við sjúkleikann að striða. Gamla fólkið yngist, en æskan rjóð og heit ólm vill skrýða landið og skundar upp í aveit. í ástarsælu þokast svo árin reit af reit. Ég óska karli og konu góðra tíða. Arr.

x

Glettni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glettni
https://timarit.is/publication/1187

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.